Linda Jensen skrifaði:
Hei. Det mangler en tegnforklaring i oppskriften. Siste runde på A2, trekanttegnet; hvordan strikkes dette?
23.06.2019 - 21:08DROPS Design svaraði:
Hei Linda. Det er 2 ulike symboler rett ved siden av hverandre. Du strikker altså slik: "ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes rett, strikk 1 rett, løft den løse masken over masken som ble strikket" videre strikker du "2 rett sammen". God fornøyelse
24.06.2019 - 07:14
Costa del Sol Jumper#costadelsoljumper |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferð, gatamynstri og A-formi. Stærð S-XXXL.
DROPS 200-30 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 26. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 26. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi 25. og 26. hver lykkja prjónuð saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 104-108-112-118-122-130 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-14-2-4-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 108-114-126-120-126-138 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú mynstur A.1 yfir allar lykkjur (= 18-19-21-20-21-23 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 234-247-273-300-315-345 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-10-10-13-13-13 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan A.2 (= 13-13-13-15-15-15 lykkjur) yfir A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðin eru 306-323-357-380-399-437 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón, í fyrstu umferð eftir A.2 er lykkjufjöldinn jafnaður til 303-335-355-383-407-439 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-46-50-55-60-66 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 68-76-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 83-91-99-109-119-131 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 68-76-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 42-46-50-55-60-66 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 183-199-219-239-263-287 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 9 sinnum = 219-235-255-275-299-323 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 37-39-43-45-49-53 lykkjur jafnt yfir = 256-272-296-320-348-376 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.3 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 68-76-78-82-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að aukið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-84-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4.-2.-2.-2.-1.-1. hverri umferð alls 11-15-14-16-15-17 sinnum = 54-54-60-60-66-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-16-15-13-12-10 cm frá skiptingu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið * 9-9-10-10-11-11 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 60-60-66-66-72-72 lykkjur. Í næstu umferð eru allir uppslættirnir prjónaðir snúnir svo að ekki myndist göt og síðan er prjónað þannig: Prjónið * 9-9-10-10-11-11 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 30-29-28-26-25-23 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.3 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur. Prjónið stroff svona í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Ermin mælist ca 32-31-30-28-27-25 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #costadelsoljumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.