Silvana skrifaði:
Modello molto bello ma le maglie aumentate nelle maniche bisogna lavorarle nel giro successivo
30.01.2022 - 21:36DROPS Design svaraði:
Buonasera Silvana, a quale passaggio sta facendo riferimento? Buon lavoro!
31.01.2022 - 23:32
Josee Gaudet skrifaði:
Hallo, in het patroon staat er dat voor het meerderen in de pas je moet markeerdraden plaatsen in de steek. Maar markeerdraden zijn toch altijd tussen twee steken en niet ‘in’ een steek? Ook in jullie video’s zijn de markeerdraden tussen twee steken... en als ik gewoon markeerders gebruik, hoeveel steken moeten er zijn tussen alle markeerders?
19.11.2019 - 09:34DROPS Design svaraði:
Dag Josee,
Vaak zit een markeerdraad inderdaad tussen 2 steken, maar soms zit hij ook in een steek, wat bij dit patroon het geval is. Het aantal steken dat tussen de markeerdraden zit hangt van je maat af. Bij de pas staat per maat aangegeven in de hoeveelste steek je de markeerdraden plaatst.
19.11.2019 - 12:04
Monika skrifaði:
Sehr schönes Modell. Würde ich sofort stricken.
15.01.2019 - 10:39
Easy Motion Cardigan#easymotioncardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-39 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 22,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 22. og 23. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. RENDUR: Prjónið 2 cm með litnum natur í öllum stærðum, prjónið 4-4-4-5-5-5 cm með litnum ljós sægræn, prjónið 4-4-4-5-5-5 cm með litnum natur og prjónið 4-4-4-5-5-5 cm með litnum ljós sægrænn. Prjónið síðan afgang af stykki í litnum natur í öllum stærðum. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur færri. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir garðaprjóni í hálsi (stykkið mælist ca 2 cm). Fellið síðan af fyrir næstu 4-4-4-5-5-5 með ca 8 cm millibili.. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 90-98-106-110-110-114 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum natur. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 94-102-110-114-114-118 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 3 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Setjið 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): 1. prjónamerki er sett í 20.-21.-23.-24.-25.-26. lykkju í umferð, 2. prjónamerki er sett í 31.-34.-36.-37.-36.-37. lykkju í umferð, 3. prjónamerki er sett í 64.-69.-75.-78.-79.-82. lykkju í umferð og 4. prjónamerki er sett í 75.-82.-88.-91.-90.-93. lykkju í umferð. Á milli lykkja með prjónamerki í eru nú 19-20-22-23-24-25 lykkjur í hvoru framstykki, 32-34-38-40-42-44 lykkjur í bakstykki og 10-12-12-12-10-10 lykkjur í hvorri ermi. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 16-17-19-20-21-22 lykkjur, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1. prjónamerki fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón yfir 10-12-12-12-10-10 lykkjur á ermi, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir 32-34-38-40-42-44 lykkjur á bakstykki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir 10-12-12-12-10-10 lykkjur á ermi, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir næstu 16-17-19-20-21-22 lykkjur á framstykki og endið með 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan – og sléttprjón með kantlykkjum að framan í garðaprjóni og aukið út fyrir laskalínu við hvert prjónamerki þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 19-20-21-24-27-30 sinnum (fyrsta útaukningin er nú þegar prjónuð). Aukið síðan út 1 sinni til viðbótar, en einungis á ermum þannig: Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. prjónamerki og 1 lykkju á undan 2. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á eftir 3. prjónamerki og 1 lykkju á undan 4. prjónamerki. Nú hefur verið aukið út 20-21-22-25-28-31 sinnum á ermum. Nú eru 250-266-282-310-334-362 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-21-22-25-27-30 cm frá uppfitjunarkanti (mælt mitt að framan). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 39-41-44-48-52-56 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 50-54-56-62-66-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-76-82-90-98-106 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-54-56-62-66-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 39-41-44-48-52-56 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Takið frá prjónamerki í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-170-186-202-222-242 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 3 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3½ cm millibili alls 7 sinnum í öllum stærðum = 190-198-214-230-250-270 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-29-31-30 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón, skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-54-56-62-66-72 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-70-76-84 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-7.-6.-5.-4.-3. hverri umferð alls 7-8-9-11-12-13 sinnum = 42-44-46-48-52-58 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 29-29-28-26-24-22 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 6 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #easymotioncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.