Ana Roca Rubio wrote:
Hola!! Tengo una duda, si sigo el patrón, cuándo pongo los primeros marcadores como me indica, entre el último marcador y el primero me quedan 28 puntos y no 32 como pone Lo he deshecho como tres veces y me sigue pasando lo mismo Me podeis ayudar?
11.09.2022 - 19:53DROPS Design answered:
Hola Ana, Hay 32 puntos en el delantero, 32 puntos en la espalda, 10 puntos en cada manga y 4 puntos con marcapuntos = 88 puntos. El primer marcapuntos está en el punto del raglán entre la espalda y la manga izquierda (con la prenda puesta).
12.09.2022 - 23:05Eliane wrote:
Bonjour j ai acheté la laine pour faire le pull mais je voudrais le tricoter avec deux aiguilles car je ne sais pas tricoter avec les aiguilles circulaires merci
20.04.2022 - 16:57DROPS Design answered:
Bonjour Eliane, cette leçon explique comment on peut adapter un modèle sur aiguilles droites. Il peut être parfois plus simple de tricoter en rond sur aiguille circulaire, n'hésitez pas à consulter les vidéos, nombreuses sont celles qui ont réussi à les dompter après les avoir essayées. Bon tricot!
20.04.2022 - 17:09My29 wrote:
Super pour les vacances en bord de mer.
26.12.2018 - 09:49Lulu Castanyet wrote:
Sencillo y marinero
16.12.2018 - 21:22Elsje Fokkelman wrote:
Precioso con las mangas raglán y el hecho que se puede llevar con los botones delante o por detrás
16.12.2018 - 08:18Natacha wrote:
Il donne très envie , dans cette qualité ça va être agréable à porter .
12.12.2018 - 21:34
Easy Motion |
|
|
|
Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 21. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 21. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. RENDUR: Prjónið 2 cm með litnum natur í öllum stærðum, prjónið 4-4-4-5-5-5 cm með litnum ljós sægræn, prjónið 4-4-4-5-5-5 cm með litnum natur og prjónið 4-4-4-5-5-5 cm með litnum ljós sægrænn. Prjónið síðan afgang af stykki í litnum natur í öllum stærðum. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur færri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-92-100-104-104-108 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum natur. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 88-96-104-108-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt samtímis sem 4 prjónamerki eru sett í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett í 1. lykkju í umferð, 2. prjónamerki er sett í 12.-14.-14.-14.-12.-12. lykkju í umferð, 3. prjónamerki er sett í 45.-49.-53.-55.-55.-57. lykkju í umferð og 4. prjónamerki er sett í 56.-62.-66.-68.-66.-68. lykkju í umferð. Á milli lykkja með prjónamerki í eru nú 32-34-38-40-42-44 lykkjur í framstykki/bakstykki og 10-12-12-12-10-10 lykkjur í hvorri ermi. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón (= 1. prjónamerki), aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón yfir 10-12-12-12-10-10 lykkjur á ermi, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir 32-34-38-40-42-44 lykkjur á framstykki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir 10-12-12-12-10-10 lykkjur á ermi, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4. prjónamerki og prjónið sléttprjón yfir síðustu 32-34-38-40-42-44 lykkjur á bakstykki og aukið út um 1 lykkju á undan 1. prjónamerki. Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan – og sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu við hvert prjónamerki í annarri hverri umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 19-20-21-24-37-30 sinnum (fyrsta útaukningin er nú þegar prjónuð). Aukið síðan út 1 sinni til viðbótar, en einungis á ermum þannig: Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. prjónamerki og 1 lykkju á undan 2. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á eftir 3. prjónamerki og 1 lykkju á undan 4. prjónamerki. Nú hefur verið aukið út 20-21-22-25-28-31 sinnum á ermum. Nú eru 244-260-276-304-328-356 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-21-22-25-27-30 cm frá uppfitjunarkanti (mælt mitt að framan). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu lykkju í umferð (= lykkju með 1. prjónamerki), setjið næstu 50-54-56-62-66-72 lykkjur á þráð fyrir ermi (= lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerki), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-76-82-90-98-106 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-56-62-66-72 lykkjurnar á þráð fyrir ermi (= lykkjur á milli 3. og 4. prjónamerki), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið út umferðina. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Takið frá prjónamerki í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-164-180-196-216-236 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3½ cm millibili alls 7 sinnum í öllum stærðum = 184-192-208-224-244-264 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-29-31-30 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón, skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-54-56-62-66-72 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-70-76-84 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkju undir ermi. Þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-7.-6.-5.-4.-3. hverri umferð alls 7-8-9-11-12-13 sinnum = 42-44-46-48-52-58 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 29-29-28-26-24-22 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 6 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Nina wrote:
Jättefin..sommarmodell!!
16.01.2019 - 16:22