DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Cotton Merino yarn
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 1012.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8096.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Baby 33-35

#memorymakerblanket

DROPS Design: Mynstur cm-003-by
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stykkið mælist ca: Breidd = 72 cm. Lengd = 83 cm.

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400 gr litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 1012.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8096.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat við útaukninguna. Aukið út þannig: * Prjónið 20 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 7 sinnum, prjónið út umferðina.

LEIÐBEININGAR A.1:
Í umferð 6 í mynsturteikningu A.1 (umferð með uppslætti) prjónið þannig: 3 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir 152 næstu lykkjur, prjónið 1 lykkju sléttprjón og endið með 3 lykkjur garðaprjón.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Blúndukanturinn í A.3 er prjónaður á toppi á teppinu.

TEPPI:
Fitjið upp 159 lykkjur á hringprjón 3,5 með Cotton Merino. Prjónið þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
A.1 yfir næstu 153 lykkjur, endið með 3 lykkjur garðaprjón - sjá LEIÐBEININGAR A.1. Haldið áfram þar til A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, A.2 yfir næstu 152 lykkjur (= 19 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 1 lykkju sléttprjón og endið með 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 63 cm, stillið af að næsta umferð sé síðasta umferð í mynstureiningu af A.2. Í næstu umferð (= frá röngu og síðasta umferð í A.2) er aukið út um 7 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 166 lykkjur.
Prjónið síðan frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, A.3 yfir næstu 160 lykkjur (= 10 mynstureiningar með 16 lykkjum), endið með 3 lykkjur garðaprjón. Prjónið A.3 1 sinni á hæðina (nú eru 236 lykkjur í umferð), fellið síðan laust af með sléttum lykkjum, klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.06.2019
Leiðrétting á mynsturteikningu A.2
Yfirfarið á vefsvæði: 11.11.2020
Leiðrétting: LEIÐBEININGAR A.1 hefur verið bætt við í mynstri.

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
slétt frá röngu, brugðið frá réttu = slétt frá röngu, brugðið frá réttu
prjónið 2 lykkjur slétt saman frá réttu, 2 lykkjur brugðið saman frá röngu = prjónið 2 lykkjur slétt saman frá réttu, 2 lykkjur brugðið saman frá röngu
takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
Diagram for DROPS Baby 33-35
Diagram for DROPS Baby 33-35
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (78)

country flag Joke Hegener skrifaði:

Ik heb de babydeken gebreid en het patroon moeten aanpassen om het correct te krijgen de 7 meerderingen voor de overgang naar A3 zijn overbodig en maken het telpatroon onjuist door deze weg te laten is het patroon met 9 ipv 10 herhalingen kloppend

24.03.2025 - 22:31

country flag Ruth skrifaði:

Ja, ich meine A3 und leider ist im Text eine Zunahme auf 166 beschrieben. Wird die Decke im oberen Bereich dann nicht sehr breit??? Ich kann natürlich auch 17 Maschen gleichmäßig verteilt zunehmen... könnte aber auch bei 159 Maschen aus A2 bleiben und den Rapport A3 nur 9 x wiederholen.

11.02.2025 - 22:55

DROPS Design svaraði:

Liebe Ruth, ja genau so stimmt es auch, es sind vor A.3 166 M auf der Nadel und diese 166 M stricken Sie so: 3 M krausrechts, die nächsten 160 M wie beim A.3 = 16 Maschen 10 Mal wiederholen und 3 M krausrechts stricken. Gleicheizeitig werden Sie 1 M in jedem A.3 bei er 5. Reihe zunehmen dann beim Wellenmuster wird es auch in der 2. Hälfte A.3 zugenommen. Viel Spaß beim Stricken!

12.02.2025 - 09:41

country flag Ruth skrifaði:

Ich komme mit A2 nicht zurecht. Ab der 7. Reihe zähle ich 17 M pro Rapport. Im Text ist von 16 die Rede. Bei 16 würde die Maschenzahl passen (160:10) bei 17 ist dies ein Problem aber es muss eine ungerade Zahl sein, damit später die Mitte des Musters platziert werden kann... HILFE!

10.02.2025 - 21:22

DROPS Design svaraði:

Liebe Ruth, meinen Sie A.3? A.3 beginnt man über 16 Maschen aber bei der 5. Reihe strickt man 1 Umschlag am Anfang jedem A.3 so sind es 17 Maschen insgesamt. und so sind es insgesamt 176 M auf der Nadel. Nach Lochmuster wird man dann im Wellenmuster noch zunehmen. Viel Spaß beim Stricken!

11.02.2025 - 09:40

country flag Sophie skrifaði:

Hungarian version incorrect, as usual. Says A1 pattern instead of A2 in the description where A2 is first introduced - or should have been.

18.08.2024 - 11:54

country flag Gigi skrifaði:

Bonjour Jai 166 ml effectivement pour 3A mais j’arrive pas à terminé mon dessin pour la fin Bon dimanche

07.04.2024 - 12:41

DROPS Design svaraði:

Bonjour Gigi, tricotez ainsi: 3 m point mousse + 10 x les 16 mailles de A.3 (= répétez les 16 mailles du diagramme en commençant par le 1er rang en bas et lisez de droite à gauche sur l'endroit, de gauche à droite sur l'envers - mettez un marqueur entre chaque motif, ça pourra vous aider à bien vérifier votre nombre de mailles) et terminez par 3 mailles point mousse. Notez bien que vous allez augmenter 1 maile au 5ème rang, puis 2 mailles dans le point de vagues, les marqueurs pourront avoir ici leur importance pour pouvoir bien vérifier votre nombre de mailles. Bon tricot!

08.04.2024 - 08:15

country flag Julie skrifaði:

Baby 33-35 is it possible to see the complete blanket. I always like to compare with my work. Picture only shows top I would like to see the bottom Many thanks

26.03.2024 - 04:03

DROPS Design svaraði:

Dear Julie, unfortunately we don't have more pictures of the blanket, but both sides look similar, as the edging is the same feather and pan pettern at the beginning as well as at the end. Happy Knitting!

26.03.2024 - 22:09

country flag Sylvie Bouchard skrifaði:

Le sixième rang de A1 est-il tricoté à l’endroit ou à l’envers ?

02.03.2024 - 16:49

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Bouchard, le 1er rant de A.1 se fait sur l'endroit, ainsi tous les rangs impairs seront des rangs sur l'endroit et tous les rangs pairs (y compris le 6ème rang - le rang ajouré) sur l'envers. Bon tricot!

04.03.2024 - 08:14

country flag Susan skrifaði:

Ahh I understand now! Thank you so much for the help! I was reading the chart wrong!!!!!!! Thank you again for your help!

10.02.2023 - 14:58

country flag Susan skrifaði:

Fixed my typo’s! I increased the 7 stitches and had 166 stitches for the first 5 rows. The 6th row there is an increase of one stitch. To make it 167 stitches. I can’t get the 7th row to work…. I have 3 garter stitches then my marker then 161 stitches for the graph and then my marker and 3 garter stitches. The graph needs 17 stitches then repeat but that doesn’t work with 161 stitches it doesn’t work with 160 stitches either. What am I doing wrong?

10.02.2023 - 14:01

DROPS Design svaraði:

See answer below - you should have 166 sts + 1 st increased in each of the 10 A.3 = 176 sts and work 3 sts in garter stitch, repat the 17 sts in A.3 a total of 10 times, finish with 3 sts in garter stitch = 176 sts. Happy knitting!

10.02.2023 - 14:37

country flag Ausan skrifaði:

I increased the 7 stitches and had 166 stitches for the first 5 rows. The 6th row there is an increase of one stitch. To make it 167 stitches. I can’t get the 7th row to work…. I have 3 garter stitches then my marker then 161 stitches for the graph and then my marker and 2 garter stitches. The graph needs 17 stitches then repeat but that doesn’t work with 161 stitches it doesn’t work with 150 stitches either. What am I doing wrong?

10.02.2023 - 13:55

DROPS Design svaraði:

Dear Ausan, you should increase 1 stitch at the beginning of every A.3 on 5th row, so that you increase 10 stitches and get 17 stitches for each A.3, then row 7 will work. Happy knitting!

10.02.2023 - 14:36