Ruth Mwewa skrifaði:
This is lovely
21.05.2019 - 21:32
Daniela Giammatteo skrifaði:
Semplicemente meraviglioso
21.02.2019 - 11:58
Violette Trohiard skrifaði:
Bonjour, où puis je trouver les explications pour ce superbe modèle?merci
01.02.2019 - 10:37
Ute Kohns skrifaði:
Sehr schön für den Sommerabend. Wolle bereits bestellt und wenn die Anleitung raus ist lege ich los.
30.01.2019 - 14:59
Joanna Harris skrifaði:
I want to learn how to crochet just to make this!
12.01.2019 - 14:48
PATRIZIA skrifaði:
E' meraviglioso! Elegante e sportivo. Si può indossare in ogni occasione.
11.01.2019 - 15:10
LACARELLE Brigitte skrifaði:
Très léger et aérien, je l'appellerai : Volupté
09.01.2019 - 17:44
Calvario skrifaði:
Tres joli meme e couleur
09.01.2019 - 08:22
Cindy Hampson skrifaði:
Gorgeous!
18.12.2018 - 02:49
Sweet Jasmine#sweetjasmineponcho |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Heklað poncho úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað með blómamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-38 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 (A.5 sýnir 2 hvernig á að hekla stykkin 2 saman) ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í 2 hlutum sem eru heklað saman í lokin. Það eru 2 mismunandi mynstur í poncho. Eitt mynstur með mynsturteikningu og eitt mynstur með auka útskýringu fyrir mynsturteikningu. PONCHO (mynstur með mynsturteikningu): Byrjið með heklunál 4,5 og Merino Extra Fine og heklið mynstur þannig: Heklið A.1, A.2 alls 5-6-7 sinnum, A.3. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið umferð 3 til 6 þar til stykkið mælist ca 64-74-84 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð 4. Klippið ekki frá! Haldið síðan áfram frá KANTUR MEÐFRAM HLIÐ – sjá útskýringu neðar í uppskrift! PONCHO (mynstur með útskýringu fyrir mynsturteikningu): Byrjið með heklunál 4,5 og Merino Extra Fine og heklið mynstur þannig: UMFERÐ 1: Heklið A.1 þannig: 7 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= loftlykkjuhringur), 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Um loftlykkjuhring er heklað (2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). Heklið A.2 þannig: * 11 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= loftlykkjuhringur), 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Um loftlykkjuhring er heklað (2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) *, heklið frá *-* alls 5-6-7 sinnum. Heklið A.3 þannig: 11 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= loftlykkjuhringur), 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Um loftlykkjuhring er heklað (2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 2: Heklið A.3 þannig: 3 loftlykkjur, um fyrsta loftlykkjuhring er heklað (2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga í A.3 í umferð að neðan, 8 loftlykkjur. Heklið A.2 þannig: * 1 keðjulykkja í síðustu loftlykkju á sama loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur. Um næsta loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). Heklið 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga í umferð að neðan, 8 loftlykkjur *, heklið frá *-* alls 5-6-7 sinnum. Heklið A.1 þannig: 1 keðjulykkja í síðustu loftlykkju í sama loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur. Um næsta loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). Heklið 1 keðjulykkju í síðustu loftlykkju í umferð að neðan. UMFERÐ 3: Heklið A.1 þannig: 11 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= loftlykkjuhringur), 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Um loftlykkjuhring eru heklaðir 2 stuðlar. Heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjubga, 4 loftlykkjur. Heklið A.2 þannig: * 6 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 1 loftlykkjuhringur), 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Um loftlykkjuhring eru heklaðir 2 stuðlar, hoppið yfir 2 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur. Um sama loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). Heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur *, heklið frá *-* alls 5-6-7 sinnum. Heklið A.3 þannig: 6 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= loftlykkjuhring), 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Um loftlykkjuhring eru heklaðir 2 stuðlar, hoppið yfir 2 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur. Um sama loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur). Hoppið yfir 1 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur. Um sama loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur). Hoppið yfir 1 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga. UMFERÐ 4: Heklið A.3 þannig: 9 loftlykkjur, hoppið yfir 2 loftlykkjur í umferð að neðan, 1 keðjulykkja í næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur. Um fyrsta loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). Heklið A.2 þannig: * 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga í umferð að neðan, 8 loftlykkjur, hoppið yfir 1 keðjulykkju + 2 loftlykkjur í umferð að neðan, 1 keðjulykkja í næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur. Um næsta loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) *, heklið frá *-* alls 5-6-7 sinnum. Heklið A.1 þannig: 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga í umferð að neðan, 8 loftlykkjur, hoppið yfir 1 keðjulykkju + 2 loftlykkjur í umferð að neðan, 1 keðjulykkja í næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur. Um síðasta loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). UMFERÐ 5: Heklið A.1 þannig: 10 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= loftlykkjuhring), 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Um loftlykkjuhring eru heklaðir 2 stuðlar, hoppið yfir 2 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur. Um sama loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). Heklið A.2 þannig: * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 10 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= loftlykkjuhring), 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Um loftlykkjuhring eru heklaðir 2 stuðlar, hoppið yfir 2 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur. Um sama loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar) *, heklið frá alls 5-6-7 sinnum. Heklið A.3 þannig: 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 10 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= loftlykkjuhring), 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Um loftlykkjuhring eru heklaðir 2 stuðlar, hoppið yfir 2 loftlykkjuboga í umferð að neðan, 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur. Um sama loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja. UMFERÐ 6: Heklið A.3 þannig: 3 loftlykkjur, um fyrsta loftlykkjuhring er heklað (2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). Heklið 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga í umferð að neðan, 8 loftlykkjur. Heklið A.2 þannig: * hoppið yfir 1 keðjulykkju + 2 loftlykkjur í umferð að neðan, 1 keðjulykkja í næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur. Um næsta loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar). Heklið 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga í umferð að neðan, 8 loftlykkjur *, heklið frá *-*alls 5-6-7 sinnum. Heklið A.1 þannig: Hoppið yfir 1 keðjulykkju + 2 loftlykkjur í umferð að neðan, 1 keðjulykkja í næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur. Um síðasta loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar), 1 keðjulykkja um síðasta loftlykkjuboga. Endurtakið umferð 3 til 6 þar til stykkið mælist ca 64-74-84 cm – stillið af að endað sé eftir umferð 4. Klippið ekki frá! Haldið síðan áfram með KANTUR MEÐFRAM HLIÐ – sjá útskýringu neðar í uppskrift! KANTUR MEÐFRAM HLIÐ: Héðan er heklað niður meðfram annarri hliðinni á stykki þannig að það verði heilt blóm meðfram hlið með A.1. Heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 þannig: * Heklið 3 loftlykkjur. Um loftlykkjuhring er heklað (1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar), 1 keðjulykkja um næsta loftlykkjuboga, 7 loftlykkjur, hoppið yfir 1 keðjulykkju, heklið 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* niður meðfram hlið. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju sem var hekluð í stykkið (= fyrsta loftlykkja í A.1). Klippið frá og festið enda. Heklið 1 stykki til viðbótar alveg eins. FRÁGANGUR: Leggið skammhlið (A) á öðru stykkinu að neðri hlið á hinu stykkinu (B) – sjá teikningu með svartri stjörnu – leggið hliðarnar saman þannig að blómin á öðru stykkinu liggi á milli blóma á hinu stykkinu. Heklið 2 stykkin saman eins og útskýrt er í A.5 og útskýrt er að neðan. ATH: Þegar heklaðar eru keðjulykkjur í blómablöðum, heklið í bilið á milli 2 stuðla. Festið enda með 1 keðjulykkju í fyrsta blómablaðið á stykki B, * heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um næsta blómablað í stykki A, heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í næsta blómablað á stykki B, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í næsta blómablað á stykki A, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um loftlykkjuboga á stykki B, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um loftlykkjuboga á stykki A, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í næsta blómablað á stykki B *, heklið frá *-* meðfram allri hliðinni. Klippið frá og festið enda. Endurtakið aftan á poncho þannig að stykkin verða alveg eins að framan og að aftan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetjasmineponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.