Sofia McMonagle skrifaði:
Förstår inte hur ökningen från 73 maskor till 91 maskor går till när man stickar A. 6. Behöver en dupertydlig förklaring till hur jag stickar A6
08.09.2019 - 09:42DROPS Design svaraði:
Hej. Du har 73 m på stickan så du stickar A.6 (=8 maskor) 9 gånger + 1 m slätstickning sist. På varv 7 i diagrammet ökas det 2 maskor per rapport (omslagen) så det innebär att du på sista varvet har 10 maskor per rapport istället för 8. 10 m x 9 rapporter + 1 maska slätstickning sist = 91 m. Lycka till!
10.09.2019 - 10:20
Ursula Blohm skrifaði:
Liebes Drops-Team, sind die Korrekturen, die hier angesprochen wurden, bei der aktuellen Anleitung bereits berücksichtigt ? Ich fange gerade an, den Pullover zu stricken. Vielen Dank schon jetzt für Ihre Antwort
28.08.2019 - 20:54DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Blohm, wenn Sie die Anleitung nach der Korrektur drücken, dann stimmt die Online-Anleitung, sonnst können Sie sie am besten nochmal drücken. Viel Spaß beim stricken!
29.08.2019 - 09:06
Åshild Vågnes skrifaði:
Kan ikke finne A-5, A-6 og A-7 når jeg skal strikke ermene?
06.06.2019 - 21:43DROPS Design svaraði:
Hei Åshild. Diagrammene A.5-A.7 ligger rett under A.3, og over målskissen nederst på siden. Om du har problemer med å se dem kan du forøke å benytte en annen enhet (PC, nettbrett etc). God fornøyelse
07.06.2019 - 08:07
Agnes skrifaði:
A4 scheint das selbe Problem zu haben wie A2 zuvor... hier ist auch entweder eine Abnahme zu wenig eingezeichnet oder soll das als versteckte Zunahme in dieser Reihe gedacht sein?
26.05.2019 - 13:52DROPS Design svaraði:
Liebe Agnes, stimmt, A.4 wird auch korrigiert, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
27.05.2019 - 11:12
Margret skrifaði:
Hallo,liebe Dropse,bin mit dem Stricken bei der Passe bei A2 ,der obere Teil ist mir unklar,wieder 6M.zusammen und 6 Umschläge ist ok,dann aber nur 2mal 2M zus.stricken,das wären ja dann 18 M ,nicht 17!!! Bitte Klärung,danke ,freundlichst Margret
09.04.2019 - 21:08DROPS Design svaraði:
Liebe Margret, Sie sind ja recht, A.2 wird korrigiert, es soll 3 Mal 2 M re zussammen am Ende dieser Reihe. Viel Spaß beim stricken!
10.04.2019 - 14:42
Irene Jensen skrifaði:
Tak for A3 diagram. Men der er fejl i diagrammerne A2 og A4. I øverste rækker, mangler der en streg = (strik to m sammen). Ellers passer m antallet ikke.
28.03.2019 - 08:54
Annegunn Rangnes Bøe skrifaði:
Takk for rask reaksjon med hensyn på diagram 3A😊 Morsom genser å strikke.
27.03.2019 - 23:01
Irene Jensen skrifaði:
Hej. Flot model og nu er jeg kommet til diagram A3. Kan I sige noget om hvornår den blir lagt op ?
27.03.2019 - 10:38
Tone Engjom skrifaði:
Hvorfor er ikke A3 med i mønsteret?
27.03.2019 - 07:19DROPS Design svaraði:
Hei Tone. Nå er A.3 tilgjengelig. Takk for beskjed, og god fornøyelse
27.03.2019 - 08:17
Marianne Pedersen skrifaði:
Hei, kan ikke finne diagram A.3 i oppskriften.
26.03.2019 - 15:14
Relaxing in Reykjavik#relaxinginreykjaviksweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, gatamynstri og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-12 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.3). LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verið stíf þegar prjónað er tveggja lita mynstur, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í hálft númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 38) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 16 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-124-132-136-140 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með litnum mynta. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir í natur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 38-40-42-44-46-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 154-160-166-176-182-186 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 38-44-44-46-46-54 lykkjur jafnt yfir = 192-204-210-222-228-240 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5-6-7-7-8-9 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið A.1 hringinn (= 32-34-35-37-38-40 mynstureiningar með 6 lykkjum). Sjá LEIÐBEININGAR og haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-1 í A.1 aukið út um 16-30-50-51-71-72 lykkjur jafnt yfir = 208-234-260-273-299-312 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 hringinn (= 16-18-20-21-23-24 mynstureiningar með 13 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 272-306-340-357-391-408 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.3 hringinn (lykkjufjöldinn gengur ekki jafnt upp í mynstureiningu með 6 lykkjum, en það gerir ekkert til þar sem fyrsta umferðin er prjónuð í einum lit). JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-2 í A.3, aukið út um 16-18-20-21-23-24 lykkjur jafnt yfir = 288-324-360-378-414-432 lykkjur (nú er pláss fyrir 48-54-60-63-69-72 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-3 í A.3, aukið út um 18-16-14-30-28-27 lykkjur jafnt yfir = 306-340-374-408-442-459 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 hringinn (= 18-20-22-24-26-27 mynstureininga með 17 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-4 í A.4 er aukið út um 14-12-10-4-2-13 lykkjur jafnt yfir = 320-352-384-412-444-472 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 23-24-25-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan sléttprjón hringinn með litnum natur þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 47-51-55-60-66-72 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 66-74-82-86-90-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 94-102-110-120-132-144 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 66-74-82-86-90-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-51-55-60-66-72 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-240-264-292-320 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-8-10-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuðu síðar þegar auka á út í hliðum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 10 sinnum í hvorri hlið = 240-260-280-304-332-360 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 3 cm eru eftir til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 60-64-68-76-84-88 lykkjur jafnt yfir = 300-324-348-380-416-448 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjónast dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 66-74-82-86-90-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-82-92-98-104-108 lykkjur í umferð. Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Byrjið mitt undir ermi á milli 6-8-10-12-14-16 lykkja, setjið 1 prjónamerki í lykkju á eftir miðju, teljið 35-40-45-48-51-53 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 35-40-45-48-51-53 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónamerkið mitt á ermi er notað þegar telja á út hvar mynstrið byrjar. Byrjið umferð mitt undir ermi, á undan lykkju með prjónamerki í og prjónið sléttprjón hringinn með natur. Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 5-9-13-13-12-11 sinnum = 62-64-66-72-80-86 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-13-11-9-8-7 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis), prjónið A.1 hringinn (úrtaka mitt undir ermi kemur til með að halda áfram þegar A.1 er prjónað – teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja – lykkjan með prjónamerki í mitt á ermi á að passa við lykkju merkta með stjörnu í A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, þ.e.a.s. á eftir 4-4-4-6-6-6 umferð með natur, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Ermin mælist nú ca 20-19-17-15-14-13 cm frá skiptingu. Prjónið A.5 hringinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 2 sléttar umferðir og aukið út JAFNFRAMT út um 11-9-7-9-9-3 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 73-73-73-81-89-89 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.6 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 9-9-9-10-11-11 mynstureiningar með 8 lykkjum), endið með 1 lykkju sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka eru 91-91-91-101-111-111 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.7A (= 5 lykkjur), prjónið A.7B þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 8-8-8-9-10-10 mynstureiningar með 10 lykkjum), endið með A.7C (= 6 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur þar til A.7 hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjurnar – sjá útskýringu að ofan. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 36-35-33-31-30-29 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #relaxinginreykjaviksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.