DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Moonshine Dance

Prjónaður kjóll með hringlaga berustykki úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað með gatamynstri / túlipanamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-9
DROPS Design: Mynstur r-737
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-900 g litur 60, ljós ísblár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stroff/kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Fækkað er um 4 lykkjur í hverri umferð með úrtöku.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hvert og eitt að prjónamerkjum sem eftir eru (= 4 lykkjur færri í umferð).
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig:
Prjónið fram að prjónamerki, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hvert og eitt að prjónamerkjum sem eftir eru (= 4 lykkjur færri).
Endurtakið úrtöku til skiptis á undan og á eftir prjónamerki í annað hvert skipti með útaukningu.

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 252 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 21. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 20. og 21. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 13,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 13. og 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að berustykki. Prjónið síðan ermar í hring á sokkaprjóna áður en þær eru settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki og að lokum er berustykkið prjónað.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 264-264-288-312-336-336 lykkjur á hringprjón 3,5 með Muskat. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið mynstur A.1 alls 11-11-12-13-14-14 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 20 cm. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki eftir 29-29-32-34-36-36 lykkjur, setjið næsta prjónamerki eftir 74-74-80-88-96-96 nýjar lykkjur, setjið 1 prjónamerki eftir 58-58-64-68-72-72 nýjar lykkjur, setjið eitt prjónamerki eftir 74-74-80-88-96-96 nýjar lykkjur, nú eru 29-29-32-34-36-36 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar úrtaka við hvert og eitt af 4 prjónamerkjum – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona (til skiptis á undan og á eftir prjónamerki í annarri hverri umferð með úrtöku) með 2 cm millibili 2-4-3-2-4-9 sinnum og með 1 cm millibili 25-21-23-25-21-11 sinnum (= alls 27-25-26-27-25-20 umferðir með úrtökum = 156-164-184-204-236-256 lykkjur. Takið nú frá öll prjónamerkin í stykkinu, nema prjónamerki í byrjun á umferð. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykkinu, þ.e.a.s. setjið eitt prjónamerki eftir fyrstu 39-41-46-51-59-64 lykkjur frá byrjun á umferð og eftir 78-82-92-102-118-128 nýjar lykkjur, nú eru 39-41-46-51-59-64 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki sem var sett í stykkið. Þegar stykkið mælist 49 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með ca 4-3-3-3-3-2 cm millibili alls 3-4-4-4-4-5 sinnum = 168-180-200-220-252-276 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-61-61-61-61-61 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 38-41-45-50-57-63 lykkjur, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) prjónið næstu 76-82-90-100-114-126 lykkjur, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið þær 38-41-45-50-57-63 lykkjur sem eftir eru í umferð = 76-82-90-100-114-126 lykkjur bæði fyrir framstykki og bakstykki (alls 152-164-180-200-228-252 lykkjur). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 54-60-62-68-72-76 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umferðir garðaprjón í hring á sokkaprjóna. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 58-64-66-72-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið sléttprjón hringinn í 1 cm. Fellið nú af miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi af fyrir handveg (þ.e.a.s. fyrstu og síðustu 4 lykkjur í umferð) = 50-56-56-62-64-68 lykkjur fyrir ermi. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg í hvorri hlið = 252-276-292-324-356-388 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-14-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 240-264-280-312-342-376 lykkjur. Prjónið síðan í mismunandi stærðum þannig:
Stærð S: Stærð S er tilbúin, prjónið áfram frá næsta kafla að neðan.
Stærð M: Prjónið sléttprjón í 2 cm, prjónið síðan frá næsta kafla að neðan.
Í stærð L, XL, XXL og XXXL er prjónað sléttprjón í 4-5-7-9 cm, jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir í mismunandi stærðum þannig:
Stærð L: Fækkið um 16 lykkjur með 2 cm millibili alls 1 sinni = 264 lykkjur.
Stærð XL: Fækkið um 12 lykkjur með 2 cm millibili alls 2 sinnum = 288 lykkjur.
Stærð XXL: Fækkið um 18 lykkjur með 2 cm millibili alls 3 sinnum = 288 lykkjur.
Stærð XXXL: Fækkið um 16 lykkjur með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 312 lykkjur.

Allar stærðir:
Prjónið nú mynstur A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, alls 10-11-11-12-12-13 sinnum hringinn í umferð. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka eru 130-143-143-144-144-156 lykkjur í umferð. Prjónið brugðið hringinn í 0-0-0-1-1-1 cm.
Prjónið síðan 1 umferð brugðið þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður – sjá ÚRTAKA-2/ÚTAUKNING-2, til 132-140-144-148-152-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Kjólinn mælist ca 84-86-88-90-92-94 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = þegar þessi umferð er prjónuð þá færist byrjun á umferð um 1 lykkju til baka, þ.e.a.s. byrjun á umferð með stjörnu byrjar þegar 1 lykkja er eftir frá fyrri umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka í umferð, prjónið næstu lykkju slétt. Síðan er byrjun á umferð eins og áður í stykkinu.
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Johanna Liljedahl wrote:

Hej. Jag undrar lite över ökning 1. Ska alla omslag göras på samma varv exempelvis med 2 cm mellanrum 5 ggr eller 2 cm före och 2 cm efter sidomarkeringarna i 5 varv med ett varv slätstickning emellan?

03.04.2024 - 18:38

DROPS Design answered:

Hei Johanna. Nei, skal ikke økes på samme omgang. Om du strikker str. XXXL skal det økes 2 masker i hver side (før og etter merket), det skal økes på hver 2. cm i høyden 5 ganger. Altså, øk i hver side, strikk ca 2 cm i høyden, øk i hver side, strikk ca 2 cm i høyden, øk i hver side, strikk ca 2 cm i høyden osv til du har økt 5 ganger. mvh DROPS Design

08.04.2024 - 13:47

country flag Brigitte PIERRET wrote:

Bonjour et félicitations pour votre site. J'ai un doute sur la technique des diminutions dans le corps de la robe. Dois-je faire une diminution à gauche et une à droite alternativement à chaque marqueur sur le même rang ou dois-je faire tout à gauche sur un rang entier et tout à droite sur le rang de diminutions suivant ?

02.07.2023 - 16:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pierret, vous allez diminuer alternativement avant et après les fils marqueurs autrement dit, la 1ère fois, vous diminuez avant les fils marqueurs, puis la fois suivante vous diminuerez après les fils marqueurs. Continuez ainsi, les diminutions vont se trouver alternativement à droite et à gauche de chaque fil marqueur. Bon tricot!

03.07.2023 - 10:42

country flag Nadine wrote:

Je suis désolée mais je viens de comprendre que je ne prenais pas le diagramme dans le bon sens donc problème résolu pour l'instant.

03.06.2022 - 00:16

DROPS Design answered:

Parfait Nadine, n'hésitez pas si vous avez une autre question. Bonne continuation!

03.06.2022 - 07:20

country flag Nadine wrote:

Bonjour J'ai commencé le diagramme (ligne 2 avec *), décalé 1 maille en arrière et pourtant il me reste 3 mailles à la fin du tour. Après avoir décalé la maille en arrière, j'ai commencé par 6 mailles endroit, 1 jeté et 2 mailles ensemble à l'endroit. Merci de m'expliquer pourquoi il me reste 3 mailles y compris la maille en arrière

02.06.2022 - 23:15

DROPS Design answered:

Bonjour Nadine, au 3ème tour de A.2, vous avez 24 mailles dans chaque A.2, commencez ce tour par la dernière maille du 2ème tour et tricotez: *3 m ens à l'end, 1 jeté, 3 m end, 1 dim, 1 jeté, 4 m end, 1 dim, 1 jeté, 4 m end, 3 m ens à l'end, 1 jeté, 3 m end* répétez de *-* (=il reste 22 m dans chaque A.2). Le tour commence désormais comme avant (avant la maille obtenue avec les 3 m ens à l'end). Bon tricot!

03.06.2022 - 07:17

country flag Nadine wrote:

Bonjour, Est-il possible de prendre des aiguilles circulaires à la place des aiguilles doubles pointes ?

25.05.2022 - 17:13

DROPS Design answered:

Bonjour Nadine, tout à fait, vous pouvez utiliser soit une aiguille circulaire de 40 cm soit une de 80 cm et la technique du magic loop. Bon tricot!

27.05.2022 - 08:54

country flag Winki wrote:

Hallo, bin gerade beim Rumpfteil an den Armausschnitten. Warum werden hier die Maschen stillgelegt und nicht abgekettet, wie auch bei den Ärmeln selbst?

13.05.2020 - 09:10

DROPS Design answered:

Liebe Winki, die Maschen unter den Ärmeln werden abgekettet, die deutsche Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

13.05.2020 - 09:33

country flag Dani wrote:

Hallo, Ich bin gerade an den Abnahmen des Rumpfteils. Leider habe ich nicht verstanden, wie genau ich das bei Größe S machen soll. Zuerst an den 4 Markierungsnadeln jeweils ein mal, dann alle 2 cm zwei mal und dann nach jedem Zentimeter 2 mal? Wann genau wechselt man von 1 auf 2 cm? Danke!

04.05.2020 - 21:32

DROPS Design answered:

Liebe Dani, also die erste Abahme wird bei 20 cm gestrickt (= jeweils 4 Abnahmen) und vor jeder Markierung gestrickt. Bei der nächsten Abnahme werden Sie nach jeder Markierung abnehmen, und so immer weiter abnehmen, dh einmal vor den Markierern und das nächste Mal nach den Markierern und jeweils immer 4 Maschen abnehmen; Sie stricken bis 22 cm (= 2 cm) und stricken 1 Abanhmenrunde, dann 1 cm stricken und 1 Abnahmerunde stricken und so insgesamt 25 Mal (= 25 Mal in jede cm) stricken. Viel Spaß beim stricken!

05.05.2020 - 10:50

country flag Nathalie wrote:

Bonjour.J'entame les diminutions (S).Le calcul des dim. est faux. car on diminue 8 m par rang au lieu de 4 m comme annoncé. Donc, si je pars de 264 mailles, et que je fais 27 dim. au total (soit 216 mailles), il ne me restera que 48 mailles pour continuer la robe! Je ne parviens pas à corriger pour arriver à 156 mailles.merci

21.04.2020 - 14:33

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, on diminue 1 seule maille à chaque marqueur (cf DIMINUTIONS-1 (dos/devant):) autrement dit, on va diminuer 27 fois 4 mailles soit 108 mailles au total, on avait 264 m - 108= il reste 156 mailles. Bon tricot!

21.04.2020 - 14:38

country flag Dung Hau wrote:

Merci tout d’abord pour les explications bien détaillés de jolie modèle.Je suis maintenant aux diminutions pour taille L .Je n’arrive pas à calculer :26 fois x 4 =184 mailles au lieu 104 mailles.Aidez-moi à bien comprendre,S’VP.Merci infiniment.

23.12.2019 - 11:30

country flag Margaux wrote:

Bonjour, tout d'abord merci pour votre réponse précédente qui m'a permis d'aller plus loin dans l'ouvrage. Je suis maintenant bloquée à la diminution 1 : je ne comprend pas ce que signifie diminuer tous les 2 cm et tous les cm et à quoi correspondent le nombre de mailles entre parenthèses. J'espère que ma question est claire et ne vous semble pas idiote. Merci d'avance pour votre réponse.

08.11.2019 - 09:41

DROPS Design answered:

Bonjour Margaux, vous diminuez d'abord pour le bas de la robe tous les 2 cm (2-4-3-2-4-9 fois en fonction de la taille) puis, 25-21-23-25-21-11 fois tous les 1 cm - la 1ère diminution se fait avant chacun des fils marqueurs (= on diminue 4 m sur ce tour), la 2ème se fait après chacun des fils marqueurs (= on diminue 4 m également sur ce tour), et on alterne ainsi les diminutions avant puis après les fils marqueurs. Bon tricot!

08.11.2019 - 10:13