April Showers Jacket |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð síð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-31 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur), mínus kanta að framan (= 8 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir er með með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 2,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 6 næstu með ca 7-7-8-8-8-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 62-62-66-66-70-70 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 8 með 2 þráðum Sky. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá röngu. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið nú mynstur og aukið út jafnt yfir þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) þar til eftir eru 5 lykkjur á prjóni, A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) JAFNFRAMT er aukið út í hverri umferð með ör í mynsturteikningu þannig: ÖR-1: Aukið út um 19-19-21-21-21-23 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 81-81-87-87-91-93 lykkjur. ÖR-2: Aukið út um 26-28-30-30-30-32 lykkjur jafnt yfir = 107-109-117-117-121-125 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÖR-3: Aukið út um 24-28-30-30-30-32 lykkjur jafnt yfir = 131-137-147-147-151-157 lykkjur. ÖR-4: Aukið út um 24-30-30-30-30-32 lykkjur jafnt yfir = 155-167-177-177-181-189 lykkjur. Nú er útaukning í stærð S, M og L lokið. Í stærð XL, XXL og XXXL heldur útaukningin áfram þannig: ÖR-5: Aukið út um 22-30-32 lykkjur jafnt yfir = 199-211-221 lykkjur. Allar stærðir: Þegar öll mynsturteikning A.1 og A.2 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, mælist stykkið ca 18-18-18-22-22-22 cm frá uppfitjunarkanti. Haldið nú áfram hringinn í sléttprjóni og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist ca 19-20-22-24-26-28 cm, aukið út um 23-29-31-19-27-31 lykkjur jafnt yfir = 178-196-208-218-238-252 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 28-30-32-34-38-41 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 37-42-44-45-47-48 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), prjónið næstu 48-52-56-60-68-74 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 37-42-44-45-47-48 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 28-30-32-34-38-41 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-124-132-144-160-176 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 12-12-8-8-8-8 cm millibili alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 128-136-148-160-176-192 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32 cm, aukið út um 26-30-30-34-38-38 lykkjur jafnt yfir = 154-166-178-194-214-230 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í einu númeri grófari prjóna þegar fellt er af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 37-42-44-45-47-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 9 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-48-50-53-55-58 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 3-3-3-4-4-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum eftir mismunandi stærðum þannig: Stærð S: Fækkið lykkjum til skiptis með 4 og 5 cm millibili alls 8 sinnum. Stærð M: Fækkið lykkjum með 3 cm millibili alls 10 sinnum. Stærð L: Fækkið lykkjum með 3 cm millibili alls 10 sinnum. Stærð XL: Fækkið lykkjum til skiptis með 2 og 3 cm millibili alls 11 sinnum. Stærð XXL: Fækkið lykkjum til skiptis með 2 og 3 cm millibili alls 11 sinnum. Stærð XXXL: Fækkið lykkjum með 2 cm millibili alls 12 sinnum. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar til loka eru 27-28-30-31-33-34 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 40-38-37-35-33-32 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðara hálsmáls og lengra berustykkis). Aukið nú út um 5-4-6-5-7-6 lykkjur jafnt yfir = 32-32-36-36-40-40 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í einu númeri grófari prjóna þegar fellt er af. Ermin mælist ca 44-42-41-39-37-36 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Tanja Pfeiffer wrote:
LiebesTeam , ich habe diese Jacke mit einer wunderbaren kuscheligen Wolle von Lana Grossa gestrickt. Die Anleitung hat genau gestimmt. Ich habe die Zunahmen außerhalb des Musters nicht mit einem Umschlag,sondern aus dem darunterliegenden Querfaden gestrickt. Das ist noch unauffälliger . Vielen Dank eure Tanja
03.02.2023 - 20:59Hb wrote:
I don't see the diagram in this pattern
09.07.2022 - 20:19DROPS Design answered:
Hi Hb, All the diagrams and the measurement chart are at the bottom of the pattern. Happy knitting!
11.07.2022 - 06:58Rosemarie Olivebring wrote:
Inkluderar jag antal maskor med zde 8 framkantmaskorna i de antal maskor ni nämner vid pilökningen. Det står tex öka 30 maskor på 151 maskor jämnt fördelat. Inkl. Det framkantsmaskorna?
14.12.2021 - 04:34DROPS Design answered:
Hej Rosemarie. Du ska inte göra ökningar på framkantmaskorna. Mvh DROPS Design
14.12.2021 - 11:11Soledad Worthington wrote:
Hola! quería saber a qué se refieren con 2 hilos, quieres decir que hay que tejer con dos hebras de lana? Gracias,
09.08.2020 - 18:58DROPS Design answered:
Hola Soledad. Esta chaqueta se trabaja con 2 hilos/hebras de lana al mismo tiempo.
19.08.2020 - 18:10Mara wrote:
Ho provato a realizzare questo modello in tg. XL, ma credo ci sia un’errore nel calcolo delle maglie: la spiegazione dice di avviare 66 maglie e allo sprone diagramma A1 freccia 1 aumentare 21 maglie ma 66+21= 87 maglie non 76 come è scritto nella spiegazione. Per favore controllate e fatemi sapere. Grazie
17.09.2019 - 17:53DROPS Design answered:
Buongiorno Mara. Abbiamo corretto il numero delle maglie. Gli aumenti sono 21 e il numero delle maglie dopo i primi aumenti sono 87. Buon lavoro!
17.09.2019 - 18:18Marianne Steen wrote:
Jeg ligger inde med en del Karisma kan jeg bruge 2 tråder af den?
18.08.2019 - 10:32DROPS Design answered:
Hej. Karisma och Sky tillhör båda garngrupp B så du kan byta till Karisma om du önskar. Tänk bara på att beräkna riktigt garnåtgång och att stickfastheten ska stämma. Lycka till!
19.08.2019 - 11:56Mona Granath wrote:
Hej! Vill gärna sticka denna kofta, men jag tål inte garnet Sky, som innehåller ull Har ni förslag på annat garn? Enligt garnkonverteraren finns inte garnet Belle med som alternativ (?)/Mvh Mona
21.03.2019 - 15:29DROPS Design answered:
Hej. Vi håller fortfarande på att utveckla konverteraren så därför finns inte alla alternativ med ännu. Du kan ersätta Sky med ett annat garn i garngrupp B (som då också stickas med 2 trådar), t.ex. DROPS Belle. Tänk bara på att räkna om garnmängden, du hittar hur du gör det här, samt att få rätt stickfasthet. Lycka till!
26.03.2019 - 13:20Arja Nielsen wrote:
Olen tekemässä tätä juuri nyt. Etu-ja takakappaleosiossa neuvotaan leventämään 2x2 silmukkaa koossa L ensin 4 cm:n kohdalla ja lisäksi vielä neljä kertaa 8 cm:n välein. Näistä tulee jo 36 cm. 32 cm:n kohdalla pitäisi kuitenkin jo lisätä 32 silmukkaa ja aloittaa resori. Onko ohjeessa vai sen tulkitsijana vikaa?
06.03.2019 - 12:27DROPS Design answered:
Hei, nämä lisäykset tehdään yhteensä 4 kertaa, eli ensimmäinen lisäyskerros + vielä 8 cm välein 3 kertaa.
06.04.2019 - 14:07