DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Mellow Monday

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað með áferð og tilfærslum á framstykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-25
DROPS Design: Mynstur ml-026
Garnflokkur D eða A + A + A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
250-250-300-300-350-350 g litur 03, perlugrár

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með áferð (A.1/A.2) = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið fram að miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið miðju lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í áferð (A.1/A.2).

ÚTAUKNING-2:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni.

ÚRTAKA-1:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni: Prjónið 2 lykkjur slétt saman
Fækkið um 1 lykkju á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚRTAKA-2:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 35 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 11,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 10. og 11. hverja lykkju og 11. og 12. hverja lykkju slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin. Framstykki og bakstykki er prjónað neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 83-87-95-99-107-115 lykkjur á hringprjón 7 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju í umferð (= miðjulykkja), það eru 41-43-47-49-53-57 lykkjur hvoru megin við prjónamerki. Prjónamerki fylgir með út stykkið. Prjónið mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 fram að miðjulykkju, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja og er prjónuð slétt frá réttu og brugðið frá röngu til loka), prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona, JAFNFRAMT í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju – sjá ÚRTAKA-1 og ÚTAUKNING-1. Fækkið og aukið út lykkjum svona í 4. hverri umferð uppúr í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-35-36-37-37 cm meðfram hlið á framstykki er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður fram að miðjulykkju og setjið þessar lykkjur á þráð (= 41-43-47-49-53-57 lykkjur fyrir vinstri öxl). Fellið af næstu lykkju (= miðjulykkja) = 41-43-47-49-53-57 lykkjur fyrir hægri öxl. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

HÆGRI ÖXL:
= 41-43-47-49-53-57 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg í 4. hverri umferð 6-6-7-7-7-8 sinnum = 35-37-40-42-46-49 lykkjur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls – sjá ÚTAUKNING-2 og fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við hlið. Aukið út og fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum (lykkjufjöldinn er sá sami). Prjónið nú stuttar umferðir – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (rétta): Snúið og prjónið til baka.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru fleiri á prjóni en í fyrri umferð (= 10 lykkjur), herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (rétta): Snúið og prjónið til baka.
Endurtakið umferð 3 og 4 og snúið við þegar eftir eru 4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð 4-4-4-6-6-7 sinnum til viðbótar (= alls 5-5-5-7-7-8 sinnum) og síðan þegar eftir eru 3-3-3-3-5-5 lykkjur fleiri en í fyrri umferð 3-3-4-2-2-2 sinnum. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu yfir allar lykkjur í umferð þar sem fækkað er um 3-2-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 32-35-37-39-43-45 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður mælt meðfram hlið.

VINSTRI ÖXL:
= 41-43-47-49-53-57 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg í 4. hverri umferð 6-6-7-7-7-8 sinnum = 35-37-40-42-46-49 lykkjur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls – sjá ÚTAUKNIGN-2 og fækkað er um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Aukið út og fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum (lykkjufjöldi er sá sami). Prjónið nú stuttar umferðir – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (ranga): Snúið og prjónið til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til eftir eru 4 lykkjur fleiri en á prjóni en í fyrri umferð, herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Snúið og prjónið til baka.
Endurtakið umferð 3 og 4 og snúið þegar eftir eru 4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð 4-4-4-6-6-7 sinnum til viðbótar (= alls 5-5-5-7-7-8 sinnum) og síðan þegar eftir eru 3-3-3-3-5-5 lykkjur fleiri en í fyrri umferð 3-3-4-2-2-2 sinnum. Prjónið 1 umferð til baka frá réttu yfir allar lykkjur í umferð þegar fækkað er um 3-2-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-2 = 32-35-37-39-43-45 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður meðfram hlið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 77-83-89-93-101-107 lykkjur á hringprjón 7 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm. Setjið nú eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki (merkir handveg og er notað síðar fyrir frágang). Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Prjónið nú garðaprjón yfir miðju 25-25-27-27-27-29 lykkjur í umferð. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur, fellið af miðju 13-13-15-15-15-17 lykkjur fyrir hálsmáli (nú eru 6 lykkjur með garðaprjóni í hvorri hlið á hálsmáli) og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig = 32-35-37-39-43-45 lykkjur á hvorri öxl. Haldið síðan áfram með mynstur, 6 lykkjur garðaprjón við hálsmál og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum. Ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.
Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður meðfram hlið.

ERMI:
Fitjið upp 41-43-47-49-51-55 lykkjur á hringprjón 7 með Melody. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 14.-12.-10.-8.-7.-5. hverri umferð alls 5-6-7-7-8-9 sinnum = 31-31-33-35-35-37 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 43-42-41-40-38-36 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Setjið eitt prjónamerki 15-16-17-18-19-20 cm frá öxl og niður í hvorri hlið á framstykki (merkir handveg). Saumið ermar í við miðju á fram- og bakstykki á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við uppfitjunarkant á ermum. Saumið saum undir ermum og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Claudia wrote:

Hallo, fehlt in der Beschreibung das Diagramm? Ich kann hier nur die Erklärung für das Diagramm finden.

18.01.2024 - 20:58

country flag Patricia wrote:

Hallo liebes drops team Ich habe die rechte Schulter gestricht wie geschrieben, nur leider scheint was schief gelaufen zu sein, denn durch die verkürzten reien ist die abschluss kante an der Ärmel Seite höher als am Halsausschnitt, ist das so gewollt oder genau anders rum wie es sein sollte? LG Patricia

02.02.2023 - 00:33

DROPS Design answered:

Liebe Patricia, sollte Ihre Maschenprobe auch in der Höhe stimmen und wenn Sie die Anleitung genau gefolgt haben (dh mit allen Ab- und Zunahmen und verkürzten Reihen), dann sollte es schon ok sein. Im Zweifelsfall zeigen Sie Ihr Strickstück Ihr Wollladen (auch ein Foto können Sie per E-Mail schicken), so kann man Ihnen dort am besten helfen. Viel Spaß beim stricken!

02.02.2023 - 09:46

country flag Elin Låby wrote:

Vad betyder det att man ska strama tråden? (höger och vänster axel)

26.11.2022 - 16:08

DROPS Design answered:

Hej Elin, du trækker bare lidt i tråden du strikker med, så den ikke bliver for løs :)

30.11.2022 - 14:34

country flag Inge wrote:

Hallo, ich verstehe die Zahlenkombinationen bei den verkürzten Reihen nicht. bedeuten diese, dass ich immer vom Rand aus mehr Maschen stilllegen muss, also 6, 10, 14, 18, usw? und was bedeuten die Zahlen in den Klammern? und was defeuted die Anweisung: „wenn noch 3-3-3-3-5-5 Maschen mehr übrig sind, als beim letzten Mal“ + der Folgesatz ????? das ist sehr verwirrend, den Teil der Anleitung verstehe ich gar nicht mehr. Vielen lieben dank für die Aufklärung 😉,

17.01.2021 - 11:04

DROPS Design answered:

Liebe Inge, genauso werden die verkürzten Reihen gestrickt: es soll am Ende der Reihen bleiben: zuerst 6, dann 10, dann 14, 18..; noch 4 -6 oder 7 Mal (= ingesamt 5, 7 oder 8 Mal), je nach der Größe. Dann stricken Sie bis 3 oder 5 M mehr als davor bleibt (= dh jetzt nicht mehr 4 M weniger stricken sonder entweder 3 order 5 je nach der Größe). Viel Spaß beim stricken!

18.01.2021 - 11:27

country flag Inge wrote:

Hallo Drops Team, toller Pulli, wunderbares Muster, nur etwas schwierige Anleitung 😉. Ich bin an der rechten Schulter und muss an einer „Rückreihe“ verkürzte Reihen anfagen. Was definiert die Rückreihe? an welcher Seite Hals oder Armausschnitt soll der Effekt der verkürzung sein? vielen Dank

07.01.2021 - 21:16

DROPS Design answered:

Liebe Inge, eine Rückreihe wird von der Inneseite/Rückseite gestrickt - beim rechten Schulter Vorderteil sind die Rückreihe von Armausschnitt bis Hals (Hinreihen sind vom Hals bis Armausschnitt gestrickt). Viel Spaß beim stricken!

08.01.2021 - 07:33

country flag Frieda wrote:

Hallo liebes Drops Team, leider ist mir - trotz der Tips nicht klar geworden, wie ich die rechte Schulter stricke. Beim Halsausschnitt nimmt man doch ab, nicht zu...wie beschrieben. Und für welchen Armausschnitt muss ich abnehmen- auf der Abbildung kann ich davon nichts erkennen. Es fällt mir schwer die Anleitung zu verstehen. vielen Dank

30.12.2020 - 23:19

DROPS Design answered:

Liebe Frieda, dieses Modell hat einen ungewöhnlichen Form, deshalb muss man hier stricken, genauso wie beschrieben, damit der Halsausschnitt schön aussieht (den haben ich selber gestrickt und er ist wirklich schön geworden), stricken Sie mit Zunahmen und Abnahmen sowie verkürzten Reihen genauso wie erklärt. Viel Spaß beim stricken!

04.01.2021 - 13:17

country flag Danièle Berry wrote:

Pouvez vous me confirmer que le devant est commencé par le côté. car je ne comprends pas les explications du devant qui dit de diminuer de chaque côté. alors que pour le bas du pull je dois diminuer et pour les épaules je dois augmenter, Pouvez-vous m'aider

26.11.2020 - 14:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berry, le devant se tricote de bas en haut, vous décalez les côtes de chaque côté en diminuant 1 m de chaque côté et en augmentant au milieu - Quand vous tricotez les épaules, suivez bien les indications qui vont vous permettre de conserver le côté encolure "droit" (cf photo) tout en formant l'emmanchure de chaque côté). C'est une construction un peu moins conventionnelle mais vous verrez le résultat se former en suivant bien les indications. Bon tricot

26.11.2020 - 16:51

country flag Giuseppina Piemonte wrote:

Posso usare i ferri normali?

11.11.2020 - 00:41

DROPS Design answered:

Buongiorno Giuseppina, il maglione è lavorato in piano, quindi può tranquillamente usare i ferri dritti. Buon lavoro!

13.11.2020 - 13:42

country flag Andréa wrote:

Bonjour, Les explications des rangs raccourcis ne sont pas très claires . Phrases trop compliquées peut être ? 3 fois pour 3 mailles en plus ?,? merci

14.11.2019 - 16:36

DROPS Design answered:

Bonjour Andrea, vous laissez d'abord 6 mailles non tricotées en fin de rang (sur l'envers pour l'épaule droite), puis 4 mailles en plus (= 10 mailles au total), puis encore 4 mailles en plus (= 14, 18, 22, etc... mailles au total), et enfin vous laissez 3 m de plus non tricotées en fin de rang (le nombre de mailles non tricotées en fin de rang augmente ainsi de 3 m tous les rangs sur l'envers). Bon tricot!

15.11.2019 - 07:49

country flag Jeanette wrote:

Ik heb n vraag over de voorkant van de rechter en linker schouder. Klopt het dat de buitenkant van de schouder hoger is dan de binnenkant (bij de hals)? Of moet het juist andersom zijn? Dat is me niet duidelijk.

10.10.2019 - 15:44

DROPS Design answered:

Dag Jeanette,

Door het meerderen en minderen in het patroon ontstaat er een diagonaal patroon waardoor er een schuine lijn in de schouder ontstaat, waarbij de schouder aan de kant van het armsgat hoger is. Dit wordt gecompenseerd door verkorte toeren te breien, zoals aangegeven, zodat wanneer er afgekant wordt wanneer het schouder klaar is, je een rechte schouderlijn hebt, net als op het achterpand.

11.10.2019 - 19:05