Angelika Musiolik skrifaði:
Leider habe ich Probleme die Ärmel anzusetzen. Gibt es dafür ein Video? Liebe Grüße Angelika
15.03.2025 - 09:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Musiolik, in diesem Video zeigen wir, wie die Ärmel für die Passe eingesetzt werden; für die ersten Runden können Sie mehrere Rundnadel benutzen oder einfach Magic Loop stricken; nach einpaar Runden wird es einfacher sein. Viel Spaß beim Stricken!
17.03.2025 - 07:21
Christine G skrifaði:
Bei der Anleitung für die Ärmel ist ein Fehler! Wenn ich beidseitig je 19 Maschen aufnehme, dann sind es im Ganzen 98 Maschen, nicht 90… Lg Chtistine G
03.01.2025 - 18:38
Wigdis Bye skrifaði:
Vil ha mønster
13.09.2024 - 18:33
Christine PRADEL skrifaði:
Bonjour, j'ai juste besoin d'une petite mise au point. Dans la légende des diagrammes, vous dites que le triangle noir correspond à : glisser 1 m à l'endroit, tricoter 2 m ensemble à l'endroit et passer la m glissée par dessus les m tricotées ensemble. ok. Classique. Sauf que dans les commentaires (21/01/2020 Mme Marterer) vous dites q ce serait plutôt : glisser 2 m ensemble, tricoter la 3eme à l'endroit puis rabattre les 2 m glissées sur la 3eme. Je dois faire quoi ? Merciiii bcp
19.04.2024 - 12:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pradel, il semble que la réponse de 2020 était erronée, conformément aux explications originales, on a bien ici un surjet double: on glisse 1 m à l'endroit, on tricote les 2 m suivantes ensemble à l'endroit et on passe la maille glissée par-dessus les mailles tricotées ensemble. Bon tricot!
19.04.2024 - 12:37
Jan Steele skrifaði:
I have joined the sleeves to the body of the garment (second size 360 stitches. I am about to commence the pattern at \"Work A.3 in the round..... When A.3 has been completed thee ae 280 stiches on the needle.\" \r\nAs I read A.3 graph I can\'t see where I am required to make reductions. Can you please explain the process as in A.4 I can clearly see reductions in stitches .\r\nregards Jan
20.12.2023 - 11:08DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Steele, if you look at diagram A.3 you start with 18 sts and work the lace pattern (2 yarn overs compensated by one double decrease in the middle of diagram), but on row 15 and on next ot last row in diagram you will only decrease without making the both yarn overs, this means the number of sts in each A.3 decrease first to 16 sts then 14 sts in each A.3 x 20 repeats in 2nd size = 280 sts. Work then 20 repeats of A.4 (14 sts), and again decrease just as shown in diagram on rows 9, 17 and 23 , there are now 7 sts in each A.4 x 20 repeats = 140 sts left. Happy knitting!
20.12.2023 - 16:03
Margaret skrifaði:
Hi, Prachtige sweater! ik begrijp niet hoe er word er geminderd in de pas van 432 naar 336 steken? Patron drops 195-22
19.12.2023 - 14:46DROPS Design svaraði:
Dag Margaret,
Als je het telpatroon gewoon volt, minder je automatisch, want daarin zijn de minderingen al opgenomen.
20.12.2023 - 18:57
Hannie Weststrate skrifaði:
Klopt het dat A2 wel op de mouwen maar niet op het lijf gebreid wordt?
01.03.2023 - 14:17DROPS Design svaraði:
Dag Hannie,
Ja, dat klopt; A.2 wordt alleen op de mouwen gebreid.
01.03.2023 - 20:22
Golden Fairy 195-22 skrifaði:
Eg lurer på om det er rett i oppskriften. På armen så står det at ein skal strikka vrangbord, men etter vrangborden så skal ein fella 10 maskar. Er det rett? Ein bruker jo heller å øke maskar då. Mitt spørsmål
24.10.2022 - 11:04DROPS Design svaraði:
Hei Golden Fairy, Vi anbefaler flere masker i vrangborden slik at den ikke er stram. Disse er felt av når man begynner på resten av ermet. God fornøyelse!
25.10.2022 - 07:11
Susanne skrifaði:
Hej jeg er i gang med at strik model nr 097 i Lima garn jeg kan ikke få mønste til at passer jeg har pille op i gen igen jeg slut med to m hvor jeg skal have 4 m til bage
19.06.2020 - 08:01DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Vi skal hjlpe deg så god vi kan, men hvilken størrelse strikker du og hvor i diagrammet mener du mønstret ikke passer? mvh DROPS design
22.06.2020 - 11:18
LOPEZ Marie Claude skrifaði:
Je ne vois pas à quel endroit tricoter le diagramme numéro 2 ?
07.03.2020 - 18:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lopez, le diagramme A.2 se tricote en haut de la manche, après avoir ajusté le nombre de mailles à 76-102 (cf taille). Bon tricot!
09.03.2020 - 10:52
Golden Fairy#goldenfairysweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-22 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 216 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 54. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 53. og 54. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 54. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki í hlið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt. Síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað í hring til loka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 196-216-238-252-280-300 lykkjur á hringprjón 4 með Lima. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 14-18-17-21-20-25 mynstureiningar með 14-12-14-12-14-12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-0-6-0-4-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 196-216-232-252-276-300 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 98-108-116-126-138-150 lykkjur (= í hliðum). Látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota þau þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 8-8-8-9-9-9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 184-204-220-240-264-288 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 31-30-32-34-33-35 cm (mælt frá neðst í bogum í A.1). Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 2-3-3-3-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 88-96-104-114-122-132 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út um 2-12-4-12-4-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING (= framstykki), fellið af 4-6-6-6-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 88-96-104-114-122-132 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út um 2-12-4-12-4-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= bakstykki), fellið af þær 2-3-3-3-5-6 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Nú eru 90-108-108-126-126-144 lykkjur á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar eins og útskýrt er að neðan. ERMI: Fitjið upp 48-52-56-56-60-60 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Lima. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar fækkað er um 6-8-10-10-10-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-8-11-11-9-9 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Það á að nota prjónamerkið þegar auka á út mitt undir ermi. Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-1½-1½-1½-1½ cm millbili alls 13-13-19-19-19-19 sinnum = 68-70-84-84-88-90 lykkjur (skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar aukið hefur verið nægilega út fyrir ermum). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-38-38-38-36-36 cm (útaukningu mitt undir ermi á nú að vera lokið og það er styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 76-78-96-96-100-102 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2-3-3-3-5-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 72-72-90-90-90-90 lykkjur (= 4-4-5-5-5-5 mynstureiningar með 18 lykkjum) og endið með 2-3-3-3-5-6 lykkjur í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til síðasta umferð í A.2 er eftir. Síðasta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 2-3-3-3-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu umferð í A.2 yfir næstu 72-72-90-90-90-90 lykkjur og fellið af þær 2-3-3-3-5-6 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Ermin mælist ca 44-42-42-42-40-40 cm ofan frá og niður. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 324-360-396-432-432-468 lykkjur í umferð. Prjónið A.3 hringinn (= 18-20-22-24-24-26 mynstureiningar með 18 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 252-280-308-336-336-364 lykkjur í umferð. Prjónið A.4 hringinn (= 18-20-22-24-24-26 mynstureiningar með 14 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 126-140-154-168-168-182 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 30-40-50-56-56-62 lykkjur jafnt yfir = 96-100-104-112-112-120 lykkjur eftir í umferð. Berustykkið mælist nú ca 19-22-22-22-25-25 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar voru settar saman. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldenfairysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.