Lehmann Anne skrifaði:
Liebes Team ich stricke im moment das tolle Tuch von euch nun bin ich an der neunten Reihe und komme nicht weiter kann mir bitte jemand helfen das wäre toll lg
03.02.2025 - 06:35
Justyna skrifaði:
Chciałam skrócić szal i po rzędzie 7 zrobić od razu 9 czy jest taka możliwość? Czytając wzór mam wrażenie, że nie zgadza mi się liczba oczek - 18 dodanych przerabiam na lewo, później na kolejnych 36 robię pierwszy z liści C ? Mam wtedy za mało o 18 oczek. Czy nie ma możliwości skrócenia szala, czy coś źle rozumiem?
25.11.2023 - 21:39DROPS Design svaraði:
Witaj Justyno, aby skrócić szal, po 7-mym rzędzie musisz wykonać rząd 10 i kolejne, aż do końca. Pozdrawiamy!
30.11.2023 - 08:49
Martina Beck skrifaði:
Könnten Sie ein kurzes Video zur Anleitung dieses Schals drehen? Ich verstehe die Technik nicht, wie man die Blätter einzeln strikt und dann ansetzt.
23.10.2023 - 12:33DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Beck, dann kann Ihnen sicher dieses Video helfen, wir zeigen, wie die ersten Blätter gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!
24.10.2023 - 08:44
Justyna skrifaði:
Czy można dodać 1 rząd więcej po środku (między 5 a 8 rzędem), żeby szal wyszedł dłuższy ? Mam 285g włóczki (A)(ok.1000m) czy to wystarczy?
21.10.2023 - 14:59DROPS Design svaraði:
Witaj Justyno, można tak zrobić. Czy wystarczy włóczki, powinno, ale trudno to przewidzieć. Pozdrawiamy!
23.10.2023 - 08:40
Stela skrifaði:
If I wanted to knitting a stole narrower for two leaves,, what would I have to do? I didn’t start yet, so I can’t wrap my mind around it.
16.01.2023 - 21:09DROPS Design svaraði:
Dear Stela, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, however I guess you could here just adjust the number of leaves required, for ex work row 1 and 2 as described, but from row 3 working then only 3 leaves to row 10 (only 1). Happy knititng!
17.01.2023 - 10:08
María skrifaði:
Existe una errata en el patrón en Español, se necesitan agujas de 4mm pero en el montaje indica 3.5mm, entiendo que lo correcto son 4mm. ESTOLA: Montar 36 puntos con agujas circulares de 3.5 mm y Delight. Gracias.
13.01.2023 - 18:38DROPS Design svaraði:
Hola María, sí, se trata de una errata, son agujas de 4mm. La corregiremos lo antes posible, gracias.
15.01.2023 - 11:15
Merete skrifaði:
Super sjov opskrift. Men jeg er nået til blad E, og jeg er usikker på måden det skal strikkes. Når jeg læser opskriften, synes jeg det virker som om, jeg skal strikke to blade direkte ovenpå hinanden (det er de to første sætninger, der forvirrer mig ). Er det korrekt læst? Det virker nemlig lidt mystisk, synes jeg , da resten af mønstret har bladene forskudt.
16.07.2020 - 06:32DROPS Design svaraði:
Hej Merete, jo du ser i diagram A.2 nederst at efter række 9 hvor du strikker E, fortsætter du med 10 som også er E. God fornøjelse!
30.07.2020 - 14:46
Mp 54 skrifaði:
Bonjour, mes feuilles sont bombées au milieu, alors que sur le modèle, elles paraissent plates Pouvez me dire où est mon erreur? Merci
09.03.2019 - 00:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Mp54, il est possible que vous vous soyez trompée dans les rangs raccourcis de ces feuilles, quand elles sont terminées, elles doivent être toutes plates. N'hésitez pas à montrer votre ouvrage (même en photo par mail) à votre magasin, il lui sera plus facile de vous aider. Bon tricot!
11.03.2019 - 09:27
Mp 54 skrifaði:
Bonjour, mes feuilles sont bombées au milieu, alors que sur le modèle, elles paraissent plates Pouvez me dire où est mon erreur? Merci
08.03.2019 - 20:44
Anette skrifaði:
Eine sehr schöne Anleitung, die ich schon zweimal mit der angegebenen Wolle gestrickt habe. Leider benötigte ich bei jeder Version etwas mehr als 250 g Wolle.
22.11.2018 - 11:45
Forest Fling#forestflingshawl |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað sjal með blöðum úr DROPS Delight. Stykkið er prjónað í garðaprjóni með stuttum umferðum.
DROPS 196-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning A.1 er lesin frá vinstri til hægri í öllum umferðum frá röngu. Í öllum umferðum frá réttu er mynsturteikning lesin frá hægri til vinstri. Mynsturteikning A.2 sýnir blöðin, mynsturteikningin sýnir einnig stefnu og röð á umferðum. TILLÖGUR UM LITI: Til þess að blanda litum og brjóta upp mynstur með litum jafnóðum þá er hægt að skipta um dokku eða að taka þráð frá hinum endanum á dokkunni í hverri umferð með blöðum. Skiptið um lit áður en prjónuð er hver BYRJUNAR UMFERÐ 1 og BYRJUNAR UMFERÐ 2 ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, prjónað er frá öðru horninu og upp og út á hlið með röndum og mismunandi fjölda blaða. Prjónaðar eru stuttar umferðir yfir blöð í hvert skipti, allt stykkið er prjónað með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Notið prjónamerki í stykkið, þessi prjónamerki eru sett á milli og mitt í blöðin jafnóðum í stykkið. Prjónamerkin sitja á prjóninum og koma til með að fylgja stykkinu. Prjónamerkin gera vinnuna auðveldari þegar prjóna á blöðin. Lesið einnig TILLÖGUR UM LITI í útskýringu að ofan. SJAL: Fitjið upp 36 lykkjur á hringprjón 4 með Delight. Prjónið síðan þannig: RÖÐ 1: Prjónið BLAÐ A þannig: BLAÐ A: Prjónið mynsturteikningu A.1, fyrsta umferð í mynsturteikningu er frá röngu – sjá útskýringu að ofan undir mynstur. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina = 1 blað. Fyrsta röðin með blöðum er nú tilbúin, snúið stykkinu. Í skiptingunni á milli 1. og 2. raðar með blöðum er prjónuð BYRJUNAR UMFERÐ 1 þannig: BYRJUNAR UMFERÐ 1: Frá réttu: Fellið af fyrstu 18 lykkjur slétt, prjónið 18 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér og fitjið upp 18 nýjar lykkjur í lok umferðar frá röngu. Snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu, setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér. Fitjið upp 36 nýjar lykkjur í lok umferðar. Nú er þetta tilbúið þannig að hægt er að prjóna næstu röð með blöðum. Snúið stykkinu. RÖÐ 2: Prjónið BLAÐ B, C og D þannig: BLAÐ B: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir fyrstu 36 lykkjur á prjóni (fram að fyrsta prjónamerki á prjóni séð frá röngu). Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina (nú hefur verið prjónað aftur fram að sama prjónamerki). Snúið stykkinu, prjónið 36 lykkjur slétt frá réttu. Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur slétt frá röngu, setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér, snúið ekki stykkinu, næsta blað er prjónað yfir næstu 36 lykkjur. BLAÐ C: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir næstu 36 lykkjur á prjóni (fram hjá prjónamerki og fram að næsta). Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina. Snúið stykkinu og prjónið 36 lykkjur slétt frá réttu. Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur slétt frá röngu (fram að prjónamerki sem er staðsett mitt í einu blaði), snúið ekki stykkinu, næsta blað er prjónað yfir næstu 36 lykkjur. BLAÐ D: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir síðustu 36 lykkjur á prjóni (fram hjá síðasta prjónamerki og út umferðina). Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina. Nú hafa verið prjónuð 3 blöð og 2. röð með blöðum er nú tilbúin. Prjónið BYRJUNAR UMFERÐ 1 – sjá útskýringu að ofan, í skiptinguna á milli 2. og 3. raðar með blöðum. RÖÐ 3: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 3 sinnum á breiddina, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 5 blöð í röðinni) og prjónið BYRJUNAR UMFERÐ 1 í skiptinguna á milli 3. og 4. raðar með blöðum. RÖÐ 4: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 5 sinnum á breidd, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 7 blöð í röðinni) og prjónið BYRJUNAR UMFERÐ 1 í skiptinguna á milli 4. og 5. raðar með blöðum. RÖÐ 5: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 7 sinnum á breidd og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 9 blöð í röðinni). ATH! Nú á ekki lengur að prjóna BYRJUNAR UMFERÐ 1, nú á að prjóna BYRJUNAR UMFERÐ 2 í skiptinguna á milli 5. og 6. raðar með blöðum þannig: BYRJUNAR UMFERÐ 2: Frá réttu: Fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur út umferðina, setjið 1 prjónamerki á prjóninn þannig: Fitjið upp 36 nýjar lykkjur í lok umferðar og setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér. Nú er þetta tilbúið þannig að hægt er að prjóna áfram næstu röð með blöðum héðan. Snúið stykkinu. RÖÐ 6: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐA C alls 7 sinnum á breiddina, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 9 blöð) og prjónið BYRJUNAR UMFERÐ 2 í skiptinguna á milli 6. og 7. raðar með blöðum. RÖÐ 7: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 7 sinnum á breidd, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 9 blöð) og prjónið BYRJUN Á UMFERÐ 2 í skiptinguna á milli 7. og 8. raðar með blöðum. RÖÐ 8: Prjónið BLAÐ B yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 7 sinnum á breidd, prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 9 blöð) og prjónið BYRJUN Á UMFERÐ 2 í skiptinguna á milli 8. og 9. raðar með blöðum. RÖÐ 9: Prjónið BLAÐ E þannig: BLAÐ E: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir fyrstu 36 lykkjur (fram að fyrsta prjónamerki á prjóni séð frá röngu). Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina (nú hefur aftur verið prjónað fram að sama prjónamerki). Snúið stykkinu. Prjónið 36 lykkjur slétt frá réttu. Snúið stykkinu, fellið af 18 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu, setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér og fitjið upp 18 nýjar lykkjur frá réttu. Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur frá röngu. Snúið ekki stykkinu þar sem næsta blað er prjónað yfir næstu 36 lykkjurnar héðan. Prjónið BLAÐ C alls 7 sinnum á breiddina og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjurnar (= 9 blöð í röðinni). Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu. RÖÐ 10: Prjónið BLAÐ E yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 5 sinnum á breiddina og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 7 blöð í röðinni). Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu. RÖÐ 11: Prjónið BLAÐ E yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C alls 3 sinnum á breiddina og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 5 blöð í röðinni). Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu. RÖÐ 12: Prjónið BLAÐ E yfir fyrstu 36 lykkjur, prjónið BLAÐ C 1 sinni á breiddina og prjónið BLAÐ D yfir síðustu 36 lykkjur (= 3 blöð). Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 36 lykkjur slétt frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu. RÖÐ 13: Prjónið BLAÐ E yfir síðustu 36 lykkjur, en þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru allar lykkjur felldar af frá réttu. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestflingshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.