Annika Johansson wrote:
Jag undrar om diagram A1B och A2B. I diagrammet ser det ut som en del avigmaskor blir rätmaskor och tvärsom på andra varvet. Men i texten står det att man ska sticka rätmaskor på rätmaskor och avigmaskor på avigmaskor. Jag blir lite förvirrad. Vilket är rätt?
28.10.2018 - 19:15DROPS Design answered:
Hei Annika. Der det strikkes etter diagram skal du følge diagrammet som anvist. Når det står i oppskriftsteksten at du skal strikke rett over rett, vrang over vrang og rille over rille gjelder dette de maskene som ikke inngår i noen av diagrammene. Når det er sagt strikkes det for det meste rett over rett og vrang over vrang 2. omgang i A.1b og A.2b - det ser ikke sånn ut pga fellingene 1. omgang. Men du begynner 2. omgang på samme måte som du alltid har gjort. Det er bare at annenhvert parti med 2 vranagmasker har blitt til 1 vrangmaske. God fornøyelse
29.10.2018 - 09:27
Green Luck Cardi |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með gatamynstri, laskalínu og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-12 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu lykkju frá kanti. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 4, 12, 20, 28, 35, 42 og 49 cm M: 4, 12, 20, 28, 36, 44 og 51 cm L: 4, 12, 20, 28, 36, 44 og 53 cm XL: 4, 12, 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm XXL: 4, 12, 19, 27, 35, 43, 50 og 57 cm XXXL: 4, 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 59 cm ATH: Síðasta af þessum 7-7-7-8-8-8 hnappagötum er fellt af í kanti í hálsmáli. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 6 lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir á kanti á ermum): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 10,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-3 (jafnt yfir á berustykki): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 4,45. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 6 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (þ.e.a.s. fækkið hvoru megin við A.5) = 8 lykkjur færri í hveri úrtökuumferð. Fækkið lykkjum svona á undan A.5: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.5, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona á eftir A.5: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Kantur á ermum er prjónaður í hring á hringprjóna. Síðan er fram- og bakstykki og kantur á ermum sett inn á sama hringprjón og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 286-314-334-374-414-446 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið A.1A (= 33-33-33-45-45-45 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 52-59-64-68-78-86 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.2A (= 33-33-33-45-45-45 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, en fellið af fyrir 1 HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1B (= 33-33-33-45-45-45 lykkjur sem fækka í 29-29-29-39-39-39 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 38-38-38-50-50-50 lykkjur í umferð og fækkið jafnframt um 40-46-50-54-62-68 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (prjónið ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman), prjónið A.2B (= 33-33-33-45-45-45 lykkjur sem fækka í 29-29-29-39-39-39 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 238-260-276-308-340-366 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 29-29-29-39-39-39 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 34-34-34-44-44-44 lykkjur í umferð, prjónið A.4 (= 29-29-29-39-39-39 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum er sett 1 prjónamerki 66-72-76-86-94-100 inn frá hvorri hlið (= 106-116-124-136-152-166 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í öðrum hverjum cm alls 5 sinnum í hvorri hlið = 218-240-256-288-320-346 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út í öðrum hverjum cm alls 5 sinnum í hvorri hlið = 238-260-276-308-340-366 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 30 cm í öllum stærðum. Í næstu umferð (ranga) eru felldar af 10-10-12-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Nú eru 61-67-70-80-87-92 lykkjur eftir á hvoru framstykki og 96-106-112-124-138-150 lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið kanta á ermum eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Á ERMI: Fitjið upp 84-92-104-108-116-120 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir sjá ÚRTAKA-2 = 76-86-96-100-106-110 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 66-76-84-88-92-94 lykkjur sléttprjón og fellið af þær 5-5-6-6-7-8 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermum á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn kanta á ermum á sama hringprjón 3 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 350-392-420-460-496-522 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og kanta á ermum = 4 prjónamerki. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.3 eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur – prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 8 lykkja), prjónið sléttprjón yfir ermi þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir bakstykki þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir ermi þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið A.5 (= 8 lykkjur), prjónið sléttprjón fram að A.4, haldið áfram með A.4 og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir þar sem fram- og bakstykki og kantur á ermum var sett saman er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í næstu umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 3 sinnum í öllum stærðum og síðan í annarri hverri umferð alls 22-26-29-33-36-38 sinnum. Á eftir síðustu úrtöku eru 150-160-164-172-184-194 lykkjur eftir í umferð. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 26-32-32-32-40-42 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-3 = 124-128-132-140-144-152 lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsi eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fellið af fyrir síðasta hnappagati í þessari umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |