Brigitte skrifaði:
Ich verstehe die 14. Runde nicht, können Sie mir bitte erklären wie das gemeint ist: In die 12. Runde auf der Innenseite der Arbeit weiterhäkeln. Gibt es vielleicht ein Video dazu? Vielen Dank
23.07.2020 - 20:37DROPS Design svaraði:
Liebe Brigitte, Sie haben ja schon die 13. Runde gehäkelt, in dieser Runde wurde nur in das vordere Maschenglied der 12. Runde eingestochen. Das hintere Maschenglied der 12. Runde ist also noch "frei". Und genau in diese Maschenglieder häkeln Sie nun. Sie setzen also wieder in der 12. Runde an und häkeln in die hinteren Maschenglieder, sodass die 13. Runde als Rand auf der Vorderseite des Korbes sichtbar ist. Gutes Gelingen weiterhin!
24.07.2020 - 10:34
Ana skrifaði:
La vuelta número 13 no está bien ya que si hacemos 2 puntos en uno cada 5 no salen 91 puntos si no 78 y si en la vuelta 14 hacemos una disminución cada 11 puntos no obtendremos 72. Lo lógico es hacer la vuelta 13 sin aumentos y en la 14 hacer una disminución cada 11 para quedar con 72
11.05.2020 - 20:09
Bottiero skrifaði:
Je ne comprend pas comment il faut crocheter le tour 13?
27.08.2019 - 15:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bottiero, c'est un tour d'augmentations (= 1 ms dans les 5 premières m, 2 ms dans la m suivante), mais on va crocheter uniquement dans le brin avant des mailles tout le tour. cette vidéo montre comment crocheter un seul des 2 brins d'une maille. Bon crochet!
27.08.2019 - 15:56
KK skrifaði:
Row 14, continue from round 12? \r\n\r\nDear Drops\r\n\r\nI\'m stuck on row 14. I\'m not sure what it means to continue on the inside to work on one row before. Thank you
11.01.2019 - 23:56DROPS Design svaraði:
Dear KK, on round 13 you have worked in the front loop of sts from round 12. On round 14 you will work in the unworked loop (= back loop) of sts from round 12. Happy crocheting!
14.01.2019 - 13:26
Michaela skrifaði:
Sehr schön, den werde ich gerne nacharbeiten.
03.07.2018 - 12:59
Victoria skrifaði:
Wie süß ist das denn! Will ich haben für mein Bad!
13.12.2017 - 20:40
Can Can#cancanbasket |
|
![]() |
![]() |
Hekluð karfa með dúskum og skúfum. Stykkið er heklað úr 2 þráðum DROPS Paris.
DROPS 189-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR-1: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrsta fastalykkju skipt út með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla næstu 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). KRABBAHEKL: Heklið fastalykkjur, en aftur á bak. Þ.e.a.s. heklið fastalykkjur frá vinstri að hægri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KARFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju á botni og upp með 2 þráðum. KARFA: Heklið 5 loftlykkjur með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum dökk beige (= 2 þræðir) með heklunál 5,5 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð. Heklið síðan í hring þannig: UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5: Heklið * 1 stuðul í hvern af fyrstu 3 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 60 stuðlar. UMFERÐ 6: Heklið * 1 stuðul í hvern af fyrstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum natur og heklið þannig: UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli. UMFERÐ 8-11: Heklið 1 stuðul í hverja lykkju. UMFERÐ 12: Heklið * 1 stuðul í hvern fyrstu 11 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 78 stuðlar. UMFERÐ 13: Heklið * 1 fastalykkju í fremri lykkjubogann í hvern af fyrstu/næstu 5 stuðlum, 2 fastalykkjur í fremri lykkjubogann í næsta stuðli = 91 fastalykkjur. Þessi umferð myndar kant meðfram ytri hlið á körfu. Klippið frá. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum natur og 1 þráð í litnum dökk beige (= 2 þræðir). UMFERÐ 14: Heklið síðan frá 12. umferð, innan á stykki: Heklið * 1 stuðul í hvern af fyrstu 11 stuðlum, heklið síðan næstu 2 stuðla saman í 1 stuðul (= 1 stuðull færri) – lesið ÚRTAKA *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 72 stuðlar. UMFERÐ 15-17: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 18: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 13 stuðlum, heklið 12 lausar loftlykkjur og hoppið yfir 11 stuðla fyrir handfang, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 25 stuðlum, heklið 12 lausar loftlykkjur og hoppið yfir 11 stuðla fyrir handfang, heklið 1 stuðul í hvern af þeim 12 stuðlum sem eftir eru í umferð. UMFERÐ 19: Heklið 1 fastalykkju í hvern af 13 stuðlum, heklið (1 hálfan stuðul, 11 stuðlar, 1 hálfur stuðull) um loftlykkjuboga fyrir handfang, haldið síðan áfram með 1 fastalykkju í hvern af næstu 25 stuðlum, heklið (1 hálfan stuðul, 11 stuðlar, 1 hálfur stuðull) um loftlykkjuboga fyrir handfang, haldið síðan áfram með 1 fastalykkju í hvern af þeim 12 stuðlum sem eftir eru í umferð. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum natur og heklið kant í lokin með KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan. Heklið 1 lykkju krabbahekl í hverja lykkju hringinn alla umferðina. Klippið frá og festið enda. SKRAUT: Gerið þéttan dúsk ca 4 cm að þvermáli í hverjum af litunum, skær bleikur, bleikvínrauður, kórall og apríkósa. Til þess að koma í veg fyrir að frágangurinn sjáist þegar dúskarnir eru festir á körfuna er hægt að nota þráð í litnum natur eða litnum dökk beige til að festa þá með. Klippið dúskana til þannig að þeir verði jafnir og fallegir. Gerið einn skúf í litunum kórall og í litnum bleikvínrauður þannig: Klippið 20 þræði ca 12 cm og leggið alla þræðina saman. Klippið 1 þráð í litnum natur eða litnum dökk beige ca 20 cm, hnýtið hnút utan um miðju á 20 þráðunum. Brjótið saman í tvennt við hnút og vefjið einum þræði í sama lit um skúfinn 4 sinnum hringinn ca 1 cm niður frá uppábrotinu og hnýtið hnút. Klippið þræðina til þannig að skúfurinn verði jafnt og fallegur neðst niðri. Saumið til skiptis dúsk og skúf í 12. umferð á körfunni. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cancanbasket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.