Milaine skrifaði:
Bonsoir Je viens de le réaliser, il est magnifique et les couleurs vont très bien ensemble Par contre pour la taille L, je recommande de prendre une pelote de couleur corail en plus Je n'avais pas assez de laine couleur corail pour le col, il ne m'en manquait pas beaucoup, j'ai fait le col en couleur cerise Sinon le gilet est beau, chaud et doux Merci pour ce beau modèle
12.06.2019 - 21:59
Katharina skrifaði:
Tolle Anleitung und ein wunderschönes Ergebnis-flauschig, schimmernd und sehr schön in uni koralle. Die Jacke ist schnell fertig und sieht mit den 3/4 langen Ärmeln toll aus zu Rock und Kleid. Das Alpaka Garn ist ein Traum.
18.03.2019 - 17:58
Katharina skrifaði:
Zu den Zunahmen am Ärmel folgende Frage: beidseits jeweils am Ende der Reihe heisst dann also, jeweils am Ende der Hinreihe und am Ende der Rückreihe 1 Masche (insgesamt 2) zunehmen? Ist die 1. Zunahmereihe dann auch gleichzeitig die erste von jeder 6. Reihe? Danke und Gruß Katharina
20.02.2019 - 22:31DROPS Design svaraði:
Liebe Katharina, Sie nehmen für die Ärmel so zu (in der Grösse XXXL): am Ende der Hinreihe 1 neue Masche zunehmen, am Ende der nächste Rückreihe 1 neue Masche zunehmen, 4 Reihe ohne zunahme stricken, am Ende der nächsten Hinreihe 1 M zunehmen, am Ende der nächsten Rückreihe 1 M zunehmen = Sie haben jetzt 2 M in jede 6. Reihe auf beiden seiten zugenommen. Viel Spaß beim stricken!
21.02.2019 - 09:58
Katja skrifaði:
Hallo. Schöne Jacke! Ein bißchen schwierig zu sehen, wie lang die Ärmel sind... sieht so aus als seien sie 3/4 lang? Ich würde sie gern lang stricken. Wären 10 cm/ 16 Reihen mehr ausreichend?
10.02.2019 - 11:01DROPS Design svaraði:
Liebe Katja, Sie finden alle Maßen in der Skizze, dh die für den Ärmel sowie die gesamte Länge bzw Breite von einem Ärmel bis die andere, so können Sie vergleichen, mit einer ähnlichen Jacke die Sie gerne haben, und so kalkulieren wieviel Sie cm länger stricken sollen. Viel Spaß beim stricken!
11.02.2019 - 09:46
Ulla skrifaði:
Wie sind die Streifen gerechnet ? zum beispiel 4 reihen rot , sind die hin und rückreihen gemeint, oder immer nur die rechten Reihen? Danke für Ihre hilfe.
06.02.2019 - 15:24DROPS Design svaraði:
Liebe Ulla, unter den Streifen sind alle Reihen damit gezählt, dh die Hin- sowie die Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!
06.02.2019 - 16:19
ROSA skrifaði:
Si se teje en un único color, cuántos gramos son necesarios?
15.01.2019 - 09:17DROPS Design svaraði:
Hola Rosa. Depende de la talla vas a necesitar a partir de 225 gr de lana.
20.01.2019 - 12:08
CHANTAL skrifaði:
Bonjour, superbe modèle que je souhaite réaliser mais je m'aperçois que la couleur vert ocean clair n'existe plus. Par quoi la remplacer. Pourriez vous autrement me proposer ce modèle en tons de bleus. Merci
14.01.2019 - 18:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Chantal, je suis heureuse de vous informer que la couleur n°15, vert océan clair est toujours disponible - vous la trouverez notamment sur le nuancier de Brushed Alpaca Silk. Pour toute aide dans le choix des couleurs, contactez votre magasin DROPS (même par mail ou téléphone), on pourra vous y conseiller en fonction de ce que vous souhaitez. Bon tricot!
15.01.2019 - 08:51
Katharina skrifaði:
Frage: Was heißt Randmasche kraus rechts stricken genau? Sind es Randmaschen links gestrickt auf der rechts erscheinenden Seite und Randmaschen rechts auf der links erscheinenden Seite? Eigentlich wollte ich die Ärmel mit dem unsichtbaren Maschenstich zusammennähen und brauche dafür normal abgestreckte Randmaschen. Warum diese Variante? Danke und Gruß von Katharina
04.01.2019 - 20:35DROPS Design svaraði:
Liebe Katharina, 1 Randmasche kraus rechts wird rechts bei der Hin sowie bei der Rückreihe gestrickt -siehe Video. Dann werden die Ärmel zusammegenäht wie in diesem Video gezeigt. Viel Spaß beim stricken!
07.01.2019 - 09:11
Pointeau Sylvie skrifaði:
Bonjour, Pourriez vous me dire où je pourrais trouver les corrections apportées à ce modèle ? J'ai beau cliquer sur la phrase en rouge,rien ne se passe. Merci.
28.10.2018 - 21:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pointeau, si vous avez imprimé ce modèle après le 4 mai 2018, vous avez le modèle complet, corrections incluses, si vous l'avez imprimé avant cette date, il peut être recommandé de les imprimer à nouveau - les 2 corrections listées sous la phrase en rouge figurent maintenant dans les explications du modèle en ligne. Bon tricot!
29.10.2018 - 08:31
Kerstin Von Porat skrifaði:
Kan jag använda garnet Alaska till denna modell? Ska det i så fall vara två trådar? Det står ju att alternativa garner till Drops Brushed Alpaca Silk är C+C eller E. När man tittar på konverteraren kommer dock endast garngrupp D upp (Drops Melody)? Tacksam för svar
15.10.2018 - 10:47
Red Berry Hill#redberryhillcardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með röndum, prjónuð frá hlið. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum Brushed Alpaca Silk.
DROPS 187-18 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum RENDUR (hægri ermi, framstykki og bakstykki): RÖND 1: Prjónið með 2 þráðum ljós beige þar til stykkið mælist 6-7-8-8-9-9 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan rendur þannig: UMFERÐ 1-4: 1 þráður ljós beige + 1 þráður ljós sægrænn. UMFERÐ 5-8: 2 þræðir ljós sægrænn. UMFERÐ 9-10: 1 þráður ljós sægrænn + 1 þráður kirsuber. UMFERÐ 11-12: 2 þræðir kirsuber. UMFERÐ 13-14: 1 þráður kirsuber + 1 þráðður kórall. UMFERÐ 15-22: 2 þræðir kórall. UMFERÐ 23-30: 1 þráður kórall + 1 þráður ljós beige. UMFERÐ 31-32: 1 þráður kórall + 1 þráður rauður. UMFERÐ 33-34: 2 þræðir rauður. UMFERÐ 35-36: 1 þráður rauður + 1 þráður kirsuber. UMFERÐ 37-40: 2 þræðir kirsuber. UMFERÐ 41-42: 1 þráður kirsuber + 1 þráður fjólublár. UMFERÐ 43-44: 2 þræðir fjólublár. UMFERÐ 45-48: 2 þræðir ljós beige. UMFERÐ 49.-54: 1 þráður ljós beige + 1 þráður kórall. UMFERÐ 55-58: 2 þræðir kórall. UMFERÐ 59-60: 2 þræðir rauður. UMFERÐ 61-62: 1 þráður kórall + 1 þráður ljós beige. UMFERÐ 63-68: 2 þræðir ljós beige. UMFERÐ 69-70: 1 þráður ljós beige + 1 þráður fjólublár. UMFERÐ 71-72: 2 þræðir fjólublár. UMFERÐ 73-74: 2 þræðir ljós sægrænn. UMFERÐ 75-78: 2 þræðir kirsuber. UMFERÐ 79-84: 1 þráður kirsuber + 1 þráður kórall. Prjónað er með 2 þráðum kórall til loka. RENDUR (vinstri ermi, framstykki og bakstykki): RÖND 1: Prjónið með 2 þráðum ljós beige þar til stykkið mælist 4-5-6-6-7-7 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan rendur þannig: UMFERÐ 1-21: 1 þráður ljós beige + 1 þráður kórall. UMFERÐ 22-25: 2 þræðir kórall. UMFERÐ 26-31: 1 þráður ljós kórall + 1 þráður ljós beige. UMFERÐ 32-33: 2 þræðir fjólublár. UMFERÐ 34-35: 1 þráður kórall + 1 þráður rauður. UMFERÐ 36-37: 2 þræðir rauður. UMFERÐ 38-39: 2 þræðir kórall. UMFERÐ 40-43: 2 þræðir kirsuber. UMFERÐ 44-47: 2 þræðir ljós sægrænn. UMFERÐ 48-51: 1 þráður ljós sægrænn + 1 þráður ljós beige. UMFERÐ 52-55: 2 þræðir ljós beige. UMFERÐ 56-57: 1 þráður ljós beige + 1 þráður kirsuber. UMFERÐ 58-61: 2 þræðir kirsuber. UMFERÐ 62-63: 2 þræðir ljós sægrænn. UMFERÐ 64-65: 2 þræðir fjólublár. UMFERÐ 66-67: 1 þráður fjólublár + 1 þráður ljós beige. UMFERÐ 68-69: 2 þræðir ljós beige. UMFERÐ 70-71: 1 þráður ljós beige + 1 þráður kórall. UMFERÐ 72-73: 2 þræðir kórall. UMFERÐ 74-75: 1 þráður kórall + 1 þráður ljós beige. UMFERÐ 76-79: 2 þræðir ljós beige. UMFERÐ 80-81: 1 þráður ljós beige + 1 þráður fjólublár. UMFERÐ 82-83: 2 þræðir fjólublár. UMFERÐ 84-86: 2 þræðir kirsuber. UMFERÐ 87-88: 1 þráður kórall + 1 þráður ljós beige. Prjónið síðan með 2 þráðum kórall til loka (= ca 3-3-3-4-4-5 cm + 4 umferð með garðaprjóni á bakstykki og 8 umferðir í garðaprjóni á framstykki). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónuð eru 2 stykki frá hlið frá ermum að miðju að aftan/miðja að framan. Peysan er saumuð saman við miðju að aftan. Allt stykkið er prjónað með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. HÆGRI ERMI, FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 36-38-38-40-42-42 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum í litnum ljós beige. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónaðar eru RENDUR (hægri ermi, framstykki og bakstykki) – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFEESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-10-10-10-9 cm eru fitjaðar upp lykkjur í lok umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju í 6. hverri umferð 6-5-5-4-3-2 sinnum, 1 lykkja í annarri hverri umferð 7-9-9-11-13-14 sinnum og 31-32-34-35-35-37 lykkjur 1 sinni = 124-130-134-140-144-148 lykkjur. Stykkið mælist ca 40-39-38-36-35-32 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með rendur og prjónið sléttprjón með 4 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (= neðst á fram- og bakstykki). Þegar stykkið mælist 14-16-17-20-21-25 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, 52-55-56-59-60-62 lykkjur sléttprjón, setjið 56-59-60-63-64-66 lykkjur á framstykki á þráð, fellið af næstu 9-9-10-10-11-11 lykkjur (= 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir hálsmáli á framstykki og 3 lykkjur fyrir hálsmáli á bakstykki), prjónið sléttprjón yfir næstu 55-58-60-63-65-67 lykkjur, 4 lykkjur garðaprjón. Nú eru 59-62-64-67-69-71 lykkjur fyrir bakstykki. HÆGRA BAKSTYKKI: = 59-62-64-67-69-71 lykkjur. Haldið áfram með rendur, sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsmáli og 4 lykkjur í garðaprjóni að neðri kanti eins og áður. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 58-61-63-66-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-29-31-35 cm frá prjónamerki eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur á prjóni. Stykkið mælist alls 64-65-66-67-68-69 cm frá uppfitjunarkanti á ermi. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 56-59-60-63-64-66 lykkjur. Byrjið frá röngu (við háls) og haldið áfram með rendur, sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsmáli og 4 lykkjur garðaprjón að neðri kanti eins og áður, JAFNFRAMT eru felldar af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 52-55-56-59-60-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-29-31-35 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur á prjóni. Fellið síðan af fyrir hnappagötum þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 8-6-7-5-6-8 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-7-7-8-8-8 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2: Allar lykkjur og allur uppsláttur er prjónaður slétt. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Stykkið mælist 26-28-30-33-35-39 cm (= alls 66-67-68-69-70-71 cm frá uppfitjunarkanti á ermi). Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. VINSTRI ERMI, FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 36-38-38-40-42-42 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum í litnum ljós beige. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið RENDUR (vinstri ermi, framstykki og bakstykki) – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-10-10-10-9 cm fitjið upp lykkjur í lok umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju í 6. hverri umferð 6-5-5-4-3-2 sinnum, 1 lykkja í annarri hverri umferð 7-9-9-11-13-14 sinnum og 31-32-34-35-35-37 lykkjur 1 sinni = 124-130-134-140-144-148 lykkjur. Stykkið mælist ca 40-39-38-36-35-32 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með rendur og prjónið sléttprjón með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hið (= neðst á fram- og bakstykki). Þegar stykkið mælist 14-16-17-20-21-25 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, 55-58-60-63-65-67 lykkjur sléttprjón, setjið 59-62-64-67-69-70 lykkjur á þráð fyrir bakstykki, fellið af næstu 9-9-10-10-11-11 lykkjur (= 3 lykkjur fyrir hálsmáli á bakstykki og 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir hálsmáli á framstykki), 52-55-56-59-60-62 lykkjur sléttprjón, 4 lykkjur garðaprjón. Nú eru 56-59-60-63-64-66 lykkjur fyrir framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 56-59-60-63-64-66 lykkjur. Haldið áfram með rendur, sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni í hálsmáli og 4 lykkjur í garðaprjóni að neðri kanti eins og áður, JAFNFRAMT eru felldar af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur, 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 52-55-56-59-60-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-29-31-35 cm prjónið 8 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur á prjóni. Stykkið mælist 26-28-30-33-35-39 cm (= alls 66-67-68-69-70-71 cm frá uppfitjunarkanti á ermi). Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og eigin lykkja. VINSTRA BAKSTYKKI: = 59-62-64-67-69-71 lykkjur. Byrjið frá röngu (við hálsmál) og haldið áfram með rendur, sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsi og 4 lykkjur í garðaprjóni að neðri kanti eins og áður. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 58-61-63-66-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-29-31-35 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur á prjóni. Stykkið mælist 64-65-66-67-68-69 cm frá uppfitjunarkanti á ermi. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og eigin lykkja. FRÁGANGUR: Saumið saum við miðju að aftan innan við affellingarkantinn á hvoru bakstykki. Saumið saum undir ermum og hliðarsaum innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni/ystu lykkju. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 54-54-60-60-68-68 lykkjur frá réttu með hringprjón 7 með 2 þráðum í litnum kórall. Prjónið 2 umferðir slétt fram og til baka. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redberryhillcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.