Françoise skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas votre réponse. Le 1er rg est forcément sur l'endroit. Je ne peux donc pas avoir le 1er rg endroit comme 2ème rg tricoté. Merci de revoir. Cordialement
21.10.2024 - 11:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, c'est un choix de stylistes, lors d'un montage des mailles façon continentale, on doit avoir ici le côté des "petits traits" sur l'endroit, et non le côté qui ressemble à un rang envers, autrement dit, on veut ici que l'endroit de l'ouvrage soit le même côté que lorsque l'on a monté les mailles. Libre à vous de procéder autrement, vous pouvez également commencer par 1 rang endroit, si vous préférez ce côté du montage (l'effet sera légèrement différent). Bon tricot!
21.10.2024 - 15:42
Françoise skrifaði:
Bonjour Drops explique : " Monter 61 m puis tricoter 1 rg envers ( = sur l'envers)" Comment est-ce possible puisqu'après mon rg de montage mon ouvrage est sur l'endroit ? Merci de m'expliquer. Cordialement
20.10.2024 - 14:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, dans certains modèles, pour l'effet souhaité, on va tricoter le 1er rang sur l'envers ainsi, le 1er rang sur l'endroit est en fait le 2ème rang tricoté. Bon tricot!
21.10.2024 - 09:01
Jacqueline Schwarzenberger skrifaði:
Hallo. Braucht man wirklich nur 400g von dem Air für den Pulli in s? Das kommt mir sehr wenig vor,wenn man es doppelt nehmen soll. Wäre das ja nur 600m für den ganzen Pulli?? Oder muss man 2mal 400g nehmen? Was aber nicht da steht. ich wollte das Garn bestellen, und da würde ich mich über eine Antwort freuen. Das ich weiß wie und was. Vielen lieben Dank
21.01.2023 - 18:26DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schwarzenberger, dieser Pullover wird mit 3 Fäden gestrickt, so brauchen Sie (in S) 400 g DROPS Air + 100 g DROPS Brushed Alpaca Silk - so brauchen Sie 8 Knäuel Air + 4 Knäuel Brushed Alpaca Silk und Sie sollen dann mit 2 Fäden Air +1 Faden Brushed Alpaca Silk stricken. Viel Spaß beim stricken!
23.01.2023 - 09:15
Theresa Suszko skrifaði:
The arm hole is bigger then the sleeves ? I knitted a sweater from your company before and it turned out beautiful and is working on the sweater northern exposure! If you could help me with the sleeve portion ? Thank you ! You are awesome!
07.12.2020 - 21:01DROPS Design svaraði:
Hi Theresa, The armholes and sleeves should match in size. It could be that your knitting tension is too tight, giving you narrower sleeves. Happy knitting!
08.12.2020 - 07:09
Theresa Suszko skrifaði:
I tried this sweater. And took it apart and redid it 4 to 5 times cause I had problems with the sleeves fitting ! It would be nice if you had a video with sound to talk me through it . Is there a certain way of doing the sleeves?
07.12.2020 - 03:51DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Suszko, could you please tell us more about the problem you had with sleeves? I'm sorry to not be able to underestand the issue. Thanks for your comprehension.
07.12.2020 - 09:14
Tina skrifaði:
Hallo! ich würde es gerne den Pullover mit zwei Fäden Drops You 8 und einem Faden Brushed Alpaca Silk probieren. Könnt ihr mir das empfehlen? Oder lieber nur mit Drops You 8? Vielen lieben Dank
12.06.2018 - 11:20DROPS Design svaraði:
Liebe Tina, Drops loves you 8 und Air sind beide Garngruppe C, beachten Sie nur, daß das Strickstück etwas unterschiedlich aussehen wird, da beide Garne (DROPS loves You 8 und Air) auch unterschiedlich sind. Hier lesen Sie mehr über Garnalternativen. Viel Spaß beim stricken!
12.06.2018 - 14:45Sarah Inkpen skrifaði:
The sleeves for size small are 10 cm longer than for xxl is that correct?
30.05.2018 - 06:43DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Inkpen, yes that's correct, sleeves are shorter in larger size since shoulders are larger - see measurement chart - and adjust to your own size if needed. Happy knitting!
30.05.2018 - 08:58
Sue skrifaði:
I was hoping to make this in a cotton. Can you tell me suitable alternatives please?
18.05.2018 - 15:46DROPS Design svaraði:
Dear Sue, you will find here relevant informations about alternatives. For any individual assistance choosing a yarn please contact your DROPS store, even per mail, telephone or via social medias. Happy knitting!
18.05.2018 - 15:49
Montarone skrifaði:
Bonjour le pull ce tricote avec la laine en double devant et derrière ?? merci
22.04.2018 - 11:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Montarone, ce pull se tricote entièrement (= devant, dos, manches et col) avec 3 fils au total: 2 fils DROPS Air + 1 fil DROPS Brushed Alpaca Silk. Bon tricot!
23.04.2018 - 09:28
Cinzia skrifaði:
Questo modello mi piace tantissimo e lo farò presto!
17.01.2018 - 14:49
Lost in Comfort#lostincomfortsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL. Stikkið er prjónað úr 2 þráðum DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 188-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á í (t.d. 43 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 7,2. Í þessu dæmi eru prjónaðar ca 6. og 7. hver lykkja saman þegar lykkjum er fækkað. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í hlutum og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 61-61-67-76-76-82 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air + 1 þráður Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: S + XL: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman, 2-5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 43-52 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-9 lykkjur jafnt yfir þessar 43-52 lykkjur – lesið ÚRTAKA, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2-5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. L: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman, 7 lykkjur slétt, prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 43 lykkjur og fækkið jafnframt um 6 lykkjur jafnt yfir þessar 43 lykkjur – lesið ÚRTAKA, prjónið 7 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. M + XXL + XXXL: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 6-9-12 lykkjur slétt, prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 43-52-52 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-9-9 lykkjur jafnt yfir þessar 43-52-52 lykkjur – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið 6-9-12 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. ALLAR STÆRÐIR: Nú eru 51-55-59-63-67-73 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 9. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 4-6-8-7-9-12 lykkjur í sléttprjóni með rönguna út, A.1 (= 37-37-37-43-43-43 lykkjur), 4-6-8-7-9-12 lykkjur í sléttprjóni með rönguna út og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm setjið miðju 13-13-15-15-17-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni = 16-18-19-21-22-25 lykkjur eftir í umferð fyrir öxl. Prjónið áfram þar til eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 61-61-67-76-76-82 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið JAFNFRAMT um 10-6-8-13-9-9 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð (ekki fækka lykkjum yfir kantlykkjur) = 51-55-59-63-67-73 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með rönguna út og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 16-18-19-21-22-25 lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl. Prjónið síðan áfram þar til eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 21-21-24-24-27-27 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 4-6-5-7-4-6 lykkjur jafnt yfir = 25-27-29-31-31-33 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-6-7-7-7-8 lykkjur sléttprjón með rönguna út, A.2 (= 13-13-13-15-15-15 lykkjur), 5-6-7-7-7-8 lykkjur í sléttprjóni með rönguna út og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 10 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið (útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu) = 31-33-35-37-37-39 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 45-44-42-41-40-38 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermasauma kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður, en endið sauminn þegar eftir eru ca 18 cm í hvorri hlið (= klauf). Saumið ermar í. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 48 til 60 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum Air + 1 þráður Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). ATH: Ef prjónaðar eru upp fleiri eða færri lykkjur en það sem stendur verður að fækka/fjölga jafnt yfir í fyrstu umferð. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lostincomfortsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.