Tone skrifaði:
Vær klar over at lengde garn av Brushed Alpaca Silk er mye kortere enn Air når du kjøper anbefalt mengde av begge kvaliteter. Jeg kjøpte 7 nøster av hver (oppgitt mengde til XL), så strikket jeg til L i bredden og rundt XL i høyden. Likevel slapp jeg opp for Brushed Alpaca Silk før jeg var ferdig med lommene og det var ikke mulig å få tak i mer av samme innfarging.
05.03.2025 - 14:25
Martina Lampl skrifaði:
Hallo Nach dem Abnehmen soll man weiter stricken bis eine Länge von 74 cm hat Dann die Schultern stricken Nun meine Frage Ist es richtig die Schultern auch bis 74cm zu stricken? Das kann ja eigentlich nicht stimmen So steht es aber in der Anleitung
08.07.2021 - 19:57DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Lampl, für den Halsausschnitt haben Sie die mittleren 12 Maschen bei einer Länge von 72 cm abgekettet, dann werden jede Schulter separat gestrickt bis die Arbeit 74 cm (= 2 extra cm für jede Schulter): die Maschen nur von einer Schulter stricken und die anderen stilllegen. Wenn die 1. Schulter fertig ist, die andere genauso stricken. Viel Spaß beim stricken!
09.07.2021 - 07:14
Martina Lampl skrifaði:
So ich habe mich total verlesen Das ist die cm Zahl Sorry für die Frage
04.07.2021 - 21:42
Martina Lampl skrifaði:
Hallo In der Anleitung steht nach 54 cm je 1 Masche beidseitig abketten In Größe L muss ich 58 Maschen aufnehmen und zwei abketten Dann steht da es sind dann 56 Maschen Und bei den anderen Größen passen die Zahlen auch nicht
04.07.2021 - 21:21DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Lampl, in L schlagen Sie 58 Maschen an, und bei 54 cm wird 1 Masche beidseitig abgekettet = 58 - 2 = 56 Maschen sind noch übrig. Kann es Ihnen helfen?
05.07.2021 - 08:16
Astrid Juhl Jensen skrifaði:
Hvordan strikkes kraven i nakken, der er kun opskrift til fodstykkerne
13.09.2019 - 23:01DROPS Design svaraði:
Hei Astrid. Kragen/stolpene strikkes på forstykkene og sys sammen midt bak til krage. Sy kragen langs halsringningen bak i nakken. God Fornøyelse!
16.09.2019 - 14:47
Heidi skrifaði:
Hallo, Ich würde diese Jacke gerne nur mit Drops Air stricken. Wie viele Maschen müsste ich dann jeweils in der Größe XXXL aufnehmen? Danke für eure Hilfe. Lg Heidi
23.09.2018 - 12:31DROPS Design svaraði:
Liebe Heidi, diese Jacke wird mit 1 Faden Air und 1 Faden Brushed Alpaca Silk zusammengestrickt, wenn Sie nur mit Air stricken möchten, sollen Sie dann mit 2 Fäden Air stricken - hier lesen Sie mehr über Garnalternativen. Viel Spaß beim stricken!
24.09.2018 - 09:32
Ulrike Aksoy skrifaði:
Wenn ich die Jacke in Nepal und nur glatt Re. stricke, brauche ich dann weniger Wolle?
27.02.2018 - 14:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Aksoy, Leider können wir keine individuellen Umrechnungen vornehmen, wenden Sie sich mit diesem Wunsch bitte an den Laden, in dem Sie die Wolle kaufen. Vielen Dank für Ihr Verständnis.
27.02.2018 - 16:17Ekaterina skrifaði:
Es scheint, das Sternchen ist hier verloren: " ...wie folgt stricken: * 2 Reihen im Perlmuster über alle Maschen stricken..." (im Teil "LINKES VORDERTEIL", wo man den Kragen stricken muss).
16.01.2018 - 04:52DROPS Design svaraði:
Liebe Ekaterina, herzlichen Dank für den Hinweis, Anleitung wurde korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
16.01.2018 - 14:35
Cordillera#cordilleracardigan |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa með perluprjóni og kraga. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 184-27 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 24, 33, 42 og 51 cm M: 24, 33, 42 og 51 cm L: 24, 33, 42 og 51 cm XL: 24, 34, 44 og 54 cm XXL: 24, 34, 44 og 54 cm XXXL: 24, 34, 44 og 54 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í hlið í lokin. Lykkjur fyrir ermar eru prjónaðar upp í handveg á fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 50-54-58-63-69-75 lykkjur með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 9. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm fellið af 1 lykkju í hvorri hlið (merkir handveg) = 48-52-56-61-67-73 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Fellið af miðju 10-10-12-13-13-13 fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er fækkað um 1 lykkju = 18-20-21-23-26-29 lykkjur eftir fyrir öxl. Fellið laust af allar lykkjur þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 30-32-34-37-40-43 lykkjur með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 9. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm fellið af 1 lykkju í hlið (merkir handveg) = 29-31-33-36-39-42 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 18-20-21-23-26-29 lykkjur (= öxl) = 11-11-12-13-13-13 lykkjur eftir á kraga. Haldið áfram með perluprjón yfir þessar lykkjur – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir. Byrjið frá röngu, kraginn á að vera lengstur á þeirri hlið sem snýr að hálsi og prjónið þannig: * Prjónið 2 umferðir perluprjón yfir allar lykkjur. Í næstu umferð frá röngu eru prjónaðar 5-5-6-7-7-7 lykkjur perluprjón, snúið við og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 9-9-10-11-11-11 cm frá þar sem lykkjum var fækkað fyrir öxl (í stystu hliðinni). Fellið laust af allar lykkjur. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið alveg eins og vinstra framstykki, nema gagnstætt. Fellið nú af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir yfir lykkjur á kraga, prjónið með byrjun frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. VINSTRI ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handveg efst á peysu og ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Byrjið þar sem felld var af 1 lykkja fyrir handveg og prjónið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur frá réttu með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 9. Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og niður meðfram handveg á bakstykki þar sem felld var af 1 lykkja fyrir handveg. Prjónið perluprjón fram og til baka. Þegar ermin mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin á stykki. Fækkið lykkjum með 5-4½-4½-3½-3½-3 cm millibili alls 7-8-8-9-9-10 sinnum = 22-22-24-24-26-26 lykkjur. Þegar stykkið mælist 39-38-37-36-34-32 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 10 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, ermin mælist alls 49-48-47-46-44-42 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið alveg eins og vinstri ermi, en byrjið á bakstykki. Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á bakstykki og niður meðfram handveg á framstykki þar til felld er af 1 lykkja fyrir handveg. FRÁGANGUR-2: Saumið hliðar- og ermasauma í eitt í ystu lykkjubogana. Saumið saman kanta að framan við miðju aftan á kraga. Saumið kraga í hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. VASAR: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 20 lykkjur með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 9. Prjónið perluprjón þar til stykkið mælist 14 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, JAFNFRAMT er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð = 26 lykkjur (endið stroffið með 2 lykkjur slétt). Prjónið stroff í 4 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið annan vasa til viðbótar. Saumið vasana, ca 6-8 cm frá neðri kanti (sjá mynd). |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cordilleracardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.