Raueiser skrifaði:
Ich habe mal eine Frage Ich verstehe den Satz nicht. 1 Reihe= hin Reihe. 2 M rechts 1 Umschlag Von insgesamt "," 14x arbeiten und enden mit 2 Maschen rechts = 44 Maschen
27.06.2020 - 14:01DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Raueiser, die erste Reihe ist eine Hin-Reihe (von der Vorderseite gestrickt). Die 30 angeschlagenen Maschen stricken Sie wie folgt: (2 Maschen rechts, 1 Umschlag), von (bis) insgesamt 14 Mal wiederholen (= über die ersten 28 Maschen = es sind ja 14 Umschläge auf der rechten Nadel), 2 Maschen sind noch übrig auf der linke Nadel, diese 2 Maschen stricken Sie rechts = jetzt haben Sie 44 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
29.06.2020 - 08:06
Dominico skrifaði:
Bonjour j essai de faire votre chenille mais je ne comprend pas la tete on monte combien de maille et on doit arriver a combien de maille au bout des 8 cm et pour les oreilles ses pareil je n ai pas tout compris si vous pourriez m expliquer j attend avec impatience votre réponse je vous Remercie bonne soirée
13.05.2019 - 22:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dominico, la tête se tricote sur les 30 m du corps (on ne rabat pas les mailles du corps après les 55 cm/les rayures). On augmente à 44 m au 1er rang de la tête et on continue en jersey endroit avec 1 m lis au point mousse de chaque côté. Quand la tête mesure 8 cm, on rabat toutes les mailles. Bon tricot!
14.05.2019 - 08:22
Lemonnier skrifaði:
Bonjour ,j\'ai fait cette chenille très facile ,je tricote des doudous pour les enfants de l\'hôpital ,si vous en avez d\'autre se serait sympa ,merci à vous
31.05.2018 - 08:38Nilcea Vilela skrifaði:
Como entender essas receitas no Português!
15.04.2018 - 23:23
Madeleine Gagné skrifaði:
J'aimerais recevoir des patrons gratuits de jouets d'enfants S.V.P. Merci
16.03.2018 - 21:31
Arnie the Caterpillar#dropsarniethecaterpillar |
|
![]() |
![]() |
Prjónað leikfang / omur, prjónaður í garðaprjóni og röndum úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Children 30-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. RENDUR: Prjónið 5 cm garðaprjón í hverjum lit í þessari röð: natur, bleikur, ljós gulur, ólífa, ljós grágrænn, ljós blár, natur, ljós gulur, ljós grágrænn, ólífua. ATH: Skiljið eftir ca 25-30 cm enda við hver litaskipti til að sauma orminn saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ORMUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka til loka og saumað saman í lokin. BÚKUR: Fitjið upp 30 lykkjur á prjón 3,5 með litnum ljós beige. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Á eftir síðustu rönd mælist stykkið ca 55 cm. HÖFUÐ: Skiptið yfir í litinn ljós beige og prjónið sléttprjón fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 14 sinnum og endið með 2 lykkjum slétt = 44 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), endið með 1 lykkju slétt. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til höfuðið mælist ca 8 cm, fellið af. Allur ormurinn mælist ca 63 cm ofan frá og niður. Saumið út lítil augu með litnum natur og litnum svartur og munn með litnum rauður fyrir miðju framan á höfði – sjá ljósmynd. FRÁGANGUR: Saumið orminn saman við miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur – ATH: Hver rönd er saumuð saman með saman lit. Fyllið orminn með vatti (troðið inn vatti frá báðum endum) svo að hann verði tiltölulega þéttur. Saumið höfuðið saman í toppnum innan við affellingarkantinn. Á hinum endanum á orminum eru þrædd nokkur spor með litnum ljós beige upp og niður í gegnum lykkjur í kringum opi, herðið á þræði þannig að opið lokist og festið enda vel. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 48 lykkjur með litnum ljós blár. Prjónið 3 umferðir slétt og fellið af með sléttum lykkjum. Hnýtið hálsklútinn utan um hálsinn beint fyrir neðan höfuðið. FÁLMAR: Fitjið upp 5 lykkjur með litnum bleikur. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 7 cm. Klippið frá (skiljið eftir smá enda til að sauma saman með). Þræðið þráðinn fyrst í gegnum 5 lykkjur í umferð, herðið á þræði þannig að lykkjurnar dragist saman. Síðan (án þess að klippa frá og festa enda) er fálmarinn saumaður saman meðfram kanti í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Þegar búið er að sauma alveg niður er dregið aðeins í þráðinn svo að toppurinn efst uppi á fálmaranum beygist aðeins, festið enda vel. Prjónið hinn fálmarann á sama hátt og saumið niður mitt ofan á höfði með smáu spori. EYRA: Þræðið nokkur spor með litnum ljós beige í kringum annað hornið efst á höfði. Herðið á þræði þannig að það myndast smá eyra og festið enda vel. Gerið annað eyra á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsarniethecaterpillar eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.