Dm Stuart skrifaði:
Hi I understand from my local Drops superstore that you are not doing printed pattern books for the seasonal collections. Is that true and, if so, why? Thanks and happy new year.
03.01.2018 - 00:58DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Stuart, the request for the seasonnal collections was not enough to print catalogues, while patterns can be always printed for free from our website. But you can get nice collections brochures from your DROPS Store. Happy knitting!
03.01.2018 - 14:09
Crissi38 skrifaði:
Ich verstehe nicht, wie ich die Muster verbinde. Hatte bereits mehrere Versuche aber die Farben verlaufen immer um die Ecke, weil ich die Zunahmen in der Mitte mache. Was mache ich falsch?
11.10.2017 - 09:42DROPS Design svaraði:
Liebe Crissi38, Sie stricken A.1 vor dem Markierer und A.2 nach dem Markierer (von der Vorderseite gesehen). Wenn A.1/A.2 1x in der Höhe gestrickt sind, stricken Sie A.3 vor dem Markierer und A.2 nach dem Markierer. Wenn A.3 1x in der Höhe gestrickt ist, stricken Sie wie zuvor, und im A.3 die 3 ersten Maschen wie im A.3 (= Zunahmen) und die 2 letzten Maschen (= Abnahmen) wie im A.3 und die Maschen inzwischen stricken Sie kraus rechts - immer mit A.2 nach dem Markierer. Viel Spaß beim stricken!
11.10.2017 - 13:40Mulheres De Goiania skrifaði:
Você usa de forma simplória e direta e também também de vocábulo que para bastante bem no seu artigo. Não conhecia seu sítio ainda, porém irei voltar de novo.
06.10.2017 - 03:39Cristiane Diaz Garota De Programa skrifaði:
Você escreve bastante muito e espero que avance por bastante tempo porque conheci seu site atualmente mesmo. Até mais.
05.10.2017 - 03:39
Vinnie Von Mehren skrifaði:
Jeg kan ikke finde opskriften!!!!
14.07.2017 - 10:58
Cecilia skrifaði:
Mi piace!!!!... è possibile sapere quantità e colore del filato necessario???
11.07.2017 - 19:46
Deb Molitz skrifaði:
Wonderful pattern for your yarn. Hope you publish it!
30.06.2017 - 19:33
Karin skrifaði:
Very nice interesting knit, but I'm out of votes. Hope it gets through anyway.
17.06.2017 - 00:13
Heike Geiger skrifaði:
Das sieht total interessant aus. Ich werde es stricken!
03.06.2017 - 11:55
Christine Paul skrifaði:
Das werde ich bestimmt auch stricken
02.06.2017 - 23:48
Winter Tide#wintertideset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Fabel, prjónað á ská í garðaprjóni með göddum í annarri hliðinn. Prjónað eyrnaband í garðaprjóni og stroffprjóni úr DROPS Fabel.
DROPS 181-23 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR VARÐANDI LIT OG KANT (á við um eyrnaband): Eyrnabandið er prjónað með 1 þræði til skiptis utan með dokkunni og 1 þræði innan úr dokkunni til að þynna út rendurnar (deilið e.t.v. dokkunni í 2 dokkur). Alltaf er skipt um enda á sömu hlið, til þess að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur þegar skipt er um enda er síðasta lykkjan prjónuð í þeirri hlið með báðum þráðum (= tvöfaldur þráður). ÚTAUKNING (á við um eyrnaband): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir gat (= prjónið í aftari lykkjubogann). Allar útauknar lykkjur eru nú prjónaðar í garðaprjóni. ÚRTAKA (á við um eyrnaband): Aukið út með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Allt sjalið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. SJAL: Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 4,5 með Fabel og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 3 lykkjur, setjið eitt prjónamerki á prjóninn eftir A.1 sem fylgir með stykkinu upp úr og prjónið A.2 yfir 2 lykkjur. ATH! Mikilvægt er að nota eitt prjónamerki í stykkið til að skilja mynstrin að. Aukið er út og lykkjum fækkað í mynstri A.1 og í mynstri A.2 eru lykkjur auknar út sem felldar eru af í síðustu umferð í mynsturteikningu. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er aukið út um 8 lykkjur í A.1 = 13 lykkjur í umferð. Prjónið nú áfram þannig: Prjónið A.3 yfir 11 lykkjur, munið eftir að láta prjónamerkin fylgja með í stykkinu og prjónið A.2 yfir 2 lykkjur. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er aukið út um 8 lykkjur í A.3 = 21 lykkjur í umferð. Aukið síðan út og fækkið lykkjum alveg eins og í A.3, en nú eru fleiri lykkjur á milli útaukninga og úrtöku. Þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið 3 lykkjur eins og útskýrt er í byrjun á A.3, prjónið garðaprjón eins og áður fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki og prjónið síðustu 2 lykkjur eins og útskýrt er í lok A.3 og prjónið A.2 yfir lykkjur á eftir prjónamerki. Haldið áfram að prjóna svona, A.3 eykst með 8 lykkjum í hvert skipti sem mynsturteikning er prjónuð á hæðina. Nýjar lykkjur í miðju A.3 eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með að prjóna svona þar til 213 lykkjur eru í umferð, endið á undan síðustu umferð í mynsturteikningu A.2 (í 25. gaddinum eða prjónið að óskuðu máli, en passið uppá að það sé nægilegt garn til fyrir affelingu). Til að fá teygjanlegan affellingarkant er fellt af þannig: * Fellið af 2 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn og fellið uppsláttinn laust af *, endurtakið frá *-* út umferðina, klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman við miðju að aftan í lokin. EYRNABAND: Fitjið upp 30-34-38 lykkjur á prjón 2,5 með Fabel. Prjónið frá réttu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Snúið stykkinu. LESIÐ LEIÐBEININGAR VARÐANDI LITI OG KANT. UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkjur garðaprjón (með báðum þráðum), 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja garðaprjón og 1 lykkja garðaprjón (með báðum þráðum). Snúið stykkinu. Endurtakið umferð 3-4 svona þar til stykkið mælist 7-8-9 cm, aukið nú um 1 lykkju í ystu eininguna með stroffi í hvorri hlið – SJÁ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 10. hverri umferð alls 6 sinnum = 42-46-50 lykkjur. Nú eru 8 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið garðaprjón og stroff eins og áður þar til stykkið mælist 27-30-31 cm. Fækkið nú um 1 lykkju yst í einingu með stroffi í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 10. hverri umferð alls 6 sinnum = 30-34-38 lykkjur. Prjónið garðaprjón og stroff eins og áður þar til stykkið mælist 48-52-54 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá, saumið affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn saman með smáu spori. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintertideset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.