DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Hour

Prjónuð peysa með laskalínu og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Lima. Stærð S - XXXL.

DROPS 181-20
DROPS Design: Mynstur li-083
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-800 g litur 6235, gráblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3,5 fyrir kanta með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 45 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 15. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 15. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

LASKALÍNA:
Aukið út um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma í annarri hverri umferð þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 90-94-98-104-108-114 lykkjur á stutta hringprjóna 3,5 með Lima. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 4.

Prjónið nú eina umferð þar sem 4 prjónamerki eru sett í stykkið og aukið út þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar (= laskalína á vinstri öxl að aftan): prjónið 37-39-42-45-47-50 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-2-3-5-6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir), yfir þessar lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 7-7-6-6-6-6 sinnum alls, setjið eitt prjónamerki hér, 37-39-42-45-47-50 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-2-3-5-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 7-7-6-6-6-6 sinnum alls = 106-110-114-122-130-138 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (allir uppslættirnir eru prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndist gat). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-7-9-9-11-13 lykkjur slétt, prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 (= 24-24-24-28-28-28 lykkjur), prjónið 6-7-9-9-11-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 13-13-11-11-11-11 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki er staðsett hér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 22-25-27-30-33-36 sinnum (meðtaldar fyrstu útaukningar) = 282-310-330-362-394-426 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga á milli fram- og bakstykkis og erma (mynsturteikning A.1 heldur áfram eins og áður) þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 82-90-98-108-118-128 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 59-65-67-73-79-85 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 82-90-98-108-118-128 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 59-65-67-73-79-85 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (þ.e.a.s. mitt á milli 10-10-12-12-14-16 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið). Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með A.1 við miðju að framan og við miðju að aftan eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 12.-12.-14.-14.-14.-14. hverri umferð alls 7-7-6-6-6-6 sinnum = 212-228-244-264-288-312 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 59-65-67-73-79-85 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-75-79-85-93-101 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp í hvorri hlið (= mitt undir ermi/hliðar á peysu). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 9.-6.-6.-5.-4.-3. hverri umferð alls 11-14-15-17-21-24 sinnum = 47-47-49-51-51-53 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 44-42-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Ruth Savard wrote:

Bonjour, J'aimerais ajouter le motif sur le devant du modèle :Design: Modèle n° li-083 sur les manches. Pouvez-vous me dire à partir de quel maille je peux commencer le motif car je voudrais e qu'il soit centré? Je tricote un chandail de grandeur large. Si j'ai bien lu les explications il y aurait 79 mailles pour la manche. Merci

06.02.2021 - 20:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Savard, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, pour toute assistance personnalisée, merci de bien vouloir vous adresser à votre magasin - même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

08.02.2021 - 08:41

country flag Sandra Stoffels wrote:

Ik wil deze trui graag breien in maat S. Ik heb de volgende wol nog liggen: LANG yarns. Merino 120. (Merino fine-superwash). Ik heb proeflapje: 21 st x 28 naalden= 10x 10 cm. Een bol is 50 gram met lengte van ca. 120m. Ik heb 10 bollen. Is dat genoeg voor patroon 181-20?

04.02.2019 - 07:57

DROPS Design answered:

Dag Sandra

Voor maat S heb je voor DROPS Lima 10 bollen nodig voor dit patroon. Als de looplengte en de stekenverhouding overeenkomt zou je ook voor een ander garen ongeveer 10 bollen nodig hebben.

08.02.2019 - 17:28

country flag Estelita wrote:

Can I have the English version please

13.06.2018 - 15:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Estelita, you can edit the language in all our patterns by clicking on the arrow below the pattern and select English either UK or US in the dropdown menu. Happy knitting!

13.06.2018 - 16:32

country flag Carole wrote:

Beautiful, elegant design

30.06.2017 - 18:17

country flag Kody Doisy wrote:

J'adore ce modèle j’espère avoir les explications en top down SVP . Merci

23.06.2017 - 14:19