Anita Johanne Juliussen Støa skrifaði:
Har dere oppskriften på dåpskjolen til denne dåpslua My Sweet Hat?
07.05.2018 - 23:04Nova skrifaði:
Do you have the jacket to crochet as well? Thank you
30.04.2018 - 13:02DROPS Design svaraði:
Dear Nova, please find here the pattern to the onesie on the picture and 30.04.2018 - 13:47
My Sweetie hat#mysweetiehat |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Hekluð húfa með áferðamynstri og gataumferðum fyrir skírn eða nafnagjöf úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0 – 2 ára.
DROPS Baby 29-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er skipt út fyrstu fastalykkjunni með 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferðin með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Þegar heklað er fram og til baka endar umferðin með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst heklað í hring frá miðju að aftan, síðan er heklað fram og til baka yfir höfuð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! HÚFA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með BabyAlpaca Silk og tengið saman í 1 hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 2 stuðla í hverja fastalykkju = 24 stuðlar. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fastalykkju í fyrsta/næsta stuðul, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * Heklið 1 stuðul í fyrstu/næstu fastalykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 stuðlar með 3 loftlykkjum á milli hverra. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * Heklið 1 stuðul í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 64 stuðlar. UMFERÐ 8: * Heklið 1 fastalykkju í hvern af fyrstu/næstu 7 stuðlum, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 fastalykkjur. Endið hér í stærð 0/6 + 6/12 mánaða. UMFERÐ 9: * Heklið 1 stuðul í fyrstu/næstu fastalykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 stuðlar með 3 loftlykkjum á milli hverra. UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga = 96 fastalykkjur. Endið hér í stærð 12/18 mánaða + 2 ára. ALLAR STÆRÐIR: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 6-8-12 (12) lykkjur (séð frá réttu = aftan við hnakka). Byrjið frá röngu við prjónamerki í byrjun umferðar og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju fram að seinna prjónamerki JAFNFRAMT er aukið út um 7-15-4 (10) stuðla jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 73-79-88 (94) stuðlar í umferð (ekki er heklað yfir 6-8-12 (12) fastalykkjur á milli 2 prjónamerkin). Heklið nú mynstur fram og til baka eins og útskýrt er í A.1. Endurtakið umferð 1-8 þar til stykkið mælist ca 12-13-14 (15) cm frá prjónamerki – endið eftir 1 umferð með fastalykkjum frá röngu. Klippið frá og festið enda. GATAUMFERÐ FYRIR SILKIBORÐA: Heklið kant neðst niðri á húfunni þannig: Byrjið frá réttu og heklið fastalykkjur meðfram annarri skammhliðinni neðst niðri á húfunni (heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkjuumferð og 2-3 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð), heklið 1 fastalykkju í hverja af 6-8-12 (12) fastalykkjum á milli 2 prjónamerkja á hring og heklið fastalykkjur meðfram hinni skammhliðinni (1 fastalykkja í hverja fastalykkjuumferð og 2-3 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð). Snúið stykkinu og heklið 1 umferð með fastalykkjum JAFNFRAMT er fjöldi lykkja jafnaður út þannig að lykkjufjöldinn verði deilanlegur með 4 + 2. Næsta umferð er hekluð þannig: 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), 1 stuðull í næstu fastalykkju, * hoppið yfir 2 fastalykkjur, 2 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja og eina af 2 næstu fastalykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina. Heklið 2 umferðir fram og til baka með fastalykkjum (1 fastalykkja í hvern stuðul og 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga). Klippið frá og festið enda. KANTUR FRAMAN Á HÚFU: Heklið 1 umferð fastalykkjur frá röngu framan á húfuna JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út þannig að lykkjufjöldinn verði deilanlegur með 3 + 1. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina út. Klippið frá og festið enda. Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum gataumferðina neðst niðri á húfunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mysweetiehat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.