DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

My Sweetie

Heilgalli fyrir skírn eða nafnagjöf heklaður ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0-2 ára.

DROPS Baby 29-5
DROPS Design: Mynstur bs-014-by
Garngrupp A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92)

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250 (300) g litur 1101, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 stuðlar á breidd og 9 umferðir með áferðamynstri á hæðina (1 umferð með áferðamynstri = 1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar) verði 10 x 10 cm.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5-6-7 (8) st.

FYLGIHLUTIR: Ca 1,5 metrar silkiborði (ca 5 mm breiður).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Heilgallinn í uppskrift er útskýrður með opi og tölukanti að aftan og gataumferð fyrir skrautborða við miðju að framan, en heilgallinn er alveg eins að framan og að aftan og er því hægt að snúa honum við og nota hann með op að aftan eða með op að framan (eins og útskýrt er á mynd). Ef óskað er eftir því að hafa opið að framan er hægt að hekla umferð með áferðamynstri yfir miðju 6 lykkjur í miðju að aftan ef maður vill ekki hafa gataumferð.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með stuðlum.
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur.
Umferðin endar með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með fastalykkjum.

UMFERÐ MEÐ ÁFERÐAMYNSTRI:
* 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, endurtakið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 umferð áferðamynstur).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju.

MYNSTUR-1:
Sjá mynsturteikningu A.1. Þegar umferð 1-3 hefur verið hekluð einu sinni á hæðina eru umferðir 2 og 3 endurteknar.

MYNSTUR-2:
Sjá mynsturteikningu A.2.

ÚRTAKA:
Heklið 1 fastalykkju/stuðul, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju/stuðul, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (nú hefur fækkað um 1 fastalykkju/stuðul).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt stykkið er heklað fram og til baka og heklað er ofan frá og niður frá miðju að aftan – LESIÐ LEIÐBEININGAR.

BERUSTYKKI:
Heklið 77-77-81 (85) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við) með heklunál 3 með BabyAlpaca Silk.
Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 76-76-80 (84) fastalykkjur í umferð.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við op – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerkin eru sett í): Hoppið yfir fyrstu 12-12-13 (14) fastalykkjur (= hægra bakstykki þegar flíkin er mátuð), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir næstu 12 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir næstu 12-12-13 (14) fastalykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu fastalykkju (= miðja að framan), hoppið yfir 12-12-13 (14) fastalykkjur (þessar 24-24-26 (28) fastalykkjur = framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 12 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fastalykkju (nú eru 12-12-13 (14) fastalykkjur á vinstra bakstykki á eftir síðasta prjónamerki).

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umferð frá réttu þanni:
Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, nema í hverja fastalykkju með prjónamerki er heklað 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 88-88-92 (96) stuðlar í umferð.
Heklið nú UMFERÐ MEÐ ÁFERÐAMYNSTRI – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju frá röngu og heklaðar eru 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu). Að auki er MYNSTUR-1 heklað – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 6 lykkjur við miðju að framan (ör í mynsturteikningu A.1 merkir miðju að framan). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um loftlykkjuboga í hverri laskalínu (= 16 stuðlar útaukning í umferð – ATH: Heklið um báða loftlykkjubogana). Endurtakið útaukningu í hverri umverð frá réttu alls 1-2-3 (4) sinnum og síðan í annarri hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum í öllum stærðum = 136-152-172 (192) lykkjur í umferð.
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 20-22-25 (28) stuðlum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 28-32-36 (40) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-8-8 (6) loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 40-44-50 (56) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 28-32-36 (40) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-8-8 (6) loftlykkjur og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 20-22-25 (28) fastalykkjum (= vinstra bakstykki).
Nú hafa verið heklaðar alls 7-8-9 (10) umferðir með áferðamynstri frá uppfitjunarkanti, stykkið mælist ca 11-12-13 (14) cm frá öxl og berustykki er nú lokið. Heklið fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu – heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja af 8-8-8 (6) loftlykkjum undir hvorri ermi = 96-104-116 (124) fastalykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með áferðamynstri og A.1 eins og áður – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist ca 24-30-32 (36) cm frá hálsmáli (þ.e.a.s. ca 27-33-35 (39) cm frá öxl) – stillið af að síðasta umferð sé 1 umferð með stuðlum frá réttu, endar bæði op fyrir kant við miðju að aftan og A.1 við miðju að framan. Setjið 1 prjónamerki í ystu lykkju í byrjun og í lok umferðar til að merkja op á kanti. Haldið áfram fram og til baka með umferð með áferðamynstri yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 29-35-39 (43) cm frá hálsi (og ca 32-38-42 (46) cm frá öxl) skiptis stykkið upp fyrir skálmar og hvor skálm er hekluð til loka fyrir sig.

SKÁLM:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram með umferð með áferðamynstri og til baka yfir fyrstu 48-52-58 (62) lykkjur í umferð (þ.e.a.s. yfir helming af lykkjunum).
Þegar skálmin mælist 2-2-3 (3) cm frá prjónamerki er fækkað um 1 fastalykkju/stuðul í hvorri hlið -LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 1½-2-2 (2½) cm millibili alls 7-7-8 (8) sinnum) = 34-38-42 (46) lykkjur. Þegar skálmin mælist 14-17-20 (25) cm frá prjónamerki við skiptingu eru heklaðar fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur í 4 cm. Klippið frá og festið enda. Skálmin mælist ca 18-21-24 (29) cm og allur gallinn mælist ca 50-59-66 (75) cm frá öxl.
Heklið hina skálmina á sama hátt.

ERMI:
= 28-32-36 (40) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig: Heklið 4-4-4 (3) loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju og heklið 6-6-6 (5) loftlykkjur. Snúið stykkinu, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja af 2-2-2 (1) næstu loftlykkjum, 1 stuðul í hverja fastalykkju frá fyrri umferð og 1 stuðul í hverja af 4-4-4 (3) loftlykkjum frá byrjun fyrri umferðar = 36-40-44 (46) lykkjur í umferð. Heklið nú umferð með áferðamynstri fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju á hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 6 -4-3½ (4½) cm millibili alls 2-3-4 (4) sinnum) = 32-34-36 (38) lykkjur. Þegar ermin mælist 13-15-17 (21) cm frá prjónamerki við handveg eru heklaðar fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur í 4 cm. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 17-19-21 (25 cm) frá prjónamerki.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogana.
Saumið saman op undir ermum. Brjótið e.t.v. uppá kantinn neðst á ermum og á skálmum.
Saumið saman op við miðju að aftan frá prjónamerki þar sem kantur fyrir tölur endaði og niður að skiptingu fyrir skálmum – saumið í ystu lykkjubogana.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá röngu neðst niðri á hægra bakstykki og heklið MYNSTUR-2, þ.e.a.s. heklið þannig: 1 fastalykkja um ysta stuðulinn, * heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um næsta stuðul, 1 fastalykkja um næsta stuðul *, endurtakið frá *-* upp meðfram hægra bakstykki fyrir háls og endið með 1 keðjulykkju yst í hornið við hálsmál.
Snúið stykkinu og heklið til baka frá réttu þannig: 1 loftlykkja (jafngildir 1 fastalykkju), heklið síðan * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkju í næstu fastalykkju, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp *, endurtakið frá *-* og endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í síðustu fastalykkju. Klippið frá og festið enda.
Saumið niður kant að framan neðst niðri við skiptingu.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN OG HÁLSMÁL:
Heklið fyrstu umferð eins og á hægri kant að framan, en byrjið frá réttu neðst niðri á vinstra bakstykki og heklið eins og á hægri kant fyrir tölur upp að hálsi, en í stað þess að enda með 1 keðjulykkju í horni við háls heldur kantur áfram í kringum háls þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju meðfram hálsmáli þar til 3 lykkjur eru eftir á undan fyrstu lykkju með prjónamerki í (laskalína), hoppið yfir þessar 3 lykkjur og heklið 4 stuðla í lykkjuna með prjónamerki í, hoppið yfir 3 næstu lykkjur og haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næstu lykkju með prjónamerki í (laskalína), hoppið yfir þessar 3 lykkjur og heklið 4 stuðla í lykkju með prjónamerki í. Haldið svona áfram í kringum hálsmál og endið með 1 keðjulykkju yst í umferð, snúið stykki og heklið næstu umferð frá röngu (í kringum hálsmál) þannig: * 1 fastalykkja í fyrstu/næstu lykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* fram að horni á undan kant fyrir tölur, síðan er heklað niður yfir kant fyrir tölur eins og í hægri kanti. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í hægri kant að framan. ATH: Hneppt er í gegnum loftlykkjuboga í vinstri kant að framan – byrjið með 1 tölu í efsta loftlykkjubogann, síðan á að vera 1 tala í öðrum hverjum loftlykkjuboga niður. Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum gataumferð í A.1 meðfram miðju að framan (byrjið og endið við hálsmál og endið með að hnýta slaufu við hálsmál). Ef nota á gallann með op að framan er hægt að þræða silkiborðann upp og niður á milli stuðla meðfram miðju að framan (sjá ljósmynd).

Mynstur

symbols = fyrsta umferð er útskýrð í uppskrift
symbols = 1 mynstureining á hæðina
symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = miðja
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Pirjo wrote:

Ärm; var börjar man med första maskan?

11.08.2023 - 11:56

DROPS Design answered:

Hej Pirjo, du börjar ärmen med 4 luftmaskor (under ärmen) sedan virkar du i första maskan under ärmen och fortsätter runt, avslutar med 6 lm, vänd osv :)

16.08.2023 - 10:44

country flag Vanesa wrote:

Hola estoy tejiendo las mangas y no entiendo ...no las tejo en redondo? Que hago con los puntos que agregue debajo de la manga...les cuento tengo 43 puntos de manga ( agregue 7 puntos de cadeneta cuando termine el canesu) Tejo ida y vuelta las filas en relieve? Que hago con los 7 puntos de cadeneta, los tejo? Como hago las costuras ? Y si tejo en redondo mejor? Cómo sería? Gracias

01.07.2023 - 15:22

DROPS Design answered:

Hola Vanesa, no, las mangas se trabajan de ida y vuelta y, para terminar, se hará una costura en la parte inferior de la manga. En el canesú, saltaste los puntos de cada manga. Los puntos montados en el canesú son para la sisa en el cuerpo y no las mangas; en la manga se montan los puntos para la sisa al principio de la manga (los puntos de cadeneta dependen de la talla trabajada).. Los puntos de la sisa en el cuerpo se cosen a los de la sisa en la manga. La manga tiene que trabajarse de ida y vuelta porque el canesú se trabaja de ida y vuelta (debido a la abertura en el delantero). De esta forma, el dibujo queda igual en la manga y el cuerpo.

10.07.2023 - 15:17

country flag Birgit wrote:

Hei, i den norske oppskriften under erme mangler det tydelig noe info, da det starter med =28-32-36 (40)m. Hva skal egentlig stå foran der, og hvor er det meningen at man skal begynne med luftmaskene? Ser det er flere som har lurt på dette, men syntes ikke svarene er spesielt gode. Skal man starte i de 8-8-8 (6) lm fra bærestykket?

12.01.2023 - 19:12

DROPS Design answered:

Hei Birgit, Masker ble hoppet over på bærestykket da det ble delt for bolen og ermene. Det er disse masker som er beskrevet her. Du begynner omgang på retten og fra bunnen av ermhullet, hekle riktig antall luftmasker, deretter 1 fastmaske i alle masker rundt ermhullet, inkl. luftmaskene fra begynnelse av runden. God fornøyelse!

13.01.2023 - 08:01

country flag Camilla Jönsson wrote:

Hej, ska det virkas 2 lm över föregående varvs lm på sista stolpvarvet i oket, och även mönster A1 på detta varvet? Tacksam för hjälp!

02.08.2022 - 18:05

DROPS Design answered:

Hej Camilla, de 2 rækker hækles over hele dressen :)

05.08.2022 - 09:07

country flag Claudia wrote:

Hallo, was häkel ich denn in den Hinreihen in die Luftmaschenbögen wo keine Zunahnmen sind?

15.11.2021 - 18:04

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, dann häkelt man 2 Luftmaschen (wie bei den Rückreihen). Viel Spaß beim häkeln!

16.11.2021 - 08:41

country flag Tina wrote:

Hej! När jag ska göra vartannat varv vid raglanökningen i oket, hur virkar jag över lmb i det ickeökande stolpvarvet?

01.06.2021 - 07:58

DROPS Design answered:

Hej Tina, det virkas fram och tillbaka med 1 fastmaska/stolpe i varje maska från föregående varv, men på varje varv med fastmaskor från avigsidan virkas det 2 luftmaskor över de 2 luftmaskorna från föregående varv i raglanlinjerna.

02.06.2021 - 12:03

country flag Tammy Marks wrote:

Hello from the United States. I love the pattern but I am not used to following a pattern in narrative form. I am used to having each row written out so that I can cross off the rows as I finish them. This helps me pick up when I have to put my work down to do something. Any chance you could write this pattern out by rows? Thank you.

29.05.2021 - 06:04

DROPS Design answered:

Dear Tammy, in short no. The longer version is that this way (with charts and such), you not only see the very next step, but also the bigger picture, in how stitches and rows relate to each other, it is easier to modify patterns. W do have a lesson on how to read diagrams, if that is the problem. Happy Knitting!

29.05.2021 - 11:09

country flag Tünde wrote:

Jó napot kívánok.Nem értem a raglán vonal leírását.azt írja hogy az első 3sor után a 2.-3.sorral folytatjuk.De nem tudom melyek ezek a sorok.Az első A1diagram a raglán szaporításra vonatkozik?Még soha nem horgoltam kezeslábast babáknak.Köszönöm szépen!

09.01.2021 - 21:47

country flag Louise wrote:

Ich habe jetzt 5x angefangen und komme nicht weiter. M.M. eine sehr schlechte Beschreibung. Zuviele eingeschobene Bemerkungen. Es qäre besser, die Anleitung Reihe für Reihe zu schreiben. Alles Andere ist zu verwirrend. Ich gebe auf und suche was Besseres.

19.08.2020 - 17:22

country flag Dorien wrote:

Als ik het dan goed begrijp, zou je afwisselend per toer moeten meerderen. Maar als je niet meerdert ben je ook je lossenlussen kwijt om daarna wel in te meerderen?

23.07.2020 - 08:57

DROPS Design answered:

Dag Dorien,

Je meerdert door 2 steken in dezelfde steek te haken, je haakt geen lussen om in te meerderen. Dus als je bijvoorbeeld meerdert in een toer met stokjes, dan haak je 2 stokjes in 1 steek van de vorige toer. De markeerdraden blijven steeds op dezelfde plek en neem je in de hoogte mee, zodat je steeds weet waar je moet meerderen.

02.08.2020 - 14:13