Schwörer skrifaði:
Werden die Umschläge im gestreiften Teil verschränkt abgestrickt oder nur abgestrickt steht nirgends bei den Tips Mit freundlichen Grüssen Pia Schwörer
12.05.2017 - 10:33DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schwörer, die Umschläge, die verschränkt gestrikt sind, sind in der Reihe 6, 8, 10 und 12 beschrieben. Viel Spaß beim stricken!
12.05.2017 - 13:45
Heidi Breinlinger skrifaði:
Achtung. Nach der Handwäsche mit Wollwaschmittel ist das Weisse türkis verfärbt. Ärgerlich!
22.04.2017 - 17:27DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Breilinger, hier finden Sie tipps zur Garnpflege. Mehr Auskünfte bekommen Sie gerne von Ihrem DROPS Laden. Viel Spaß beim stricken!
24.04.2017 - 10:54
Lisa Lebrija skrifaði:
Nu har jeg strikket dette sjal/tørklæde, og jeg må sige kanten med den 1. maske i dobbelt garn og omslag på hver pind i mønsteret er rigtig grim. Kunne den virkelig ikke være gjort på en anden måde?
13.04.2017 - 16:45
Shifting Tide#shiftingtideshawl |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Sjal í garðaprjóni, röndum og gatamynstri, prjónað úr DROPS Fabel.
DROPS 178-33 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. RENDUR: * 2 umferð garðaprjón með litnum bláa lónið, 2 umferð garðaprjón með litnum natur *, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR: Til að sleppa við að hafa langt bil þar með þráðum meðfram hlið á sjali þegar prjónaðar eru rendur, prjónið síðustu lykkjuna í hvorri hlið (bæði frá réttu og frá röngu) með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum bláa lónið (= 2 þræðir). Til að geta þetta er þráðurinn notaður annað hvort bæði innan í og utan með dokkunni eða þá er undið upp smá hnykill í hvorum lit sem fylgja sjalinu meðfram annarri hliðinni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fyrst er prjónað GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, síðan er prjónað gatamynstur. SJAL: Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum natur og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt = 7 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt = 11 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna (= miðjulykkja). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, prjónið miðjulykkju brugðið og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið síðan garðaprjón í RENDUR – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, miðjulykkja er prjónuð í sléttprjóni og aukið út þannig – LESIÐ LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA: UMFERÐ 5 (= rétta): 1 lykkja slétt með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum bláa lónið (= 2 þræðir), prjónið síðan með 1 þræði í litnum bláa lónið þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum bláa lónið. UMFERÐ 6 (= ranga): 1 lykkja slétt með 2 þráðum, prjónið síðan með 1 þræði í litnum bláa lónið þannig: 2 lykkjur slétt, prjónið næsta uppslátt snúinn slétt svo ekki myndist gat, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, prjónið miðjulykkju brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrsta uppsláttinn snúinn slétt, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju slétt með 2 þráðum. UMFERÐ 7 (= rétta): 1 lykkja slétt með 2 þráðum, prjónið síðan með 1 þræði í litnum natur þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt með 2 þráðum. UMFERÐ 8 (= stuttar umferðir frá röngu): 1 lykkja slétt með 2 þráðum, prjónið síðan með 1 þræði í litnum natur þannig: 2 lykkjur slétt, 1 lykkja snúin slétt (svo ekki myndist gat), 4 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 9 (= rétta): Takið 1. lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, herðið á þræði og prjónið 6 lykkjur slétt til baka með litnum natur og síðustu lykkju slétt með 2 þráðum. UMFERÐ 10 (= ranga): 1 lykkja slétt með 2 þráðum, prjónið síðan með 1 þræði í litnum natur þannig: Prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, prjónið miðjulykkju brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrsta uppsláttinn snúinn slétt (svo ekki myndist gat), prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju slétt með 2 þráðum. UMFERÐ 11 (= stuttar umferðir frá réttu): 1 lykkja slétt með 2 þráðum, prjónið 7 lykkjur slétt með litnum natur. UMFEÐR 12 (= ranga): Takið 1. lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, herðið á þræði og prjónið 6 lykkjur slétt til baka með litnum natur og prjónið síðustu lykkju slétt með 2 þráðum. Endurtakið umferð 5-12 fram og til baka, en við hverja endurtekningu eru prjónaðar 2 lykkjur fleiri í stuttu umferðum þar til prjónaðar hafa verið stuttar umferðir yfir þessar 26 lykkjur til loka (aðrar lykkjur halda áfram eins og áður). Eftir hverja endurtekningu hafa verið auknar út 12 nýjar lykkjur. Haldið svona áfram þar til 347 lykkjur eru í umferð (stykkið mælist nú ca 38 cm meðfram miðju lykkju). Prjónið með 1 þræði í litnum natur, en síðasta lykkja í hvorri hlið er prjónuð með 2 þráðum í litnum natur til loka. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með útaukningu í hvorri hlið og hvoru megin við miðjulykkju eins og áður = 353 lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.1 til A.6 þannig: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir 1 lykkju, prjónið A.2 þar til 7 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.3 yfir næstu 7 lykkjur, 1 lykkja með sléttprjón (= miðjulykkja), A.4 yfir næstu 7 lykkjur, A.5 er endurtekið þar til 1 lykkja er eftir og prjónið A.5 yfir 1 lykkju. Prjónið og aukið svona út þar til prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar af A.1 til A.6 á hæðina. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af með því að slá 1 sinni uppá prjóninn þannig: Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #shiftingtideshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.