MarieReine skrifaði:
Where is the tutorial for the gnomes? Thank you
10.11.2022 - 02:46DROPS Design svaraði:
Hi MarieReine, Here is the link for the tutorial: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1101&lang=no Happy crafting!
10.11.2022 - 06:59
Lorna Mear skrifaði:
Can you knit these on magic loop needles ?
17.11.2020 - 11:17DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Mear, you can use the magic loop technique for every small project: socks, mittens, even these small santas. Happy knitting!
17.11.2020 - 14:01
Susan Cox skrifaði:
Is there an english version for this pattern?
28.10.2020 - 14:27DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cox, sure there is :) Edit the language by clicking on the scrolling down menu under the photo. Happy knitting!
28.10.2020 - 15:38
Gisele skrifaði:
Such a fun pattern! Thank you for sharing!
02.11.2018 - 13:23
Teresa skrifaði:
Salve, con le quantità di filato indicate, quanti babbo e alberi di natale riuscirei a fare?grazie '
19.11.2017 - 01:58
Season's Treats |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir jólasveinar og jólatré: Flöskuhulstur á tappa í garðaprjóni og sléttprjóni úr DROPS Nepal. Þema: Jól
DROPS Extra 0-1347 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. RENDUR-1 (lítið jólatré): Allar umf sem prjónaðar eru sl eru prjónaðar með litnum ljós beige. Allar umf sem prjónaðar eru br eru prjónaðar með litnum skógur RENDUR-2 (stórt jólatré): Allar umf sem prjónaðar eru sl eru prjónaðar með litnum skógur. Allar umf sem prjónaðar eru br eru prjónaðar með litnum ljós beige. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASVEINAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Prjónið 2 alveg eins jólasveina, nema í mismunandi litasamsetningum. Skegg er sett á jólasveinakallinn í lokin. JÓLASVEINAKELLING: BÚKUR: Prjónað er í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 20 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum djúp rauður, skiptið l jafnt á 4 sokkaprjóna. Prjónið 1 umf br, 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan þannig: Prjónið * 2 umf slétt með litnum ljós beige, 1 umf sl með litnum djúp rauður *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og prjónið 2 umf slétt með litnum ljós beige. Prjónið síðan 4 umf garðaprjón með litnum djúp rauður. Haldið síðan áfram með húfuna. HÚFA: Skiptið yfir í litinn ljós beige og prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: 8 l br, 5 l sl, snúið við (ATH! Herðið á þræði þegar snúið er við svo ekki myndist gat) og prjónið 5 l br til baka, snúið við og prjónið br yfir síðustu 12 l í umf. Prjónið 2 umf garðaprjón. Skiptið yfir í litinn djúp rauður og prjónið 1 umf slétt. Í næstu umf er fækkað um 1 l í byrjun á hverjum sokkaprjóni með því að prjóna 2 fyrstu l slétt saman (4 l færri) = 16 l. Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf þar til 4 l eru eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. DÚSKUR OG NEF: Gerið 1 lítinn dúsk þannig: Vefjið einn þráð í litnum beige ca 7 sinnum utan um 3 fingur, hnýtið enda fast um miðjuna. Klippið lykkjurnar á hvorri hlið þannig að dúskurinn mælist ca 1½ cm að þvermáli. Festið dúskinn efst á húfuna og saumið hann niður í aðra hlið á húfunni með litlu spori. Saumið eina trékúlu fyrir nef undir kant á húfu, þar sem prjónað er fram og til baka. Fyllið toppinn á húfunni með smá afgangs garni og dragið jólasveininn yfir korktappa á vínflösku. JÓLASVEINAKALL: Prjónið alveg eins og jólasveinakelling, nema skiptið um lit á búknum. Öll húfan er prjónuð með litnum djúp rauður Skegg: Klippið einn þráð í litnum ljós beige ca 7 cm og dragið utan um eina lykkju í neðrikanti á ljós beige kanti undir nefi – látið þráðinn hanga laust niður í hvorri hlið á lykkju. Festið 2 þræði til viðbótar alveg eins. Deilið upp endana þannig að það myndist kögur og klippið skeggið í óskaða lengd. ------------------------------------------------------- JÓLATRÉ - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Prjónið 1 lítið jólatré með röndum í litnum skógur, 1 stórt jólatré með röndum í litnum ljós beige og 1 einlitt jólatré í litnum skógur. LÍTIÐ JÓLATRÉ MEÐ RÖNDUM: Prjónið í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 20 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós beige, skiptið l jafnt á 4 sokkaprjóna – LESIÐ RENDUR-1! Prjónið 1 umf br, 3 umf sl, 1 umf br. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan þannig: Prjónið * 1 umf slétt þar sem fækkað er um 1 l í byrjun á hverjum sokkaprjóni með því að prjóna fyrstu 2 l slétt saman (= 4 l færri), 2 umf sl, 1 umf br, 3 umf sl, 1 umf br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Fyllið toppinn á jólatrénu með smá afgangs garni og dragið jólatréð yfir korktappa á vínflösku. STÓRT JÓLATRÉ MEÐ RÖNDUM: Prjónið í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 20 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum skógur, skiptið l jafnt á 4 sokkaprjóna – LESIÐ RENDUR-2! Prjónið 1 umf br, * 3 umf sl, 1 umf br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTU! Prjónið síðan þannig: Prjónið * 1 umf sl þar sem fækkað er um 1 l í byrjun á hverjum sokkaprjóni með því að prjóna fyrstu 2 l slétt saman (= 4 l færri), 2 umf sl, 1 umf br, 3 umf sl, 1 umf br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Fyllið toppinn á jólatrénu með smá afgangs garni og dragið jólatréð yfir korktappa á vínflösku. STÓRT JÓLATRÉ, EINLITT: Prjónið á sama hátt og stórt jólatré með röndum, nema án þess að skipta um lit. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1347
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.