Stefania Ghelardi skrifaði:
Vorrei sapere se il modello si puo eseguire anche von ferri tradizionali e non circolari? Grazie
30.01.2018 - 19:37DROPS Design svaraði:
Buonasera Stefania. Le istruzioni sono per una lavorazione in ferri di andata e ritorno. Può usare i ferri dritti e seguire le spiegazione senza apportare modifiche. Buon lavoro!
30.01.2018 - 19:50Michal Woods skrifaði:
I have knitted for over 40 years and this pattern is a mystery to me. I do not understand how the A1 sequence works and creates the rib pattern. I have tried and tried every way possible. Does the diagram supposed to illustrate the sequence on 4 rows? Maybe there is just too much lost in translation. Please help if you can. Thanks! Michal
19.11.2017 - 04:48DROPS Design svaraði:
Dear Mr Woods, A.1 is worked back and forth starting from RS at the bottom corner on the RS: Row 1 (RS, read from the right towards the left): K1, P1, K1. Row 2 (WS, read from the left towards the right): K2, P1. And repeat these 2 rows. Happy knitting!
20.11.2017 - 10:16
Wil Taal skrifaði:
Ik snap het niet, bij de omschrijving staat Zet 81-90-96-105-114-126 st op (incl. 1 kant st in ribbelst aan elke kant) met 1 draad Karisma en 1 draad Kid-Silk (= 2 draden), maar er staat nergens dat je alleen met Karisma verder moet gaan. Als het hele werk met 2 draden wordt gebreid, kom je toch Kid-Slik te kort ?
07.10.2017 - 21:22DROPS Design svaraði:
Hallo Wil, Kid silk is heel dun garen en wordt verkocht in bollen van 25 gram met een looplengte van 200 meter. Karisma wordt verkocht in bollen van 50 gram met een looplengte van 100 meter. Dus je hebt genoeg aan 150 gr kidsilk met 600 gram karisma. (maat S als voorbeeld genomen)
08.10.2017 - 19:49Jude Foster skrifaði:
I'm not understanding The main pattern in the body of the jumper and the vertical line of plain is not lining up ? Is there any video support ?
10.09.2017 - 10:49DROPS Design svaraði:
Dear Jude, you can find all the videos that can support the making of this sweater here. Happy Knitting!
10.09.2017 - 11:52
Beaver Ridge#beaverridgesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma og DROPS Kid-Silk með áferðamynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 174-16 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn. Nýjar l eru prjónaðar inn í mynstur A.1. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 81-90-96-105-114-126 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið í garðaprjóni) með 1 þræði Karisma og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, 1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm – passið að síðasta umf sem er prjónuð sé frá röngu, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Prjónið mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 3 l) 26-29-31-34-37-41 sinnum á breidd, 1 l sl (= fyrsta l í A.1), 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16-15-16-15-16 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út með 14-14-15-15-16-16 cm millibili alls 3 sinnum = 87-96-102-111-120-132 l. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fellið af 3 l í byrjun næstu 2 umf fyrir handveg = 81-90-96-105-114-126 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið og fellið af l fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 2 l 1-3-3-3-5-7 sinnum og 1 l 1-1-1-3-3-3 sinni = 75-76-82-87-88-92 l. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, setjið miðju 27-28-28-29-30-30 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er felld af 1 l = 23-23-26-28-28-30 l eftir fyrir hvora öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 61-63-64-66-67-69 cm setjið miðju 15-16-16-17-18-18 l á band fyrir hálmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af l fyrir hálsmáli í hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 3 sinnum og 1 l 1 sinni = 23-23-26-28-28-30 l eftir fyir hvora öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 51-54-54-57-57-60 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði Karisma og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan þannig (séð frá réttu): 1 kantlykkja í garðarpjóni, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, 1 l sl (= fyrsta l í A.1), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Haldið áfram með mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 l eru eftir, 1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 9-9-9-8-10-10 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 5-5-3½-3½-2½-2½ cm millibili alls 9-9-12-12-15-15 sinnum = 69-72-78-81-87-90 l – útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Þegar stykkið mælist 53-52-51-50-49-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 1-2-4-5-7-8 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 59 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af, stykkið mælist ca 60 cm í öllum stærðum. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið síðan sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. HÁLSMÁL: Prjónið nú upp l í kringum háls með 1 þræði Karisma + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) þannig: Prjónið upp ca 80-90 l á hringprjóna nr 4,5 í kringum háls – ATH: Stillið af þannig að prjónað sé upp lykkjufjöldi á milli l á þræði á framstykki og á bakstykki sem gengur jafnt upp í stroff (1 l sl, 2 l br) allan hringinn í umf. Þ.e.a.s. fjöldi lykkja er deilanlegur með 3 og yfir l af þráðum er prjónað sl yfir sl og br yfir l sem eru br og garðaprjón. Prjónið stroff hringinn (1 l sl, 2 l br) þar til strofið mælist ca 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beaverridgesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.