Sabine Sommer skrifaði:
Zur Sicherheitsnadel im Daumen: müsste sie nicht eher von der Daumenwurzel Richtung Spitze gestochen werden, damit ich sie nach dem Filzen entfernen kann? Hier wäre eine Zeichnung hilfreich. Danke
22.11.2024 - 09:13DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Sommer, ja genau, von unten nach oben - siehe auch Video. Viel Spaß beim Stricken!
22.11.2024 - 14:05
Maxine skrifaði:
I’ve knitted these in a size small - not felted them yet. They are the size quoted before felting but I’ve used much less yarn than the pattern says - 70g of the grey and 15g each of the red and white. I have a whole ball of yarn of white and grey not touched and can probably get another two pairs out of what I have left! Not sure why you recommend so much yarn. Am looking forward to seeing how the felting works as they are huge at the moment!
04.02.2021 - 10:31
Tove Kraakenes skrifaði:
Hei. Er det ikke forskjell på høyre og venstre tommel her? Skal begynne på A1 men det står totalt 8 ggr på omg, hva menes her siden mønsteret går over mer en 8 omg? Strikker i str S. Håper på raskt svar siden jeg står fast.
17.12.2019 - 20:54DROPS Design svaraði:
Hej Tove, nej i dette mønster er der ikke forskel. Du gentager mønsteret 8 gange i løbet af omgangen og i højden strikkes det til diagrammet er færdigt. God fornøjelse!
15.01.2020 - 11:28
Åsa Karlsson skrifaði:
På filmen visar de att man ska göra ökningen genom att göra ett omslag och sen sticka den på nästa varv. Stämmer det. Vilken ålder är s till i detta mönster
20.01.2017 - 20:47DROPS Design svaraði:
Hej Åsa. Ja, det kan du fint göre. Husk den skal strikkes vrid for at lukke hullet. Det er en str S voksen str (dame). Saa en stor pige/teenager kan ogsaa sagtens bruge dem
23.01.2017 - 11:58
Åsa Karlsson skrifaði:
Om vilken maska ska jag öka tumkilen på . Det står att jag ska sätta markörer på m. 22 24 26 jag kan ju inte öka runt alla tre.
20.01.2017 - 20:43DROPS Design svaraði:
Hej Åsa. Du skal tage den maske til den str du laver. F.eks. str S er saa m. 22
23.01.2017 - 11:57
Hélène skrifaði:
Bonjour! Comment fait-on lorsque nous devons tricoter une couleur différente à chaque tour (Référence à votre vidéo rayures sans décalage) et ce pour un tricot en rond? veuillez m'excuser mais je suis incapable d'avoir accès aux questions pour cette vidéo. Merci!
09.01.2017 - 21:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène, vous pouvez procéder de la même façon pour le jacquard que pour les rayures (la vidéo des rayures sans décalage concerne également le tricot en rond). Bon tricot!
10.01.2017 - 09:37
Festive Foraging |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir og þæfðir vettlingar með norrænu mynstri fyrir jólin úr DROPS Lima. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1328 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið l á undan merki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan l með merki í, 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir merki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni á sokkaprjóna, frá úlnlið upp að fingurtoppum. VETTLINGUR: Fitjið upp 60-60-66 l á sokkaprjóna nr 4,5 með litnum grár DROPS Lima. Prjónið 4 umf með llitnum grár. Prjónið síðan með litnum rauður JAFNFRAMT í næstu umf er fækkað um 4 l jafnt yfir með því að prjóna 2 l slétt saman. Fækkið l svona í 4. hverri umf alls 3-3-3 sinnum = 48-48-54 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1 alls 8-8-9 sinnum í umf. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð 1 umf með litnum grár þar sem fækkað er um 4-0-2 l jafnt yfir = 44-48-52 l. Stykkið mælist ca 12 cm. Setjið 1 merki í 22.-24.-26. l í umf (= merki fyrir þumalfingur). Prjónið síðan með litnum grár JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við l með merki –lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið út utan við útauknar lykkjur í 4. hverri umf 5-6-7 sinnum til viðbótar (= alls 6-7-8 sinnum) = 56-62-68 l. Eftir síðustu útaukningu eru útauknar l + l með merki + 1 l hvoru megin við þessar l settar á þráð fyrir þumalfingur = 15-17-19 þumallykkjur. Fitjið upp 3 l fyrir aftan þumallykkjur = 44-48-52 l. Stykkið mælist ca 20-22-23 cm. Haldið áfram í sléttprjóni með litnum grár í hring yfir þessar l. Þegar stykkið mælist 5 cm í öllum stærðum frá opi fyrir þumalfingur er prjónuð 1 umf þar sem aukið er út um 4-0-2 l jafn yfir = 48-48-54 l. Prjónið nú mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 alls 8-8-9 mynstureiningar á breidd – stillið af að mynstrið sé staðsett yfir A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð 1 umf með litnum grár þar sem fækkað er um 4-0-2 l jafnt yfir = 44-48-52 l. Haldið áfram með litnum grár. Þegar stykkið mælist 10-10-9 cm frá opi fyrir þumalfingur eru sett 2 merki þannig: Setjið 1. merki í 1. l og 2. merki í 23.-25.-27. l. Í næstu umf er l fækkað á undan og á eftir báðum merkjum – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið l svona í annarri hverri umf 4-5-6 sinnum og í hverri umf 4 sinnum í öllum stærðum = 12 l í öllum stærðum. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALFINGUR: Þumalfingurinn er prjónaður með litnum grár. Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjóna nr 4,5 og takið upp 3 l í 3 útauknar lykkjur frá hönd = 18-20-22 l. Prjónið í hring á sokkaprjóna í sléttprjóni. Þegar þumalfingurinn mælist ca 6-6½-7 cm frá opi fyrir þumalfingur er fækkað um 2 l jafnt yfir (fækkið l með því að prjóna 2 l slétt saman) = 16-18-20 l. Prjónið 3 umf. Í næstu umf er fækkað um 6-8-8 l jafnt yfir = 10-10-12 l. Þegar stykkið mælist 7½-8-8½ cm prjónið allar l saman 2 og 2 = 5-5-6 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan vettling á sama hátt. ÞÆFING Á VETTLINGI: Til að koma í veg fyrir að þumalfingurinn þæfist saman er vettlingnum snúið við og festur er lítill plastpoki / silkiborði efst í þumalinn með öryggisnælu – opið á öryggisnælunni á að snúa upp að þumalfingrinum svo auðveldara sé að fjarlægja næluna síðar. Snúið vettlingnum við þannig að hann þæfist með réttuna út og plastpokinn / silkiborðinn sé innan í þumalfingrinum. Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík. Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1328
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.