Solfrid Birkeland skrifaði:
Mistet oppskrift på disse gode vottene.
28.04.2024 - 09:34
Britt Angell Nilsen skrifaði:
Hei Er det meningen at skifte av alle garn fargene skal ligge i den ene siden av votten og ikke midt bak? Slik at tomlene også kommer mer ut på siden og avgjør hvordan fellingen blir? Håper dere forstår hva jeg mener:) Takk for svar! Hilsen Britt
31.05.2023 - 22:22DROPS Design svaraði:
Hei Britt Angell. Omgangens start / slutt er i siden på votten, slik at all trådbytte blir i siden på votten. La f.eks en merketråd følge starten oppover og når du skal begynne økningene til tommelen ser du enkelt hvor du skal øke på både høyre og venstre vott. Når du skal felle vil du lett se hvor du skal sette merketrådene i hver side av votten. mvh DROPS Design
05.06.2023 - 06:09
Isabel skrifaði:
Buenos días, imagino que no importará demasiado pero en la explicación dice que para hacer la manopla izquierda, a la hora de los aumentos para el pulgar, hay que aumentar a los lados del anteúltimo punto. Mi pregunta es si es el anteúltimo o penúltimo punto????
21.09.2021 - 09:46DROPS Design svaraði:
Hola Isabel, penúltimo y anteúltimo es lo mismo, es el punto justo antes del último.
26.09.2021 - 20:46
Åsa skrifaði:
Förstår inte riktigt hur man gör med tummen
10.07.2019 - 16:24DROPS Design svaraði:
Hej. Kanske denna video kan vara till hjälp. Lycka till!
11.07.2019 - 08:08
Bente Mathisen skrifaði:
Hei. Har nå gjort flere forsøk men får ikke mønsteret til å stemme. Det står i oppskriften; "strikk første m i A.1 (slik at mønsteret starter og slutter likt innenfor stolpen i hver side – NB: Det økes ikke i denne m) og avslutt med 5 stolpe-m i rille." Skal jeg lage et kast som første maske etter de fem stolpemaskene i starten av omgang 1, 5, 9 osv? Skal jeg lage et kast som siste maske før masken som er til overs før de siste kantmaskene på omg 2, 7 osv.?
22.08.2017 - 23:57DROPS Design svaraði:
Hei Bente. Gjelder dette spørsmålet vottene i oppskrift DROPS Childern 27-35? Kan ikke se at det stemmer :) Fint om du legger til spørsmålet under den modellen du strikker (og skriv hvilken størrelse det gjelder), så skal vi hjelpe deg.
23.08.2017 - 11:22
Wild Blueberrie Mittens#wildblueberriemittens |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir vettlingar með mynsturbekk úr DROPS Karisma. Stærð börn 1-6 ára
DROPS Children 27-35 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 34-36-38-42 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós grár. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Eftir A.1 er prjónað með litnum ljós grár til loka. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6-7-8-9 cm prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 4-4-4-6 l jafnt yfir = 30-32-34-36 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 l sl, 1 l br) í 3-3-4-4 cm. Eftir stroffið mælist vettlingurinn 9-10-12-13 cm. Skiptið aftur til baka yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 3-5-5-7 umf sléttprjóni eftir stroff byrjar útaukning fyrir op fyrir þumalfingur og aukið út um 1 l hvoru megin við aðra l í umf – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umf alls 3-3-4-4 sinnum (aukið út hvoru megin við allar þumal-l, þ.e.a.s. það verða 2 l fleiri á milli uppslátta í hvert skipti). Eftir alla útaukningu eru 7-7-9-9 þumallykkjur og 36-38-42-44 l alls á prjóni. Þegar vettlingurinn mælist 12-13½-16-17½ cm (stykkið mælist ca 3-3½-4-4½ cm frá stroffi) setjið 7-7-9-9 þumallykkjur á þráð. Fitjið upp 1 nýja l yfir l á þræði = 30-32-34-36 l á prjóni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar vettlingurinn mælist 17-18-21-23 cm (stykkið mælist ca 8-8-9-10 cm frá stroffi) setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 15-16-17-18 l á milli prjónamerkja). Í næstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 l færri). Fækkið l í annarri hverri umf alls 4 sinnum og síðan í hverri umf alls 2 sinnum = 6-8-10-12 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 3-4-5-6 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 20-21-24-26 cm. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka 7-7-9-9 l af þræði yfir opi fyrir þumalfingur á sokkaprjón nr 3,5 og prjónið að auki upp 5 nýjar l með litnum ljós grár í kantinn á bakhlið á þumallykkjum = 12-12-14-14 l. Prjónið sléttprjón hringinn í 3-3½-4-4½ cm. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-6-7-7 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið vinstri vettling á sama hátt, nema aukið út fyrir þumalfingur hvoru megin við næst síðustu l í umf. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wildblueberriemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.