From my Angle#frommyanglesweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca með marglitu mynstri, prjónuð í vinkil ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-24 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH: Þegar mynstur er prjónað fram og til baka er prjónað þannig: Ef þráðurinn sem prjóna á með er öfugu megin við stykkið, færið l til baka og prjónið 2 umf frá sömu hlið eða klippið frá ef það er nauðsynlegt. LASKALÍNA: Aukið er út mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki. Aukið út með því að slá uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður SNÚINN slétt jafnóðum inn í mynstur, það eiga ekki að myndast göt – LESIÐ LEIÐBEININGAR! FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki (sem staðsett eru í l) þannig: Aukið út í hverri umf alls 6-12-10-22-18-32 sinnum og aukið út í annarri hverri umf alls 28-28-30-28-34-30 sinnum (= alls 34-40-40-50-52-62 sinnum). ERMI: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 2. og 5. prjónamerki og á undan 3. og 6. prjónamerki (sem staðsett eru á milli l) þannig: Aukið út í hverri umf alls 0-4-6-4-0-0 sinnum og aukið út í annarri hverri umf alls 31-32-32-37-43-46 sinnum (= alls 31-36-38-41-43-46 sinnum). ÚRTAKA: Fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri = alls 4 l færri). Fækkið um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki, * 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum (= 2 l færri), 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum (= 4 l færri = alls 8 l færri). LEIÐBEININGAR: Uppslátturinn er prjónaður með sama lit og síðasta/fyrsta l á undan/á eftir uppslætti. AFFELLING: Til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur þá er fellt af með ½ nr grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 124-124-132-132-148-148 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 3. og 5. umf (umf með sl) er aukið út um 12-12-20-20-24-24 l jafnt yfir í hverri umf (= 24-24-40-40-48-48 l fleiri alls) = 148-148-172-172-196-196 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Næsta umf er prjónuð þannig: Í þessari umf eru sett 4 prjónamerki á milli l í stykki og 2 prjónamerki í l (= alls 6 prjónamerki). Bakstykki: Prjónið A.1 yfir fyrstu 30-30-36-36-42-42 l (= 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd), setjið 1. prjónamerki í næstu l og prjónið l eins og A.2 (= miðja að aftan), prjónið A.3 yfir næstu 30-30-36-36-42-42 l (= 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd), setjið 2. prjónamerki. Hægri ermi: Prjónið A.3 yfir næstu 12 l (= 2 sinnum á breidd), A.4 yfir næstu l (þetta er gert til að mynstrið verði eins í báðum hliðum á ermi), setjið 3. prjónamerki. Framstykki: Prjónið A.1 yfir fyrstu 30-30-36-36-42-42 l (= 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd), setjið 4. prjónamerki í næstu l og prjónið l eins og A.2 (= miðja að framan) prjónið A.3 yfir næstu 30-30-36-36-42-42 l (= 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd), setjið 5. prjónamerki. Vinstri ermi: Prjónið A.3 yfir næstu 12 l (= 2 sinnum á breidd), A.4 yfir næstu l (þetta er gert til að mynstrið verði eins á báðum hliðum á ermi), setjið 6. prjónamerki. Aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið A.1 til A.4 á hæðina til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið mælist stykkið ca 20-22-23-25-28-30 cm þar sem það er styst. Nú eru 64-70-76-86-94-104 l hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki á fram- og bakstykki (= alls 129-141-153-173-189-209 l á hvoru framstykki og bakstykki) og 75-85-89-95-99-105 l á hvorri ermi = alls 408-452-484-536-576-628 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið mynstur eins og áður að 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki eins og áður (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið mynstur eins og áður þar til 2 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), setjið næstu 75-85-89-95-99-105 l (l á milli 2. og 3. prjónamerkis) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-16 l undir ermi með sama lit og síðasta l sem prjónað var í, (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra l), 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að l með 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki eins og áður (= miðja að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið mynstur eins og áður þar til 2 l eru eftir á undan 5. prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), setjið næstu 75-85-89-95-99-105 l (l á milli 5. og 6. prjónamerkis) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-16 l undir ermi með sama lit og síðasta l sem prjónuð var í, (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja) = 274-298-330-370-402-450 l. FRAM- OG BAKSTYKKI: Færið til umf þannig að hún byrjar mitt undir ermi (þ.e.a.s. færið næstu l yfir á vinstri prjón án þess að prjóna þær, að prjónamerki undir hægri ermi). Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið prjónamerki sitja í stykkinu. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt jafnóðum inn í mynstur, svo ekki myndist gat! Nýjar l undir ermi eru prjónaðar inn í mynstur, passið að mynstrið speglist undir ermi (þ.e.a.s. hvoru megin við prjónamerkin). Í annarri hverri umf er aukið út um 1 l hvoru megin við miðju-l við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. með 1. og 4. prjónamerki) og fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir hvorri ermi – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri og 4 l fleiri í annarri hverri umf). Það verða jafn margar l í umf, aukið er út við miðju að framan og við miðju að aftan í hliðum. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki undir ermi, passið að næsta umf sé 1 útauknings/úrtöku umf. Prjónið mynstur og aukið út eins og áður, en fækkið nú um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki undir ermi (í stað 1 l) í næstu umf. Þ.e.a.s. fækkað er alls um 8 l og aukið út alls 4 l (= 2 l færri við hvert prjónamerki = alls 4 l færri í umf). Fækkið l svona með 2½-7-6-1½-2-2 cm millibili alls 4-2-2-6-4-4 sinnum = 258-290-322-346-386-434 l. Þær umf sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður, þ.e.a.s. fækkið l og aukið út 4 l í annarri hverri umf. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 46-50-50-54-58-63 cm mælt meðfram miðju-l (þ.e.a.s. l við 1. eða 4. prjónamerki). Stykkið mælist alls ca 56-60-61-65-69-74 cm mælt frá öxl þar sem það er lengst. Passið uppá að næsta umf sé 1 útauknings/úrtöku umf. Klippið frá. Setjið fyrstu 65-73-81-87-97-109 l (hálft bakstykki, meðtaldar l með 1. prjónamerki) á þráð og síðustu 64-72-80-86-96-108 l á þráð (= hálft framstykki). Prjónið nú yfir þær 129-145-161-173-193-217 l sem eftir eru á prjóni (þ.e.a.s. eftir 1. prjónamerki og fram til og með l með 4. prjónamerki = hægri hlið á peysu, frá miðju að aftan og að miðju að framan). Stykkið er síðan prjónað fram og til baka þannig: Haldið áfram með mynstur eins og áður til loka. UMFERÐ 1 (= frá réttu): Fellið af fyrstu 2 l, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki eins og áður (= 2 l færri), prjónið mynstur út umf eins og áður = 2 l færri í byrjun umf við miðju að aftan og 2 l færri á hlið á stykki (= alls 4 l færri). UMFERÐ 2 (= frá röngu): Fellið af fyrstu 2 l, prjónið mynstur út umf eins og áður = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan. UMFERÐ 3 (= frá réttu): Fellið af fyrstu 2 l, prjónið mynstur út umf eins og áður = 2 l færri í byrjun við miðju að aftan. UMFERÐ 4 (= frá röngu): Prjónið eins og 2. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan. UMFERÐ 5 (= frá réttu): Prjónið eins og 3. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að aftan. UMFERÐ 6 (= frá röngu): Prjónið eins og 2. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan. UMFERÐ 7 (= frá röngu): Prjónið eins og 1. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að aftan og 2 l færri í hlið á stykki (= alls 4 l færri). UMFERÐ 8 (= frá röngu): Prjónið eins og 2. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan. UMFERÐ 9 (= frá réttu): Prjónið eins og 3. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að aftan. UMFERÐ 10 (= frá röngu): Prjónið eins og 2. umf = 2 l færri í byrjun umf við miðju að framan. Endurtakið umf 1 til 10 þar til eftir eru 5 l á prjóni. Fellið af. Setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið alveg eins (= vinstri hlið á peysu, frá miðju að framan að miðju að aftan). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Skiptið l af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3 = 75-85-89-95-99-105 l. Takið upp 8-8-12-12-12-16 l sem fitjaðar voru upp undir ermi á fram- og bakstykki = 83-93-101-107-111-121 l. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. mynstrið speglast við prjónamerki. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið prjónamerkið sitja í stykkinu. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 2 l færri). Fækkið l svona með 1 cm millibili alls 8-8-8-8-12-25 sinnum = 67-77-85-91-87-71 l. Síðan með 3½-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 8-12-15-17-13-4 sinnum = 51-53-55-57-61-63 l. Þegar stykkið mælist 45-44-43-42-39-38 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan, með bleikfjólublár. Fellið af. Stykkið mælist ca 46-45-44-43-40-39 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR AÐ NEÐAN: Prjónið upp kant innan við 1 l meðfram öllum neðri kantinum á peysunni. Prjónið upp ca 240-260-290-332-364-406 l jafnt yfir með litnum bleikfjólublár frá réttu á hringprjóna nr 2,5. Passið uppá að kanturinn dragist ekki saman á fram- og bakstykki! Ef það gerist þá þarf að taka upp fleiri l. Prjónið 6 umf garðaprjón hringinn. Fellið af með hringprjónum nr 3 – LESIÐ AFFELLING! |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frommyanglesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.