DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 22770.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Stavanger

Settið samanstendur af: Peysu úr DROPS Alpaca prjónuð ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri. Húfu úr DROPS Alpaca með marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-51
DROPS Design: Mynstur nr z-773
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-350-400-450-450 g litur nr 618, ljós beige
50 g litur nr 2923, sinnepsgulur
50 g litur nr 2925, dökk appelsínugulur
50 g litur nr 3650, rústrauður
50 g litur nr 3770, dökk bleikur
50 g litur nr 6309, turkos/grár
50 g litur nr 7233, gulgrænn
50 g litur nr 9020, ljós perlugrár
50 g litur nr 9022, kóral

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50 g litur nr 618, ljós beige
50 g litur nr 2923, sinnepsgulur (2-2 g)
50 g litur nr 2925, dökk appelsínugulur (4-5 g)
50 g litur nr 3650, rústrauður (5-6 g)
50 g litur nr 3770, dökk bleikur (3-3 g)
50 g litur nr 6309, turkos/grár (8-9 g)
50 g litur nr 7233, gulgrænn (3-3 g)
50 g litur nr 9020, ljós perlugrár (7-8 g)
50 g litur nr 9022, kóral (6-7 g)

Númer í (-) sýna ca hversu mörg g þarf af hverjum lit ef prjónað er með afgangs garni.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 22770.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fella af/auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 120 l) og deilið með fjölda úrtöku/útaukningar sem á að gera (t.d. 25) = 4,8. Þ.e.a.s. í þessu dæmi á að prjóna 4. og 5. hverja l slétt saman þegar l er fækkað. Ef auka á út þá er það gert eftir ca 5. hverja l.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það verður of stíft.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og miðju undir ermi):
Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 120-128-136-144-148-148 l á stutta hringprjóna nr 2,5 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf slétt þar sem fækkað er um 25-28-26-24-23-23 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-/ÚTAUKNING = 95-100-110-120-125-125 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3.
Til að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan við hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki í miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum dökk bleikur og prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 9-10-11-11-12-12 l fram hjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 18-20-22-22-24-24 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 27-30-33-33-36-36 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 36-40-44-44-48-48 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 45-50-55-55-60-60 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 54-60-66-66-72-72 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 63-70-77-77-84-84 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 72-80-88-88-96-96 l br til baka. Snúið við og prjónið sl að miðju að aftan.
Prjónið nú mynstur í hring eftir A.1 (= 19-20-22-24-25-25 mynstureiningar 5 l. ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð - í stærð XXL + XXXL er fyrst prjónað eftir mynsturteikningu A.1A og eftir það A.1B). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umf merktri með ör í mynstri er aukið út um 2-4-0-0-10-13 l jafnt yfir (aukið út í mynstureiningu með litnum ljós beige). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 344-364-396-432-460-488 l í umf og stykkið mælist ca 18-19-20-22-24-26 cm (mælt frá miðju að framan án stroffs í hálsi).
Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið sl með litnum ljós beige yfir fyrstu 50-52-56-63-69-75 l (= ½ bakstykki), setjið næstu 72-78-86-90-92-94 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-8-10-10-14-16 nýjar l á prjóninn (= hlið undir ermi), prjónið sl yfir næstu 100-104-112-126-138-150 l (= framstykki), setjið næstu 72-78-86-90-92-94 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-8-10-10-14-16 nýjar l á prjóninn (= hlið undir ermi) og prjónið sl yfir þær 50-52-56-63-69-75 l sem eftir eru (= ½ bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar eru síðan prjónaðar hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-224-244-272-304-332 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 106-112-122-136-152-166 l á milli prjónamerkja). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram hringinn með litnum ljós beige og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2-2-2-3-3-4 cm fækkið um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Fækkið svona með 2½-2½-2½-3-3-4 cm millibili alls 5-5-5-4-4-3 sinnum í hvorri hlið = 192-204-224-256-288-320 l. Þegar stykkið mælist 16-17-18-18-18-18 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 l fleiri). Aukið svona út með 3-3-3-4-4-5 cm millibili alls 5-5-5-4-4-3 sinnum í hvorri hlið = 212-224-244-272-304-332 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 29-30-31-31-31-31 cm (peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl). Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 60-72-76-80-80-84 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-/ÚTAUKNING = 272-296-320-352-384-416 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 6 cm (peysan mælist nú ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl) aukið út um 1 l í hverri skiptingu á milli 2 l sl og 2 l br með því að slá uppá prjóninn (= 68-74-80-88-96-104 l fleiri) = 340-370-400-440-480-520 l í umf (þessi útaukning er gerð til að kanturinn verði ekki of stífur þegar fellt er af). Í næstu umf er fellt af með sl yfir sl og br yfir br (uppslátturinn er prjónaður snúinn áður en hann er felldur af eins og venjuleg l).

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Setjið l af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna nr 3 og prjónið að auki upp 1 l í hverja og eina af 6-8-10-10-14-16 l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-86-96-100-106-110 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-10-10-14-16 l undir ermi (= byrjun umf). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með ljós beige. Þegar ermin mælist 1-1-3-3-1-3 cm fækkið um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið l svona með 3-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 13-15-19-20-22-23 sinnum = 52-56-58-60-62-64 l. Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-32 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 16-16-18-20-22-24 l jafnt yfir = 68-72-76-80-84-88 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 8 cm (eða að óskaðri lengd) er aukið út um 1 l í hverri skiptingu á milli 2 l sl og 2 l br með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 17-18-19-20-21-22 l fleiri) = 85-90-95-100-105-110 l. Í næstu umf er fellt af með sl yfir sl og br yfir br (uppslátturinn er prjónaður snúinn áður en fellt er af eins og venjuleg l). Stykkið mælist ca 46-45-44-42-41-40 cm. Prjónið hina ermina alveg eins.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp, á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp 140-152 l á stuttan hringprjón nr 2,5 með litnum ljós beige. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 3 og prjónið 1-4 umf sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 0-2 l jafnt yfir = 140-150 l. Prjónið síðan mynstur í hring eftir A.2 (= 14-15 mynstureiningar 10 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 22-23 cm á hæðina og það eru 42-45 l eftir á prjóni. Haldið áfram með litnum dökk bleikur og prjónið 1 umf slétt þar til allar l hafa verið prjónaðar saman 2 og 2. Prjónið 1 umf slétt. Í næstu umf er eru aftur allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 11-12 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.02.2019
Leiðrétting: BERUSTYKKI:..Prjónið nú mynstur í hring eftir A.1 (= 19-20-22-24-25-25 mynstureiningar 5 l. ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð - í stærð XXL + XXXL er fyrst prjónað eftir mynsturteikningu A.1A og eftir það A.1B).

Mynstur

symbols = dökk bleikur
symbols = ljós bleikur
symbols = sinnepsgulur
symbols = ljós perlugrár
symbols = gulgræann
symbols = turkos/grár
symbols = rústrauður
symbols = kóral
symbols = dökk appelsínugulur
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman með grunnlit í mynsturrönd
symbols = prjónstefna
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Stavanger

bauhausprincess, Germany

Stavanger

Laia Mas, Spain

Baltic Yoke Sweater

nugova, Germany

Stavanger Jumper

Wendy, United Kingdom

Stavanger

Meine_masche, Afghanistan

173-51 Stavanger Jumper

Sedativexxx, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-51

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Sylvie Guibaud wrote:

Bonjour. Je voudrais tricoter ce pull pour ma fille mais elle est très menue. Est-ce qu’il est possible de l’adapter en taille XS?\r\nEn vous remerciant

28.11.2023 - 08:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Guilbaud, probablement, mais nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; merci pour votre compréhension. N'hésitez pas à demander de l'aide à votre magasin (par mail ou téléphone) ou à vous adresser à un forum tricot. Bon tricot!

28.11.2023 - 08:58

country flag Franç wrote:

Une erreur sur le diagramme A 2 pour le bonnet : si l\'on fait les augmentations indiquées aux 2e et 4e rangs, soit 1 fois toutes les 10m puis 1 fois toutes les 11 m., le motif se décale entièrement et devient incohérent

04.08.2023 - 19:45

DROPS Design answered:

Bonjour Franç, vos motifs ne doivent pas être décalés mais se présenter exactement comme le diagramme: au 2ème tour, vous augmentez au début de chaque motif, et, au 5ème tour, vous augmentez à la fin de chaque motif, les nouvelles mailles vont se tricoter comme indiqué dans le diagramme (la 1ère augmentation comme la 1ère maile du diagramme et la 2ème augmentation comme la dernière maile du diagramme). Pensez à ajouter des marqueurs entre chaque motif, c'est souvent bien pratique pour ne pas se perdre. Bon tricot!

07.08.2023 - 11:29

country flag Monika wrote:

Hello - I’m not sure what color to do the YO in on the yoke pattern line 31 (large) - it’s the line where you do one stitch in coral and then one in rust. Thank you!

01.04.2023 - 02:27

DROPS Design answered:

Dear Monika, the YO is worked in rust in that round. Happy knitting!

02.04.2023 - 22:22

country flag Nathalie Desforges wrote:

Hello, I am struggling with the hat pattern. I see the YO on the pattern but YO are to increase by one stitch. Where are the decreases? I am using pattern A.1 for small Thank you

18.04.2022 - 14:38

DROPS Design answered:

Dear Nathalie, all of the decreases for the hat are already included in A.2 (A.1 is for the sweater, A.2 for the hat), which is used equally for all sizes. Happy knitting!

18.04.2022 - 19:28

country flag Nathalie Desforges wrote:

Hi, In the hat pattern it states to follow pattern A2. Where is it? Thank you, Nathalie

11.04.2022 - 04:59

DROPS Design answered:

Hi Nathalie, The diagrams and measurement chart are at the bottom of the pattern. Happy knitting!

11.04.2022 - 07:12

country flag Sonja wrote:

Hallo! Ich stricke diesen Pullover aktuell in Größe S und bin im Rumpfteil. Nach den Abnahmen soll man bis auf 16 cm weiterstricken, eine Zunahme machen und danach fünfmal alle 3 cm zunehmen. Somit würde ich auf etwa 16 cm+5*3 cm = 31 cm kommen. Danach soll ich bis 29 cm weiterstricken, habe diese Länge aber bei den Zunahmen schon überschritten. Ein ähnliches Problem gibt es auch nochmals bei den Ärmeln. Stimmt eine der Maßangaben nicht? Vielen Dank im Voraus!

23.02.2022 - 14:26

DROPS Design answered:

Liebe Sonja, die 1. Zunahmen stricken Sie nach 16 cm, dann die 2. nach 19 cm (16+3), die 3. nach 22 cm, die 4. bei 25 cm und die 5. nach 28 cm - das gleiche ist sicher bei den Ärmeln. Also die 1. Abnahme wird ab 1 cm gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

23.02.2022 - 15:45

country flag Anna Paulsson wrote:

Hej. Jag har helt fastnat! Hur gör jag för att öka från 100m, storlek m, till 364? Det finns inga ökningspilar i diagrammet? Tacksam för hjälp Anna

08.07.2021 - 13:10

DROPS Design answered:

Hej Anna. Om du ser på diagram A.1 i din storlek så ser du att det är ökningar (omslag) inritade i diagrammet. När du stickat sista varvet i A.1 så är varje rapport 18 m. 18 m X 20 rapporter= 360m + de 4 maskor du ska öka på varvet med pil. Mvh DROPS Design

08.07.2021 - 13:21

country flag Manon wrote:

Bonjour J'aimerais faire ce modèle uni sans jacquard combien de balles aurais-je besoin en taille small et médium. Merci

20.03.2021 - 18:18

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, comme ce modèle a été tricoté avec un motif jacquard, nous n'avons pas la quantité nécessaire en uni - vous pouvez additionner toutes les couleurs, il vous en faudra probablement un peu moins, n'hésitez pas à contacter votre magasin - même par mail ou téléphone, on saura vous conseiller. Bon tricot!

22.03.2021 - 07:53

country flag Majbritt M wrote:

Jeg mangler udtagningspile i diagram A1

28.10.2020 - 15:15

DROPS Design answered:

Hej Majbritt, udtagningerne er tegnet ind i diagrammet, det er de små ovale sorte prikker som er udtagninger. God fornøjelse!

28.10.2020 - 15:47

country flag Helle Andreassen wrote:

Kan man købe garn til stavanger sweater ? evt hvordan gør man ?

17.10.2020 - 13:31

DROPS Design answered:

Hei Helle. Ta en oversikt over våre butikker og du kan derfra bestille garn. God Fornøyelse!

19.10.2020 - 13:11