Cherie skrifaði:
I really like this piece, the cut n colour and because I can imagine Kate Middletons wearing it lol
12.06.2016 - 15:43
April Glasper skrifaði:
A great look and challenge fire me. May I get this pattern now. Aweys look!
04.06.2016 - 08:39
Renni skrifaði:
Earthy dusky chuckling beauty who makes you pause and notice. Every design looks beautiful on her.
03.06.2016 - 20:31
Anna Ferri skrifaði:
Molto bello specialmente il colore
03.06.2016 - 16:46
Anna Ferri skrifaði:
Questo cardigan lo devo fare assolutamente!!!!!
03.06.2016 - 16:36
Aredhel#aredheljacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Andes með hettu og a-formi. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-46 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Lykkjum er fækkað innan við 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið l þegar 2 l eru eftir á undan 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið l þegar 1 kantlykkja í garðaprjóni og 1 l sl eru eftir þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Öll útaukning er ferð frá réttu! Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. MÆLING-1 (á við um fram- og bakstykki): Fyrir nákvæm mál á peysunni þá er öll mæling gerð þegar stykkið liggur flatt. Vegna þyngdar á garninu þá kemur stykkið til með að teygjast ca 10 cm á alla lengdina miðað við mál í mynsturteikningu. MÆLING-2 (á við um ermi): Vegna þyngdar á garninu þá er öll mæling gerð þegar stykkinu er haldið uppi. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægra framstykki þannig (frá réttu): Prjónið 3 l, fellið af 2 l fyrir hnappagati, prjónið út umf. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 56 og 70 cm STÆRÐ M: 57 og 72 cm STÆRÐ L: 58 og 74 cm STÆRÐ XL: 59 og 76 cm STÆRÐ XXL: 60 og 78 cm STÆRÐ XXXL: 61 og 80 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 60-64-70-76-82-88 l á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón með 5 l í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18 cm er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 62-66-72-78-84-90 l. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 19 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið (= 2 l færri ) – LESIÐ ÚRTAKA og MÆLING-1. Fækkið l í hvorri hlið með 7-7-8-8-8-8 cm millibili alls 6 sinnum = 50-54-60-66-72-78 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm prjónið þannig: Prjónið A.1 yfir allar l með 1 kantlykkju í hvorri hlið (kantlykkjan er prjónuð áfram í garðaprjóni). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað til loka í sléttprjóni með rönguna út (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 48-52-58-64-70-76 l. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm fellið af miðju 14-14-14-16-16-16 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 16-18-21-23-26-29 l eftir á öxl. Fellið allar l laust af þegar stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm. Endurtakið á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 35-37-40-43-46-49 l (meðtaldar 8 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 8 l garðaprjón (= kantur að framan), sléttprjón þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón. Haldið svona áfram með sléttprjón og garðaprjón. Þegar stykkið mælist 18 cm er prjónað áfram þannig – frá réttu: 8 l garðaprjón, sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Fitjið upp 1 kantlykkju í lok umf (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni) = 36-38-41-44-47-50 l. Þegar stykkið mælist 19 cm er l fækkað í hlið eins og á bakstykki, fækkið alls 6 sinnum = 30-32-35-38-41-44 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm prjónið þannig: Prjónið 8 l garðaprjón, A.1 yfir þær l sem eftir eru (kantlykkjur í garðaprjóni). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað til loka í sléttprjóni með rönguna út (kantur að framan og kantlykkjur halda áfram í garðaprjóni). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-57-58-59-60-61 cm byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fellið af 1 kantlykkju í hlið = 29-31-34-37-40-43 l. Þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm setjið síðustu 9-9-9-10-10-10 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að þurfa ekki að klippa frá, prjónið l áður en þær eru settar á þráðinn), Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og síðan 1 l 2 sinnum = 16-18-21-23-26-29 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstra framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HETTA: Prjónið upp ca 46 til 58 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 1 umf slétt frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til 66-68-70-72-74-76 l (ekki er aukið út yfir kant að framan). Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið síðan sléttprjón með 8 l garðaprjón í hvorri hlið, fram og til baka yfir allar l þar til hettan mælist ca 30-31-32-33-34-35 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Leggið hettuna tvöfalda saman og saumið saman með lykkjuspori efst uppi. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 6 umf garðaprjón, prjónið síðan A.1 yfir allar l. Prjónið A.1 1 sinni á hæðina. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri) og MÆLING-2. Aukið út með 5-4-4-3½-3-3 cm millibili alls 9-10-10-11-11-12 sinnum = 40-42-44-46-48-50 l. Fellið af þegar stykkið mælist 51-50-49-48-45-44 l (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermi og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, látið neðstu 18 cm á fram- og bakstykki vera opna = klauf. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aredheljacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-46
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.