DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Hues

Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Wish með tvöföldu perluprjóni í kant að framan og sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-2
DROPS Design: Mynstur nr ee-565
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
650-750-800-900-1000-1050 g litur nr 21, bláfjólublár

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
450-550-600-650-750-750 g litur nr 09, gallabuxnablár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 7 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 12 l x 16 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA Bogalaga (hvít), NR 540: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan/á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið í aftari hluta á lykkju í stað fremri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 17 og 26 cm.
STÆRÐ M: 18 og 27 cm.
STÆRÐ L: 19 og 28 cm.
STÆRÐ XL: 20 og 29 cm.
STÆRÐ XXL: 21 og 30 cm.
STÆRÐ XXXL: 22 og 31 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70-78-82-86 l á hringprjóna nr 7 með Snow eða Wish. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 8 cm er fitjuð upp 1 ný l í lok 2 næstu umf = 64-68-72-80-84-88 l. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11 cm er fækkað um 1 l hvoru megin á stykki – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona með 3-3-4-3-4-4 cm millibili alls 8-8-7-8-7-7 sinnum = 48-52-58-64-70-74 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki í annarri hverri umf: 3 l 0-1-1-1-1-1 sinnum, 2 l 1-0-1-2-3-3 sinnum og 1 l 1-1-2-2-2-3 sinnum = 42-44-44-46-48-50 l. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 10-10-12-12-14-14 l fyrir hálsmáli = 16-17-16-17-17-18 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 45-47-49-55-57-59 l (meðtaldar 14-14-14-16-16-16 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 7 með Snow. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið frá réttu þannig: 14-14-14-16-16-16 kantlykkjur að framan A.1, sléttprjón þar til 3 l eru eftir, endið með 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Fitjið upp 1 l í lok næstu umf frá réttu = 46-48-50-56-58-60 l. Prjónið frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 14-14-14-16-16-16 l, A.1 yfir kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 11 cm er l fækkað í hlið (þ.e.a.s. í lok umf frá réttu) eins og á bakstykki = 38-40-43-48-51-53 l.
MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 35-36-36-39-40-41 l. Þegar búið er að fella af fyrir handveg eru kantlykkjur að framan prjónaðar (= 14-14-14-16-16-16 l við miðju að framan) áfram í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af fyrstu 16-17-16-17-17-18 l fyrir öxl í næstu umf frá röngu = 19-19-20-22-23-23 l eftir fyrir sjalkraga. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þessar l – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf með byrjun frá hálsmáli (réttu) þannig: * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 14-14-14-16-16-16 l sl, snúið við og prjónið sl til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá þar sem fellt var af fyrir öxl (skammhlið). Fellið laust af allar l.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 34-34-36-36-38-38 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Snow eða Wish. Prjónið 12 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 12-13-13-12-10-11 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út með 8-6-6-5-5-4 cm millibili alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 44-46-48-50-52-54 l. Þegar stykkið mælist 48-47-47-46-44-43 cm fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 2-3-4-4-6-7 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-54-55-55-55-55 cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið áður en þær l sem eru eftir eru fellar af. Stykkið mælist ca 56-56-57-57-57-57 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðar- og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju niður þar sem fitjað var upp fyrir kantlykkju (= ca 8 cm klauf). Saumið saman kraga við miðju að aftan – ATH! Saumurinn á að vera á bakhlið þannig að hann sjáist ekki þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kragann meðfram hálsmáli aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag Chris wrote:

Manches: »rabattre 2 m de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 54-54-55-55-55-55 cm »—> combien de mailles doit-il rester? De même : « rabattre 1 fois 3 m de chaque côté et rabattre les mailles restantes« —> combien de mailles doit-il rester avant le rabat final?

01.03.2024 - 20:53

DROPS Design answered:

Bonjour Chris, tout dépend de votre tension en hauteur, ici la hauteur importe davantage que le nombre de mailles restant, autrement dit, rabattez 2 mailles au début de chaque rang de chaque côté jusqu'à la hauteur indiquée pour votre taille, ajustez juste de sorte que la manche soit symétrique, autrement dit que vous avez rabattu autant de fois 2 mailles de chaque côté. Le haut de la manche doit mesurer entre 8 et 14 cm (cf schéma). Bon tricot!

04.03.2024 - 07:23

country flag Chris wrote:

Bonjour, à quelle hauteur et à combien de mailles du bord ouvre-t-on la boutonnière? Pouvez-vous expliciter un peu? Cordialement

03.02.2024 - 08:03

DROPS Design answered:

Bonjour Chris, vous trouverez l'emplacement des boutonnières en fonction de la taille sous BOUTONNIÈRES; Mesurez à partir du rang de montage, tout en bas de la veste. Bon tricot!

05.02.2024 - 08:09

country flag Jannie Van Driel wrote:

Hallo, ik vind jullie patronen superleuk , maar ik wil ze niet met rondbreinaalden breien. Hebben jullie ook patronen voor gewone breinaalden. of tips hoe ik het patroon met rondbreinaalden dan moet omzetten ??

05.11.2023 - 12:36

DROPS Design answered:

Dag Jannie,

We hebben wel patronen voor rechte naalden; dit zijn vaak de wat oudere patronen.

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

Dit is helaas niet voor alle patronen geschikt. Patronen me teen ronde pas zul je bijvoorbeeld met een rondbreinaald moeten breien.

05.11.2023 - 19:14

country flag Janet wrote:

What is the gauge? I don't see it in the pattern.

19.09.2023 - 18:04

DROPS Design answered:

Hi Janet, The guage is 11 sts in width and 15 rows in height = 10 x 10 cm, using needle size 8 mm (see under Needles at top of page). Happy knitting!

20.09.2023 - 06:47

country flag Geni wrote:

Where are the bust measurements for each size?

17.09.2023 - 01:27

DROPS Design answered:

Dear Geni, the measurements of the garment in cm are indicated in the measurements schematic, after the pattern instructions. Each number is half the bust and corresponds to each size. For example, for size S, you have 42cm, which would be a bust of 84cm in total. Happy knitting!

17.09.2023 - 21:26

country flag Margaret wrote:

Buongiorno, non capisco la misura in cm in fondo al modello, che dovrebbe corrispondere alla larghezza a inizio lavoro. Se, per la misura S, si avviano 62 maglie, considerando che per il campione 12 m sono 10 cm, si dovrebbero avere 52 cm di bordo, non 56, che infatti mi sembrano veramente tanti.

21.08.2022 - 12:54

DROPS Design answered:

Buongiorno Margaret, i primi ferri sono lavorati a maglia legaccio, mentre il campione è lavorato a maglia rasata: la tensione delle due lavorazioni è diversa. Buon lavoro!

24.08.2022 - 15:17

country flag Anna-Carin Björkman wrote:

Hej! Undrar varför det är så stor skillnad i maskantal mellan storlek L och XL? Skillnaden mellan övriga storlekar är 4 maskor nästan genomgående men här är det det dubbla? Hälsningar Anna-Carin

15.09.2021 - 16:51

DROPS Design answered:

Hej Anna-Carin. Det är så denna modell är designad, men lägger du upp det antal maskor som uppges så får du de mått som står i måttskissen så länge du håller stickfastheten. Välj den storlek som passar bäst till dig enligt måttskissen. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 08:50

country flag Cathy wrote:

How do you work both shoulders at once after binding off the center 12 stitches for the neck. First sweater. Using circular needles for first time.

09.09.2021 - 08:50

DROPS Design answered:

Dear Cathy, after you have cast off the middle 12 sts for the neck on back piece, continue each shoulder separately, ie work first shoulder to the finished measurement, cast off, cut the yarn and work now the 2nd shoulder the same way. Happy knitting!

09.09.2021 - 09:08

country flag Joanna wrote:

In dit patroon moeten veel steken worden geminderd van beneden naar boven. Heb eerder een vest gebreid met dergelijke mindering en dat ging wijd uit staan. Kan ik minder steken opzetten zodat ik niet veel hoef te minderen zodat het vest slanker valt? Alvast dank voor uw antwoord, met vriendelijke groet Joanna

29.07.2021 - 22:13

DROPS Design answered:

Dag Joanna,

Ja, dat kan. In het patroon staat aangegeven hoeveel je voor jou maat moet minderen. Als je bijvoorbeeld helemaal geen minderingen wilt maken trek je deze steken er af bij het opzetten. Als je minder minderingen wilt maken, kun je deze meer verdelen in de hoogte over de zijnaden.

19.08.2021 - 13:28

country flag Lone wrote:

Højre forstk der står slå 49 m op14 kant masker 7 m med snow, hvad er det snow vh Lone mail adresse tlf 51845653

25.07.2021 - 13:15