DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 172-39
DROPS Design: Mynstur nr ee-567
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
900-1000-1100-1200-1300-1450 g nr 20, plóma

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l x 14 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 8 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
DROPS HEKLUNÁL NR 8 – fyrir kant.
DROPS HORNATALA, NR 536: 7-7-7-8-8-8 st.
DROPS HORNATALA, NR 535: 1 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantar að framan eru prjónaðir í mynstri eftir mynsturteikningu A.1 að loka máli – ATH: Fyrsta lykkjan í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan er lyft af prjóni (eins og prjóna eigi slétt).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 73 lykkjur) og deilið þeim með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 5,6.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki og mitt undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni):

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 HNAPPAGAT = byrjið frá réttu, lyftið fyrstu lykkju yfir eins og áður, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (þ.e.a.s. prjónið framan og aftan í sömu lykkju = 1 lykkja fleiri) og prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 5, 14, 23, 32, 41, 50 og 59 cm.
STÆRÐ M: 7, 16, 25, 34, 43, 52 og 61 cm.
STÆRÐ L: 9, 18, 27, 36, 45, 54 og 63 cm.
STÆRÐ XL: 7, 15, 23, 31, 39, 47, 55 og 63 cm.
STÆRÐ XXL: 9, 17, 25, 33, 41, 49, 57 og 65 cm.
STÆRÐ XXXL: 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59 og 67 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og upp að handveg. Síðan er fram- og bakstykki prjónað áfram hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna og prjónað er neðan frá og upp

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 135-147-156-168-183-195 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna 8 með Snow. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff eftir mynstri A.2A (= 24 lykkjur), * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 32 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, A.2B (= 24 lykkjur) og endið með 7 kantlykkjur að framan.
Haldið svona áfram með stroff með 7 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16 cm er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.3A (= 24 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 73-85-94-106-121-133 lykkjur. JAFNFRAMT er fækkað um 13-17-18-18-21-21 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – LESIÐ ÚRTAKA-1, prjónið A.3B (= 24 lykkjur) og endið með 7 kantlykkjur að framan eins og áður = 122-130-138-150-162-174 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 9. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 36-38-40-43-46-49 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 50-54-58-64-70-76 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki).
Haldið áfram í sléttprjón + A.3 og 7 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 28 cm í öllum stærðum = 114-122-130-142-154-166 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 42-42-44-44-46-46 cm = 122-130-138-150-162-174 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 33-35-37-40-43-46 lykkjur (= vinstra framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin), prjónið sléttprjón yfir næstu 44-48-52-58-64-70 lykkjur (= bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir þær 33-35-37-40-43-46 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki). Framstykkin og bakstykki er síðan prjónað hvert fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 33-35-37-40-43-46 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 7 kantlykkjur að framan. A.3A og sléttprjón. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-3-3-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-2-4 sinnum = 30-31-31-32-32-33 lykkjur á prjóni.
Haldið áfram með mynstur eins og áður með 0-0-0-1-1-2 lykkjur sléttprjón fyrir handveg – ATH: Í stærð S er nú 1 lykkja færri í A.3A við handveg. Þegar stykkið mælist 60-62-64-64-66-68 cm setjið fyrstu 5-5-5-6-6-6 lykkjur í byrjun umferðar frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að þurfa að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn). Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 21-22-22-22-22-23 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm (passið að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Í næstu umferð eru lykkjur í tveimur köðlunum prjónaðar slétt saman 2 og 2 (= 8 lykkjur færri) = 13-14-14-14-14-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með slétt frá réttu. Stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 33-35-37-40-43-46 lykkjur. Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd (þ.e.a.s. haldið áfram í sléttprjóni, A.3B og 7 kantlykkjur að framan).

BAKSTYKKI:
44-48-52-58-64-70 l. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar frá hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-4 sinnum = 38-40-40-42-42-44 l á prjóni. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið nú af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 13-14-14-14-14-15 lykkjur eftir á hvorri öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm (passið að næsta umferð sé prjónuð frá röngu). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan af með slétt frá réttu. Endurtakið í hinni öxlinni.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna neðan frá og upp, skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 24-27-27-27-30-30 lykkjur á sokkaprjóna nr 8 með Snow. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 23 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-5-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir = 20-22-24-24-26-26 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferð (= mitt undir ermi) og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 9 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 14-14-14-13-13-15 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3½-3½-3½-3-2½-2 cm millibili alls 9-9-9-10-11-12 sinnum = 38-40-42-44-48-50 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-44-44-42-41-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af miðju 6 lykkjur mitt undir ermi og ermin er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar frá hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum í öllum stærðum, 1 lykkju 2-2-2-4-5-6 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 54-54-55-55-56-56 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, ermin mælist ca 55-55-56-56-57-57 cm.
Prjónið aðra hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 40 til 48 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjóna 8 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem jafnframt eru auknar út lykkjur til 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið 3 umferðir sléttprjón, 1 umferðir slétt frá röngu og 3 umferðir sléttprjón, fellið síðan af. Brjótið kantinn í hálsmáli saman tvöfaldan að röngu og saumið fallega niður.

KRAGI:
Byrjið frá réttu og prjónið upp 1 lykkju í hverja brugðna lykkju þar sem kanturinn í hálsmáli var brotinn niður á hringprjóna 9 með 1 þræði Snow = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka með 2 þráðum Snow. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum = 56-58-60-62-64-66 l. Þegar kraginn mælist 8-9-10-10-11-11 cm fellið af með slétt frá réttu.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kanti í lokin meðfram kanti að framan og í kringum kragann með heklunál 8 með 1 þræði Snow þannig: Byrjið frá réttu neðst niðri á hægra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju/umferð, 1 flastalykkja í næstu lykkju/umferð*, endurtakið frá *-* upp meðfram öllu hægra framstykkinu, í kringum kragann og síðan niður meðfram vinstra framstykki. Klippið frá og festið enda.

MEIRI FRÁGANGUR:
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. Saumið litu töluna ca 8-9-10-10-11-11 cm frá efstu tölu meðfram hálsmáli. Þessi tala er hneppt í gegnum heklaða kantinn í horninu á kraganum – sjá mynd.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Mary-Anne wrote:

Thank you so much for your quick response. I just thought that for the size of the button, the buttonhole would be larger. Anyways, I just love all of your patterns and have made quite a few of them for gifts. There is only one shop here that sells only a small amount of 'drops' yarn. I just wish there were more shops in BC that sold your yarn. But unfortunately that is not the case. I buy drops yarn anytime I see it!!! Thanks again!

06.12.2023 - 06:14

country flag Mary-Anne wrote:

I have a question about pattern 172-39 concerning the buttonholes. I have read everything in the pattern & have done the buttonhole according to the instructions which says sl 1st st, work 2 sts in next st and work the next 2 tog & I assume I continue the rest of the row (rows) according to chart. I am an experienced knitter. What am I missing?? I am making for a Christmas gift. Also the picture looks like the buttonholes are on the left side and the buttons on the right. Thanks!

04.12.2023 - 20:13

DROPS Design answered:

Dear Mary-Anne, that's the way the buttonholes are worked on this jacket; the hole will not be that large, just enough; but feel free to adjust the way to work them with your own favorite technique, the picture might have been flipped, reason why the buttonholes look to be on the left front piece. Happy knitting!

05.12.2023 - 09:20

country flag Laurence wrote:

Bonjour Pour le montage des mailles au tout début faut il rajouter 7m pour la bordure ou est elle déjà comptée dans les mailles indiquées (ex 147 m+7 ou seulement 147 m ?

31.12.2022 - 06:57

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, ces 7 mailles de bordure devant de chaque côté sont déjà comprises dans le nombre de mailles à monter et n'ont pas besoin d'être ajoutées. Bon tricot!

02.01.2023 - 13:42

country flag Meike wrote:

Guten Tag, ich möchte die Jacke länger stricken (Kleidergröße 84) und dachte daran, einen Zopf mehr in der Höhe zu arbeiten. Würde es genügen, erst ab 30cm Gesamtlänge der Anleitung und dem Abnehmen zu folgen, damit der Schnitt erhalten bleibt? Mit freundlichen Grüßen Meike

14.10.2022 - 09:34

DROPS Design answered:

Liebe Meike, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, am besten inspirieren Sie sich von einer ähnlichen aber längere Jacke. Gerne kann Ihnen auch Ihr DROPS Händler damit (auch per Telefon oder per E-Mail) weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

14.10.2022 - 13:22

country flag Eyrún Halla wrote:

Það virðist vanta útskýringar á leiðbeiningunum, því það stendur í textanum sjá að ofan en svo eru engar útskýringar um það að ofan.

19.10.2021 - 15:40

DROPS Design answered:

Eyrún Halla. Takk fyrir ábendinguna. Útskýringarnar hafa eitthvað orðið viðskila við textann. Það er búið að laga þetta.

21.10.2021 - 13:09

country flag Rosemarie Lavway wrote:

I am just starting DROPS 172-39. .I noticed at first it states Garter st back & forth knit all rows. But in the instructions it refers to stockinette st. Help. I love your patterns and am very anxious to complete this one

10.11.2019 - 01:49

DROPS Design answered:

Dear Rosemary, after the ribbing there are reverse stockinett stitches between the cable which are in the charts and the back (and later the sleeves) are knitted with stockinett stitches. happy Knitting!

10.11.2019 - 11:03

country flag MARIA wrote:

Your largest width is 76cm is too small.. How to resize to a larger size?

30.06.2019 - 02:20

DROPS Design answered:

Dear Maria, we are unfortunately not able to adjust every single pattern to every request, please contact your DROPS store - even per mail or telephone - or any knitting forum for any further individual assistance. Happy knitting!

01.07.2019 - 07:10

country flag MARIA wrote:

How to find which size to knit for the bust size?

29.06.2019 - 21:22

DROPS Design answered:

Dear Maria, you can find the relevant measurements on the schematic drawing below the pattern, at the bottom of the page. Happy Knitting!

30.06.2019 - 01:04

country flag Lesley Hooser wrote:

I am not sure what I did, but the back shoulder has 15 stitches at cast off and the fronts both have 23 stitches at the shoulder at cast off, what do I do with the extra 8 on the fronts? or have I messed up the pattern? thank you

30.04.2019 - 23:35

DROPS Design answered:

Hello Lesley. On both front pieces, you must knit the sts in the cables together 2 by 2 (so you decrease 8 sts); you then remain with 15 sts for the shoulder. Happy knitting!

01.05.2019 - 09:38

country flag Coraline wrote:

Merci beaucoup pour votre réponse !

24.04.2019 - 21:33