Eeva-Liisa Salonen skrifaði:
Ohjeessa ei ole kaavio kuvaa. En ymmärrä mistä mittaan (Kun työn pituus tohvelin luomisreunasta mitattuna on 20-22-25 cm), mikä katsotaan luomisreunaksi.
18.11.2016 - 16:19DROPS Design svaraði:
Tässä tarkoitetaan itse tohvelin luomisreunaa (ei läpän).
21.11.2016 - 16:36
Carry skrifaði:
Hallo drops team. Er staat om de 4 naalden minderen en tussen haakjes om de naald minderen dat is iedere 2 " naald wat is de bedoeling? Groetjes
03.11.2016 - 15:52DROPS Design svaraði:
Hoi Carry. Het is hetzelfde: om de 4 naalden minderen is hetzelfde als om de nld minderen aan de goede kant.
04.11.2016 - 14:52
Simone Vollmer skrifaði:
Hallo Miteinander, beim Zopfmuster habe ich dann 2 M die übrig sind, bei grösse 35-37. Danke für eure Antwort
01.08.2016 - 21:34DROPS Design svaraði:
Liebe Simone, wenn Sie abnehmen und zusammenstricken wie in der Anleitung beschrieben, haben Sie zum Schluss in Grösse S noch 8 Maschen übrig, die Sie dann mit dem Faden zusammenziehen.
03.08.2016 - 16:01
Gail skrifaði:
I believe there is an error in the cable instructions. It looks like it should be 3 stitches on cable needle, not 2. Love the look of the pattern. Am knitting away.
28.02.2016 - 01:59DROPS Design svaraði:
Dear Gail, correction to symbols #3 and #4 has been now made, thank you. Happy knitting!
02.03.2016 - 10:20
Danni Rekeweg skrifaði:
This design is different from any other slipper I have ever seen.I just love these!
05.01.2016 - 20:20
Cozy June#cozyjuneslippers |
|||||||||||||
|
|
|||||||||||||
Prjónaðar og þæfðar tátiljur úr DROPS Lima í garðaprjóni með köðlum. Stærð 35-43.
DROPS 167-30 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l í byrjun umf þannig: 2 l snúnar slétt saman. Fækkið l í lok umf þannig: Prjónið 2 síðustu l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tátiljan er prjónuð fram og til baka frá miðju að aftan og ofan á fæti, síðan er prjónuð "tunga". Tungan og afgangurinn af tátilju er sett saman og fóturinn er prjónaður í hring til loka. TÁTILJA: Fitjið upp 45-47-49 l á prjóna nr 4 með DROPS Lima og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6-7-10 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 6-6-6 sinnum og síðan í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 3-3-2 sinnum = 27-29-33 l á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf slétt frá röngu, stykkið mælist nú ca 12-13-15 cm. Geymið stykkið. "TUNGA": Fitjið upp 15-15-18 l á prjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3-3-4 l sl, prjónið 2 l í hverja af næstu 3 l, 3-3-4 l sl, prjónið 2 l í hverja af næstu 3 l og endið á 3-3-4 l sl = 21-21-24 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 3-3-4 l sl, 6 l br, 3-3-4 l sl, 6 l br og 3-3-4 l sl. Prjónið síðan mynstur eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru stykkin sett saman og fóturinn prjónaður í hring. FÓTUR: Setjið l af tveimur stykkjunum á sokkaprjóna nr 4 = 48-50-57 l. Byrjið á "tungunni" og haldið áfram með A.1 eins og áður, en þegar síðasta l er eftir er hún prjónuð snúin slétt saman við fyrstu l á tátilju, prjónið garðaprjón þar til 1 l er eftir í umf og prjónið síðustu l í umf slétt saman með fyrstu l í A.1 (= 2 l færri). Haldið áfram hringinn með A.1 og garðaprjón JAFNFRAMT sem úrtaka hvoru megin við A.1 er endurtekin í 6. hverri umf (þ.e.a.s. í hverri kaðlaumferð) alls 6-7-8 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-22-25 cm (mælt frá uppfitjunarkanti á tátilju) fækkið um 1 l í hverri einingu með garðaprjóni fyrir miðju ofan á fæti (= 3 l færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 21-23-26 cm. Eftir alla úrtöku eru 30-30-35 l eftir á prjóni. Í næstu umf með sl eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 15-15-18 l. Prjónið 1 umf br. Í næstu umf eru allar l prjónaðar aftur slétt saman 2 og 2 = 8-8-9 l. Prjónið 1 umf br. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Saumið tátiljuna saman við miðju að aftan yst í lykkjubogann. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cozyjuneslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.