DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1229
DROPS Design: Mynstur nr ee-557
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/39 - 40/42 - 43/44
Lengd fótar eftir þæfingu: ca 22 - 23 - 25 - 29 cm
Lengd fótar fyrir þæfingu: 24 - 27- 28 - 32 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
100-100-100-100 g litur 51, púðurbleikur
50-50-100-100 g í litur 36, ljós bláfjólublár

ATH: Ef tátiljurnar eru prjónaðar með einum lit þá þarf 150 g í allar stærðir í Snow.

DROPS PRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l x 17 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki með saum við miðju að framan og við miðju að aftan, byrjað er efst, mitt ofan á fæti.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!

TÁTILJA:
Fitjið upp 11-11-13-13 l á prjóna nr 6 með litnum púðurbleikur Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf frá réttu þannig: 3 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum = 20-20-22-22 l – útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar (stykkið mælist ca 4 cm) fellið af fyrstu 6 l í næstu umf frá réttu = 14-14-16-16 l. Í lok næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 17-21-21-25 nýjar l = 31-35-37-41 l í umf.

Skiptið yfir í litinn ljós bláfjólublár, prjónið síðan sléttprjón. Prjónið 2 umf með litnum ljós bláfjólublár, síðan er skipt yfir í litinn púðurbleikur og prjónað þannig: Prjónið 2 umf með litnum púðurbleikur, síðan eru prjónaðar 2 stuttar umf frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 19-23-23-27 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 2 umf yfir allar l með litnum ljós bláfjólublár, síðan eru prjónaðar 2 umf með litnum púðurbleikur og 2 stuttar umferðir með litnum púðurbleikur yfir fyrstu 19-23-23-27 l eins og áður. Haldið áfram með litnum ljós bláfjólublár. Þegar stykkið mælist 13-14-14-15 cm (mælt frá byrjun stykkis í prjónstefnu) setjið eitt prjónamerki = mitt undir fæti. Þegar prjónað hefur verið jafn langt á eftir prjónamerki eins og á undan prjónamerki með litnum ljós bláfjólublár er prjónað með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 2 umf með litnum púðurbleikur, prjónið 2 stuttar umf yfir fyrstu 19-23-23-27 l eins og áður. Prjónið 2 umf yfir allar l með litnum ljós bláfjólublár, síðan eru prjónaðar 2 umf með litnum púðurbleikur og 2 stuttar umf yfir fyrstu 19-23-23-27 l með litnum púðurbleikur. Prjónið 2 umf yfir allar l með litnum ljós bláfjólublár.

Skiptið yfir í litinn ljós púðurbleikur, síðan er prjónað garðaprjón. Fellið af fyrstu 17-21-21-25 l í byrjun á næstu umf frá réttu, í lok næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 6 nýjar l = 20-20-22-22 l. Fækkið lykkjum í byrjun hverrar umf frá röngu þannig: Fækkið um 1 lykkju 3 sinnum og 3 lykkjur 2 sinnum = 11-11-13-13 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Sjá mynsturteikningu. Leggið tátiljuna saman við miðju undir fæti og saumið saman við miðju framan á tá og upp yfir fyrsta uppfitjunarkant og síðasta affellingarkant. Saumið saman við miðju að aftan.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

ÞÆFING:
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = mitt undir fæti
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1229

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Riviere wrote:

Question sur le feutrage : programme à 40° essorage normal. Quel programme laine ou autre et essorage normal combien de tour 600 900 1200 ? J'ai fait programme laine 40° ça n'a pas feutré puis programme coton 40° essorage 900 et vraiment trop feutré le chausson est maintenant trop serré. Merci de m'indiquer avec plus de précision et la durée aussi du programme pour feutrer habituellement. Merci

13.03.2022 - 14:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Riviere, toutes les machines sont différentes, l'idéal est que vous fassiez un essai au préalable sur un échantillon - à titre d'informations, sur la mienne, je garde un essorage à 600 t (le "basique" de mon lave-linge). Il faut feutrer en programme normal, pas laine, car le programme laine ne sera pas suffisant (c'est en général un programme doux). Retrouvez d'autres infos sur le feutrage ici. Bon tricot!

14.03.2022 - 11:14

country flag Alice wrote:

Buongiorno, leggo che per questo modello sono consigliati i ferri n°6, ma sul sito del rivenditore del filato Eskimo sono indicati i ferri n°9! a quale informazione devo fare affidamento?

30.03.2020 - 19:30

DROPS Design answered:

Buongiorno Alice, questo è un modello che dev'essere infeltrito, quindi lavorato in modo più stretto anche prima dell'infeltrimento. Provi a lavorare con il 6mm indicato nel modello e controlli che il suo campione corrisponda a quello indicato: in caso negativo usi il numero di ferri che le permette di ottenere il campione indicato nel modello. Buon lavoro!

31.03.2020 - 09:09

country flag Jannie wrote:

Tøflerne er ikke krøbet eller filtet efter vask på 40 grader. Har ikke brugt sæbe, centrifugering på 1200 omdrejninger. Hvad kan jeg så prøve.

09.10.2018 - 15:43

DROPS Design answered:

Hei Jannie. Det var leit å høre, hvilken farge og partinummer er garnet? Du kan prøve igjen, denne gangen med litt grønnsåpe og høyere sentrifugering hvis det er mulig. God fornøyelse.

16.10.2018 - 13:05

Britta Bousba wrote:

Skal man absolut filtrere arbejdet? Kan man ikke bare lave dem uden at filtrere? Britta

27.07.2018 - 17:06

DROPS Design answered:

Hej Britta, Hvis du ikke filter dem så vil de blive for store. Men vi har mange tøfler i DROPS Eskimo som ikke skal filtes. God fornøjelse!

30.08.2018 - 14:45

country flag Bibou wrote:

Bonjour merci c'est niquel j'ai réussi à le faire. Par contre jai une autre question général, quand j'ai cousu comme indiqué le bout reste pointu , comment faire pour qu'il soit arrondi vers le talon ? Car ça me fait un talon pointu

16.01.2018 - 17:24

DROPS Design answered:

Bonjour Bibou, vous pourrez les mettre en forme après feutrage, dès sortie de la machine, et tant qu'ils sont encore humides. Bon tricot!

17.01.2018 - 08:20

country flag Bibou wrote:

Merci à vous je viens de recommencer et de m'apercevoir que c'était bien ça mais je me suis juste trompé j'avais rajouté les mailles en début et non en fin de rang envers . Merci de prendre le temps de me répondre . Une fois que je serai arrivé au marqueur il faudra que je le place où exactement ? Il n y a pas de maille en particulier juste au milieu ?

12.01.2018 - 15:23

DROPS Design answered:

Bonjour Bibou, vous pouvez le placer entre les mailles du dernier rang, ce marqueur sert à bien repérer le milieu de l'ouvrage. Bon tricot!

15.01.2018 - 10:59

country flag Bibou wrote:

C'est pourtant ce que j'ai fait ça donne la bonne forme mais la pointe se trouve tout en haut et pas vers le bas .Ça me paraît bizarre c'est moi qui doit mal comprendre et malgré les vidéos et explications je ne comprends pas comment les monter à la fin d'un rang . Merci

12.01.2018 - 14:26

DROPS Design answered:

Bonjour Bibou, cette vidéo montre comment monter les mailles en fin de rang. Dans la vidéo, elles sont montées à la fin du rang sur l'envers, pour les chaussons, montez les premières mailles du début du chausson en fin de rang sur l'endroit. Pour toute aide complémentaire individuelle, n'hésitez pas à contacter votre magasin ou à vous enregistrer sur le forum DROPS. Bon tricot!

12.01.2018 - 14:46

country flag Bibou wrote:

En gros je fais mon rang endroit que je tricote ensuite je rajoute des mailles et après je tricote le rang envers . C'est bien ça ?

11.01.2018 - 21:12

DROPS Design answered:

Bonjour Bibou, Vous montez 11-13 m et *tricotez 1 rang sur l'endroit en montant 3 m à la fin de ce rang. Tournez, tricotez 1 rang sur l'envers sur toutes les mailles*. Répétez de *-* encore 1 fois. *Tournez. S ur l'endroit, tricotez toutes les mailles et montez 1 m à la fin du rang, tournez, sur l'envers, tricotez 1 rang sur toutes les mailles*, répétez 3 fois au total de *-*. = vos augmentations seront à gauche, vu sur l'endroit. Bon tricot!

12.01.2018 - 08:56

country flag Bibou wrote:

Est ce normal que quand je tricote , le côté se trouve vers le haut et non le bas comme sur le diagramme ? Je fais comme indiqué les augmentations sur le côté droit et la pointe du côté se trouve au dessus et non en bas

11.01.2018 - 21:07

DROPS Design answered:

Bonjour Bibou, votre ouvrage doit ressembler à celui du schéma, les augmentations se font toutes du même côté: en fin de rang sur l'endroit (sur l'envers, vous tricotez les mailles sans augmenter) jusqu'à ce que vous ayez 20-22 m.

12.01.2018 - 08:53

country flag Bibou wrote:

Bonjour, désolé si je vous pose pleins de questions à chaque fois, quand vous dites augmenter sur chaque rang à l'endroit . Est ce l'endroit de l'ouvrage? Ou chaque rang endroit ? Mais vu que c'est du point mousse j'augmente sur tous les rangs peut importe le sens de l'ouvrage ?

10.01.2018 - 19:36

DROPS Design answered:

Bonjour Bibou, on va augmenter à la fin de chaque rang sur l'endroit, soit à gauche quand on regarde l'ouvrage sur l'endroit. Les augmentations vont être d'un côté seulement. Puis on va rabattre des mailles en début de rang sur l'endroit (= à droite, vu sur l'endroit) et monter des mailles en fin de rang sur l'envers (= à droite, vu sur l'endroit). Le schéma en bas de page vous aidera sans doute à bien visualiser. Bon tricot!

11.01.2018 - 08:38