Agnieszka Pawlak-Cieślak skrifaði:
Dziękuję za odpowiedź. Doszłam do etapu zszywania i... utknelam. Od jakiego punktu zszywac? Zszywanie do oczek nabieranych wydaje się bez sensu. Czy jest jakieś wideo albo rysunek jak zszywac? Narazie będę robić metodą prób i błędów...
15.10.2017 - 11:32DROPS Design svaraði:
Witaj Agnieszko, zagnij kapeć w miejscu przerywanej linii i dalej postępuj zgodnie z wskazówkami WYKOŃCZENIA, tj: 'zszyć na środku przodu, zaczynając od palców, aż do pierwszych nabieranych o. i ostatnio zamykanych o. Zszyć kapeć na środku tyłu'. Pozdrawiam
15.10.2017 - 21:59
Agnieszka Pawlak-Cieślak skrifaði:
Jak rozumieć "gdy przerobimy taką samą długość przed markerem kolorem ametyst, dalej przerabiać następująco (...)". Czy nie powinno być "taka samą długość JAK przed markerem"? Dalej w opisie należy po zmianie koloru przerobić 2 rzędy nieskrócone, co wydaje się niesymetryczne...
12.10.2017 - 21:28DROPS Design svaraði:
Witaj Agnieszko, masz rację, jaśniej będzie tak: "gdy przerobimy taką samą długość kolorem ametyst jak przed markerem, dalej przerabiać następująco...". Poprawimy to we wzorze. Dziękuję i pozdrawiam
13.10.2017 - 20:25Moreau skrifaði:
Bonjour,très joli modèle les chaussons"Early Morning"mais impossible de comprendre les explications,j'ai fait un essai avec un résultat qui ne ressemble en rien au schéma aussi je vais reprendre un modèle que j'ai déjà tricoter,dommage!
12.02.2016 - 14:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Moreau, suivez bien pas à pas les étapes du chausson - le schéma en bas de page montre l'ouvrage terminé (à plat, avant couture). Pour toute assistance personnelle, n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS ou le forum DROPS. Bon tricot!
12.02.2016 - 14:48
Early Morning |
|||||||
|
|||||||
Prjónaðar þæfðar tátiljur með röndum úr DROPS Snow. Stærð 35-44.
DROPS Extra 0-1229 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki með saum við miðju að framan og við miðju að aftan, byrjað er efst, mitt ofan á fæti. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA! TÁTILJA: Fitjið upp 11-11-13-13 l á prjóna nr 6 með litnum púðurbleikur Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf frá réttu þannig: 3 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum = 20-20-22-22 l – útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka (stykkið mælist ca 4 cm) fellið af fyrstu 6 l í næstu umf frá réttu = 14-14-16-16 l. Í lok næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 17-21-21-25 nýjar l = 31-35-37-41 l í umf. Skiptið yfir í litinn ljós bláfjólublár, prjónið síðan sléttprjón. Prjónið 2 umf með litnum ljós bláfjólublár, síðan er skipt yfir í litinn púðurbleikur og prjónað þannig: Prjónið 2 umf með litnum púðurbleikur, síðan eru prjónaðar 2 stuttar umferðir frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 19-23-23-27 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 2 umf yfir allar l með litnum ljós bláfjólublár, síðan eru prjónaðar 2 umf með litnum púðurbleikur og 2 stuttar umferðir með litnum púðurbleikur yfir fyrstu 19-23-23-27 l eins og áður. Haldið áfram með litnum ljós bláfjólublár. Þegar stykkið mælist 13-14-14-15 cm (mælt frá byrjun stykkis í prjónstefnu) setjið eitt prjónamerki = mitt undir fæti. Þegar prjónað hefur verið jafn langt á eftir prjónamerki eins og á undan prjónamerki með litnum ljós bláfjólublár er prjónað með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 2 umf með litnum púðurbleikur, prjónið 2 stuttar umferðir yfir fyrstu 19-23-23-27 l eins og áður. Prjónið 2 umf yfir allar l með litnum ljós bláfjólublár, síðan eru prjónaðar 2 umf með litnum púðurbleikur og 2 stuttar umf yfir fyrstu 19-23-23-27 l með litnum púðurbleikur. Prjónið 2 umf yfir allar l með litnum ljós bláfjólublár. Skiptið yfir í litinn ljós púðurbleikur, síðan er prjónað garðaprjón. Fellið af fyrstu 17-21-21-25 l í byrjun á næstu umf frá réttu, í lok næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 6 nýjar l = 20-20-22-22 l. Fækkið lykkjum í byrjun hverrar umf frá röngu þannig: Fækkið um 1 lykkju 3 sinnum og 3 lykkjur 2 sinnum = 11-11-13-13 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Sjá mynsturteikningu. Leggið tátiljuna saman við miðju undir fæti og saumið saman við miðju framan á tá og upp yfir fyrsta uppfitjunarkant og síðasta affellingarkant. Saumið saman við miðju að aftan. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1229
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.