Erica Top#ericatop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light með gatamynstri, stuttum ermum og A-formi. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-19 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið l innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á eftir 2 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið l á undan 2 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan kantlykkjum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Fækkið l innan við 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið l á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum. BAKSTYKKI: Fitjið upp 111-117-129-141-147-159 l á prjóna nr 4 með Cotton Light. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1 og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni – ATH: Í 7. umf í A.1 er síðasta l prjónuð á undan kantlykkju í garðaprjóni (frá réttu). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2A yfir næstu 18-21-27-33-36-42 l (= 6-7-9-11-12-14 mynstureiningar 3 l), prjónið A.3 (= 11 l), setjið 1 prjónamerki (= prjónamerki A), prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 yfir næstu 48 l (= 6 mynstureiningar 8 l), prjónið 1. l í A.4, setjið 1 prjónamerki (= prjónamerki B – nú eru 49 l á milli prjónamerkja), prjónið A.3 (= 11 l), prjónið mynstur eftir A.2B yfir næstu 18-21-27-33-36-42 l og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATH: A.2 og A.3 heldur nú áfram uppúr utan við prjónamerki A og B upp fyrir handveg. Á milli prjónamerki A og B er nú prjónaður gatakantur og lykkjufjöldinn á milli prjónamerkja kemur nú til með að breytast. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! MYNSTUR (á við um l á milli prjónamerkja A og B): Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynstur prjónað eftir A.5 þannig (l á undan prjónamerki A og á eftir prjónamerki B halda áfram eins og áður): Prjónið A.5A (= 12 l), endurtakið A.5B yfir næstu 24 l (= 2 mynstureiningar 12 l) og endið á A.5C (= 13 l). Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynstur prjónað eftir A.5 aftur alveg eins og síðast. Prjónið A.1 JAFNFRAMT sem í síðustu umf frá réttu er fækkað um 4 l jafnt yfir í stærð S + M + L + XL og aukið út um 2 l jafnt yfir í stærð XXL + XXXL (á milli prjónamerkja A og B) = 45-45-45-45-51-51 l á milli prjónamerkja. Í næstu umf frá réttu er A.6 prjónað þannig: Prjónið A.6A (= 4 l), endurtakið A.6B yfir næstu 36-36-36-36-42-42 l (= 6-6-6-6-7-7 mynstureiningar 6 l) og endið á A.6C (= 5 l). Eftir A.6 er A.1 aftur prjónað og JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 4-4-4-4-2-2 l jafnt yfir = 41-41-41-41-49-49 l á milli prjónamerkja. Eftir A.1 er aftur prjónað A.4 JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 2 l í stærð XXL + XXXL = 41-41-41-41-51-51 l á milli prjónamerkja. Prjónið síðan A.7 þannig: Prjónið A.7A (= 5 l), endurtakið A.7B yfir næstu 30-30-30-30-40-40 l (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar 10 l) og endið á A.7C (= 6 l). Í síðustu umf frá réttu í A.7 er fækkað um 2 l jafnt yfir í stærð XXL + XXXL = 41-41-41-41-49-49 l. Eftir A.7 er endurtekið til skiptis A.4 og A.1 upp að úrtöku fyrir hálsmáli. ÚRTAKA Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku með 6-6-6-4-4-4 cm millibili alls 6-6-6-9-9-9 sinnum – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstri í hlið þegar l er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir úrtöku í hliðum eru 12-15-21-24-27-33 l eftir í A.2 í hvorri hlið. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir síðustu 14-17-23-26-29-35 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir allar l að utanverðu A.3 í hvorri hlið – aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið síðan af síðustu 4-6-6-8-10-14 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg. Haldið áfram með mynstur á milli prjónamerkja A og B eins og útskýrt var frá að ofan, haldið áfram með A.3 utan við prjónamerki A og B eins og áður og prjónið garðaprjón yfir síðustu 10-11-17-18-19-21 l í hvorri hlið. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þannig – LESIÐ ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 l alls 7-8-12-13-16-18 sinnum. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist ca 50-50-54-54-54-54 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1 eða A.4, fellið af miðju 31-31-31-31-37-37 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.3 eins og áður með 5-5-5-5-7-7 kantlykkjum í garðaprjóni við hálsmál og 3-3-5-5-3-3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af. Endurtakið í hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 66-70-76-82-86-94 l á prjóna nr 4 og prjonið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – merkir hvar sauma á ermina við fram- og bakstykki. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar l. Þegar stykkið mælist 2-3-3-4-5-7 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l saman. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 5-4-0-0-0-0 sinnum, í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 2-4-10-7-3-0 sinnum og í hverri umf (bæði frá réttu og frá röngu) alls 0-0-5-11-19-26 sinnum = 52-54-46-46-42-42 l eftir á prjóni. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið sauma undir ermum – saumið kant í kant með 1 spori í hverja l svo að saumurinn verði flatur. Saumið hliðarsauma alveg eins. Leggið ermina undir kant á ermi og saumið niður fallega með smáu spori svo að kanturinn sjáist ekki – prjónamerki mitt undir ermi á að passa við hliðarsauma á fram- og bakstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ericatop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.