DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Erica Singlet

Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light með gatamynstri og A-formi. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-20
DROPS Design: Mynstur nr cl-063
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
350-400-450-450-500-550 g nr 02, hvítur

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið l innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á undan 2 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan kantlykkjum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Fækki um 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan 2 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 111-117-129-141-147-159 l á prjóna nr 4 með Cotton Light.
Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1 og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni – ATH: Í 7. umf í A.1 er síðasta l prjónuð á undan kantlykkju slétt (frá réttu).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2A yfir næstu 18-21-27-33-36-42 l (= 6-7-9-11-12-14 mynstureiningar 3 l), prjónið A.3 (= 11 l), setjið 1 prjónamerki (= prjónamerki A), prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 yfir næstu 48 l (= 6 mynstureiningar 8 l), prjónið 1. l í A.4, setjið 1 prjónamerki (= prjónamerki B – nú eru 49 l á milli prjónamerkja), prjónið A.3 (= 11 l), prjónið mynstur eftir A.2B yfir næstu 18-21-27-33-36-42 l og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATH: A.2 og A.3 heldur nú áfram utanverðu við prjónamerki A og B upp að handveg. Á milli prjónamerkja A og B er prjónað gatastroff og lykkjufjöldi á milli prjónamerkja kemur til með að breytast.
LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
MYNSTUR (á við um lykkjur á milli prjónamerkja A og B): Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.5 þannig (l á undan prjónamerki A og á eftir prjónamerki B halda áfram eins og áður: Prjónið A.5A (= 12 l), endurtakið A.5B yfir næstu 24 l (= 2 mynstureiningar 12 l) og endið á A.5C (= 13 l).
Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.4 aftur alveg eins og síðast. Prjónið síðan A.1 JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 4 l jafnt yfir í stærð S + M + L + XL og aukið út um 2 l jafnt yfir í stærð XXL + XXXL (á milli prjónamerkja A og B) = 45-45-45-45-51-51 l á milli prjónamerkja. Í næstu umf frá réttu er prjónað A.6 þannig: Prjónið A.6A (= 4 l), endurtakið A.6B yfir næstu 36-36-36-36-42-42 l (= 6-6-6-6-7-7 mynstureiningar 6 l) og endið á A.6C (= 5 l). Eftir A.6 er aftur prjónað A.1 JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 4-4-4-4-2-2 l jafnt yfir = 41-41-41-41-49-49 l á milli prjónamerkja. Eftir A.1 er aftur prjónað A.4 JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 2 l í stærð XXL + XXXL = 41-41-41-41-51-51 l á milli prjónamerkja. Prjónið síðan A.7 þannig: Prjónið A.7A (= 5 l), endurtakið A.7B yfir næstu 30-30-30-30-40-40 l (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar 10 l) og endið á A.7C (= 6 l). Í síðustu umf frá réttu í A.7 er fækkað um 2 l jafnt yfir í stærð XXL + XXXL (ekki er l fækkað í öðrum stærðum) = 41-41-41-41-49-49 l. Eftir A.7 er endurtekið til skiptis A.4 og A.1 upp að úrtöku fyrir hálsmáli.

ÚRTAKA Í HLIÐUM:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1. Endurtaki úrtöku með 6 -6-6-4-4-4 cm millibili alls 6-6-6-9-9-9 sinnum – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri út að hlið þegar úrtaka stendur yfir eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir úrtöku í hliðum eru 12-15-21-24-27-33 l í A.2 í hvorri hlið.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir síðustu 14-17-23-26-29-35 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir allar l að utanverðu á A.3 í hvorri hlið – aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið af síðustu 4-6-6-8-10-14 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg. Haldið áfram með mynstur á milli prjónamerkis A og B eins og útskýrt var frá að ofan, haldið áfram með A.3 að utanverðu við prjónamerki A og B eins og áður og prjónið garðaprjón yfir síðustu 10-11-17-18-19-21 l í hvorri hlið. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þannig – LESIÐ ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 l alls 7-8-12-13-16-18 sinnum.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist ca 50-50-54-54-54-54 cm – stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.1 eða A.4, fellið af miðju 31-31-31-31-37-37 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.3 eins og áður með 5-5-5-5-6-6 kantlykkjum í garðaprjóni við hálsmál og 3-3-5-5-3-3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma – saumið kant í kant með 1 spori í hverja l svo að saumurinn verði flatur.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjónin á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Delia wrote:

Sono arrivata allo scalfo ma non ho capito cosa vuol dire "lavorare 2 coste sulle 17 maglie...". In pratica cosa devo fare, considerando anche il numero dispari di maglie?

12.03.2024 - 14:27

DROPS Design answered:

Buongiorno Delia, 1 costa sono 2 ferri a maglia legaccio, come indicato nelle spiegazioni. Buon lavoro!

12.03.2024 - 16:03

country flag E M wrote:

I have just completed the back of this - in the pattern it says after 7 repeat a4 and a1 alternating but the picture goes straight from 7 to a1. Have I misunderstood?

26.05.2023 - 13:56

DROPS Design answered:

Dear E M, the photo is for a size M. Since there wasn't much space for a full repeat of both charts, the designer simply chose one of them to finish off. If you only have space for one chart, then you can repeat whichever you prefer. However, if you have space for more than 1 chart repeat, it'd be better to follow the sequence of A.4 and A.1 alternately, starting with A.4. This would match the sequence from before, when you had: new chart A.1, A.4, new chart, A.4, A.1, new chart, A.1, A.4, new chart. Happy knitting!

28.05.2023 - 19:37

country flag Marita wrote:

Hallo, wenn ich dieses Shirt länger machen möchte welcher Teil des Musters eignet sich am besten dazu? Ich habe so an 10 bis 15 cm länger gedacht

07.07.2022 - 18:43

DROPS Design answered:

Liebe Marita, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen - gerne kann Ihnen aber Ihr DROPS Laden damit -auch per E-Mail or Telefon - weiterhelfen. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

08.07.2022 - 09:51

country flag Claudine Azoulay wrote:

Ce modèle est pas mal compliqué et il faut être très attentive en le réalisant, certainement pas en regardant la télévision!!! J'ai tricoté le dos en jersey avec une bande de trous de part et d'autre, car je n'avais pas le courage de refaire tous ces motifs. Je l'ai tricoté en rose fuchsia mais je crois que le résultat est plus intéressant et que le motif ressort plus si on utilise du fil blanc ou d'une couleur claire.

15.04.2022 - 22:42

country flag Adoracion wrote:

Tengo que hacer 14 hileras del diagrama A1 y despues canviar al A2? En la foto se ve el calado antes de la 7 fila,no estoy interpretando bien los diagramas?

23.03.2022 - 19:25

DROPS Design answered:

Hola Adoración, el diagrama es correcto, tienes que trabajar las 14 filas de A.1.

26.03.2022 - 19:29

country flag Claudia Mesquita wrote:

It seems to me, the pattern description between markers A and B does not really match the image of the garment. Shouldn't we knit rows in garter stitch between A.4 and A.5, between A.5 and A.4 and so on? Also, shouldn't the number of repetitions vary according to the size being knitted? The instructions do not account for that. Finally, we see there are regular decreases from bottom up that shape the garment. How should de decreases be done? Thanks for the feedback.

20.10.2021 - 21:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mesquita, the garter stitch rows between diagrams are drawn in the diagrams, see for example the last 4 rows in A.4 = you will knit them from RS (white square) and knit them from WS (small line) = 2 ridges. Decreases are explained under DECREASE TIP-1 (applies to sides of body): at the beg of the pattern. Happy knitting!

21.10.2021 - 07:09

country flag Sandra wrote:

Bonjour, Pensez vous que ce modèle puisse être réaliser en une seule partie (avec des aiguilles circulaires) jusqu’au emmanchures ? (en faisant A2B et A2A à la suite sur les cotés sans mousse)

30.06.2021 - 18:00

DROPS Design answered:

Bonjour Sandra, probablement, pensez à bien adapter votre nombre de mailles en conséquence - il vous faudra tricoter le point mousse avant les emmanchures (il sert de bordure d'emmanchure avant de rabattre les mailles). N'hésitez pas à demander conseil à votre magasin pour toute assistance individuelle. Bon tricot!

01.07.2021 - 08:49

country flag Lisbeth wrote:

Jeg er ved at strikke mønster hvor man anvender diag A.5. Og når man har strikket A5 een gang skal man i strikningen tage ind. Derefter er der overskrifter med først “indtagning i siderne” efter 6 cm!! Hvornår er det?? Herefter er der indtagninger for ærmegab og hals. Men det er de der indt. I siderne jeg undrer mig over

22.06.2020 - 20:19

DROPS Design answered:

Hej Lisbeth, Samtidig som du strikker MØNSTER står det LÆS HELE AFSNITTET FØR DET STRIKKES VIDERE det er fordi at samtidig som du strikker mønster skal der tages ind i siderne når arbejdet måler 6 cm og det skal du gøre for hver 6.eller4.cm (ifølge din størrelse) God fornøjelse!

25.06.2020 - 09:17

country flag Josien wrote:

Hallo, Er staat tussen markeerders a en b een kantrand breien, wordt hiermee patroon a4 bedoelt? Ik snap het niet helemaal. Alvast bedankt.

06.02.2020 - 14:40

DROPS Design answered:

Dag Josien,

Deze kantrand tussen de markeerders is het middengedeelte van het achterpand en als je verder leest bij 'LEES ALLE ONDERSAANDE...etc, wordt uitgelegd hoe je deze kantrand breit.

09.02.2020 - 11:07

country flag Thea wrote:

Bijna toe aan het armsgat, dan pas de alinea over het minderen vanaf 6 cm. Waarom wordt dit niet vermeld in de eerste alinea? Nu weer opnieuw beginnen

01.03.2019 - 15:43

DROPS Design answered:

Dag Thea,

Dat is inderdaad jammer. Er staat halverwege de tekst wel dat je alle onderstaande aanwijzingen door moet lezen voordat je verder gaat.

05.03.2019 - 20:42