DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Belle yarn
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Making Waves

Prjónaður kjóll úr DROPS Belle með röndum og öldumynstri, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 169-12

#makingwavesdress

DROPS Design: Mynstur nr vs-015
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
150-150-200 g nr 06, silfurgrár
150-150-200 g nr 04, fífill
100-150-150 g nr 16, malva
100-150-150 g nr 02, natur
100-150-150 g nr 03, ljós beige
100-100-150 g nr 09, beige

ATH: Ef kjóllinn er prjónaður með einum lit þá þarf 550-650-800 g Belle.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 30 umf með öldumynstri verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.14.

RENDUR:
Prjónið rendur þannig: Skiptið um lit eftir umf sem prjónuð er brugðin.
Uppfit að 10 cm: natur
10 cm að 21-22-22 cm: fífill
21-22-22 cm að 32-34-35 cm: silfurgrár
32-34-35 cm að 43-46-48 cm: beige
43-46-48 cm að 54-58-61 cm: ljós beige
54-58-61 cm að 66-70-74 cm: malva
66-70-74 cm að 78-82-86 cm: silfurgrár

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

KJÓLL:
Fitjið upp 98-112-140 l á stutta hringprjóna nr 4 með litnum natur. Prjónið eftir A.1 (= 14-16-20 mynstureiningar á breiddina) og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 322-368-460 l á prjóni. Skiptið yfir á stóra hringprjóna eftir þörf. Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist 18-20-22 cm. Prjónið síðan þannig: Prjónið 92-115-138 l (= bakstykki), setjið næstu 69-69-92 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l, prjónið næstu 92-115-138 l (= framstykki), setjið næstu 69-69-92 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l.

FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI:
= 200-246-292 l. Haldið áfram með A.2 yfir l í öldumynstri, yfir 8 nýjar l í hvorri hlið er prjónað sl þegar prjónar er sl í mynstri og br þegar prjónað er br í mynstri. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 l mitt í þeim 8 nýju l í hvorri hlið (= 4 l færri), endurtakið úrtöku með 4 cm millibili 3 sinnum til viðbótar svo að allar 8 nýju l hefur verið fækkað = 184-230-276 l. Haldið áfram með A.2 yfir allar l (= 8-10-12 mynstureiningar á breiddina).

Þegar stykkið mælist 38-40-42 cm frá öxl er A.3 prjónað 1 sinni á hæðina = 200-250-300 lykkjur. Prjónið A.4 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.5 1 sinni á hæðina = 216-270-324 l. Prjónið A.6 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.7 1 sinni á hæðina = 232-290-348 l. Prjónið A.8 2 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.9 1 sinni á hæðina = 248-310-372 l. Prjónið A.10 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.11 1 sinni á hæðina = 264-330-396 l. Prjónið A.12 2 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.13 1 sinni á hæðina = 280-350-420 l. Prjónið A.14 3 sinnum á hæðina, eða þar til stykkið mælist 78-82-86 cm frá öxl. Fellið laust af.

KANTUR ERMI:
Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 og prjónið upp 1 l í hverja af 8 l undir ermi = 77-77-100 l. Haldið áfram með litinn fífil, prjónið A.2 yfir l í öldumynstri, yfir 8 nýjar l í hvorri hlið er prjónað sl þegar prjónað er sl í mynstri og br þegar prjónað er br í mynstri. Prjónið 2 mynstureiningar af A.2, í hvert skipti sem prjónað er gat og uppsláttur í A.2 er fækkað um 2 l mitt í þeim 8 nýju l mitt undir ermi = 73-73-96 l. Fellið af.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Mynstur

sl = sl
br = br
2 l slétt saman = 2 l slétt saman
sláið uppá prjóninn á milli 2 l = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
Diagram for DROPS 169-12
Diagram for DROPS 169-12
Diagram for DROPS 169-12
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag MJ skrifaði:

Hello, Under the arm where 8 new stitches are added on each side, how does one set of wave pattern fit in? Since it's 23 stitch repeat? What do I do on the 3rd row on A2 when you do the "knit 2 together" and "YO"? Thank you. MJ

26.04.2025 - 02:51

DROPS Design svaraði:

Dear MJ, the 8 sts won't fit the pattern; you will work them similarly to the pattern at the start and, later on, you will decrease these stitches and work the rest in the pattern. So you only need to work by knitting or purling the stitches according to whether that row is purled or knitted. The chart is worked only over the other stitches and you won't need to work the wave/lace pattern over the 8 new stitches on each side. Happy knitting!

27.04.2025 - 12:31

country flag MJ skrifaði:

Hello, Under the arm where 8 new stitches are added on each side, how does one set of wave pattern fit in? Since it's 23 stitch repeat? Thank you. MJ

26.04.2025 - 02:47

DROPS Design svaraði:

Dear MJ, the 8 sts won't fit the pattern; you will work them similarly to the pattern at the start and, later on, you will decrease these stitches and work the rest in the pattern. So you only need to work by knitting or purling the stitches according to whether that row is purled or knitted. The chart is worked only over the other stitches and you won't need to work the wave/lace pattern over the 8 new stitches on each side. Happy knitting!

27.04.2025 - 12:31

country flag Paula skrifaði:

Danke für eure schönen Anleitungen. Ich habe schon zwei Modelle gehäkelt und finde sie sehr gelungen. Eine Frage zu diesem Modell: Die Farben in der Anleitung passen nicht ganz zu denen auf dem Foto bzw. gibt es die Farben gar nicht zu kaufen. (z.B. Beige, das auf dem Foto eher grau aussieht) Habt ihr Empfehlungen, welche Farbkombinationen auch gut passen würden? Ich finde diese Pastelltöne sehr harmonisch. Wodurch könnte man sie ersetzen? Herzliche Grüße

23.01.2025 - 21:37

DROPS Design svaraði:

Liebe Paula, danke für Ihre Rückmeldung. Für weitere Farben-Idéer wenden Sie sich an Ihrem DROPS Laden (auch per Telefon oder per E-Mail), dort kann man Ihnen die besten passenden Farben empfehlen - Viel Spaß beim Stricken!

24.01.2025 - 09:48

country flag Maria skrifaði:

Dzień dobry, czy te 8 oczek dodanych na pachę przerobić na prawo? Czy w tym miejscu kontunuujemy wzór fal?

28.07.2024 - 11:05

DROPS Design svaraði:

Witaj Mario, te 8 oczek przerabiasz najpierw na prawo ponad okrążeniem na prawo ściegu fantazyjnego i przer. na lewo ponad okrążeniem na lewo ściegu fantazyjnego. Następnie zamykasz 2 oczka ponad tymi 8 oczkami 4 razy jak w opisie (8 nabranych o. zostanie zamkniętych) i dalej już przerabiasz schemat A.2 przez całe okrążenie. Pozdrawiamy!

28.07.2024 - 15:48

country flag Francesca Pellencin skrifaði:

Je souhaite tricoter cette robe, mais en forme trapèze complètement sans réduction à la taille, je ne comprends pas très bien d'après le diagramme comment faire pour ne pas diminuer de mailles à la taille et ré-augmenter ensuite, ce que je veux faire c'est augmenter régulièrement. Pouvez-vous m'indiquer ce qui dans le diagramme correspond à la réduction de largeur pour la taille afin que je puisse l'éviter.

03.06.2024 - 00:36

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Pellencin, les diminutions pour la taille sont à faire dans A.2 en commençant à 3 cm après la division; vous pouvez donc probablement ajuster vos augmentations à partir de la hauteur souhaitée après la division, en suivant les diagrammes à partir de A.3 pour les augmentations et à partir de la hauteur qui vous convient. Bon tricot!

03.06.2024 - 08:19

country flag Marielouise Hallsten skrifaði:

Ska man sticka mönster över dom 8 maskorna man lagt upp under armen? Jag får det inte att stämma hur än jag gör

31.05.2024 - 13:03

DROPS Design svaraði:

Hei Marielouise. Nei, du fortsetter med A.2 over maskene i bølgemønster, men over de 8 nye maskene i hver side strikkes det rett når det strikkes rett i mønsteret og vrang når det strikkes vrang i mønsteret. Når arbeidet måler 3 cm skal det felles under hvert erme og når alle fellingene er ferdig er de 8 nye maskene borte og det strikkes kun A.2 over alle maskene. mvh DROPS Design

03.06.2024 - 12:00

country flag Katalin Alexa Király Broholm skrifaði:

Tak for en fin opskrift:-) Under ‘Ryg og forstykke’ står der: “Når arb måler 3 cm …” så her måles tydeligvis fra den nye kant under ærmerne. Længere nede står der: “Når arb måler 38-40-42 cm …” Er det fortsat målt fra kanten under ærmet, eller er det målt fra halsudskæringen? Tak fra Katalin

20.05.2024 - 21:55

DROPS Design svaraði:

Hej Katalin, det er fra starten, vi skal skrive det tydeligere i opskriften - tak for info :)

23.05.2024 - 14:28

country flag Corina Flake skrifaði:

I am wondering about the instructions "When piece measures 3 cm / 1'', dec 2 st in middle of the 8 new sts in each side (= 4 sts dec), repeat dec every 4 cm / 1½'' 3 more times so that all of the new 8 sts has been dec." By the 3rd repeat decrease I am left with 1 stitch and only 1 decrease possible. Is there something I am missing or is this correct - should I be left with those extra stitches? How does it factor into the wave pattern?

18.05.2024 - 05:03

DROPS Design svaraði:

Dear Corina, you should have 8 sts in each side, so 16 in total. You decrease 2 in each side, so you should have 6 sts in each side and 12 in total. The next time you decrease 2 in each side again, so you have 4 in each side and 8 in total. Repeat once more; 2 sts in each side and 4 in total. The last time you decrease the 2 remaining sts in each side, so you should have decreased all of the 8 sts in each side and 16 sts in total. Happy knitting!

20.05.2024 - 00:06

country flag Lilianne skrifaði:

I have just finished A.1,do I do the whole of A.2…to A.14

14.06.2023 - 01:38

DROPS Design svaraði:

Dear Lilianne , afer A.1 is done in height, work and repeat A.2 until piece measures 18-20-22 cm (siee size), then divide piece and continue A.2 on body - when piece measures 38-40-42 cm, work A.3 then A.4 2 times in height, then A.5 then A.6 2 times in height, then A.7 then A.8 2 times in height, then A.9, then A.10 2 times in height, then A.11, then A.12 2 times in height, then A.13 and finally A.14 3 times in iehgt. - on sleeves continue A.2. Happy knitting!

14.06.2023 - 08:12

country flag BEATRIZ skrifaði:

Hola, necesito por favor mayor detalle en lo siguiente: 1) el patrón dice: Cuando A.1 ha sido tejido una vez verticalmente : ¿esto quiere decir de abajo para arriba o de arriba para abajo?...¿Cómo puedo leerlo? 2) Qué significa Tejer de acuerdo a A.1 (= 14-16-20 repeticiones a lo ancho). Agradeceré detallen estas dos partes para entender como tejerlo. Saludos!

25.04.2023 - 22:05

DROPS Design svaraði:

Hola Beatriz, 1) verticalmente hace referencia a cuando hayas trabajado todas las filas representadas en el diagrama A.1. Ten en cuenta que la dirección de los diagramas de punto es fija. (leer de derecha a izquierda y de abajo arriba 2) A.1 es el diagrama de punto (que puedes encontrar debajo de las instrucciones del patrón). Las repeticiones a lo ancho son las veces que tienes que repetir el diagrama A.1 en la misma fila. Para entender cómo trabajar nuestros diagramas de punto, puedes leer más información aquí: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=23

30.04.2023 - 22:02