DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mallorca

Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat, prjónaður ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-25
DROPS Design: Mynstur nr r-686
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
650-700-800-850-950-1050 g nr 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki í (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (á við um dreifingu á úrtöku/útaukningu):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út/fækka í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d.154 l) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10 l) = 15,4. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í 14. og 15. hverja lykkju og 15. og 16. hver lykkja er prjónuð slétt saman (ef fækka á lykkjum), eða aukið út til skiptis í ca 15. og 16. hverja lykkju.
ATH: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað fram og til baka í 2 stykkjum, síðan eru l settar saman og stykkið er prjónað í hring til loka.

BERUSTYKKI AÐ AFTAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 71-71-77-81-85-91 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og setjið 1 prjónamerki í 18.-18.-20.-22.-22.-24. l inn frá hvorri hlið (= 35-35-37-37-41-43 l á milli prjónamerkja).
Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er aukið út hvoru megin við 2 l með prjónamerki í – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 l fleiri).
Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 18-20-20-22-25-25 sinnum = 143-151-157-169-185-191 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu. Stykkið mælist nú ca 8-9-9-10-11-11 cm.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 35-37-39-43-46-48 l (= band á öxl), prjónið sl yfir næstu 73-77-79-83-93-95 l (sú fyrsta af þessum l er nú þegar á hægri prjóni), fellið síðan af síðustu 35-37-39-43-46-48 l (= band á öxl), klippið frá.
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Fitjið upp 3-5-9-12-14-20 nýjar l í byrjun umf, prjónið 73-77-79-83-93-95 l af prjóni og fitjið upp 3-5-9-12-14-20 nýjar l í lok umf = 79-87-97-107-121-135 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4-4-4-5-5-5 cm – JAFNFRAMT eftir 3-3-3-4-4-4 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 næst síðustu l í hvorri hlið slétt saman frá réttu = 77-85-95-105-119-133 l. Þegar garðaprjóni er lokið – passið uppá að síðasta umf sé frá röngu, geymið stykkið.

BERUSTYKKI AÐ FRAMAN:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og berustykki að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur frá berustykki að framan og að aftan á sama hringprjón nr 3,5 = 154-170-190-210-238-266 l. Prjónið mynstur í hring eftir A.1 og fækkið JAFNFRAMT um 10-14-10-6-10-14 l jafnt yfir í 1. umf – LESIÐ ÚRTAKA-/ÚTAUKNING = 144-156-180-204-228-252 l og 12-13-15-17-19-21 mynstureiningar 12 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er mynstur prjónað í hring eftir A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-4-4-4-4 l jafnt yfir í 1. umf = 144-152-176-200-224-248 l. Eftir A.2 er prjónað mynstur í hring eftir A.3 (ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð = 18-19-22-25-28-31 mynstureining 8 l). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 180-190-220-225-252-279 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 4 umf garðaprjón þar sem auknar eru út 12-14-8-15-12-9 l jafnt yfir í 1. umf = 192-204-228-240-264-288 l.
Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið síðan mynstur í hring eftir A.4A (= 16-17-19-20-22-24 mynstureiningar 12 l). Þegar A.4A hefur verið prjónað 1-2-2-2-2-2 sinnum á hæðina er prjónað A.4B. Eftir A.4B eru 224-238-266-280-308-336 l í umf. Prjónið nú mynstur í hring eftir A.4C alls 1-3-3-3-4-4 sinnum á hæðina, prjónið síðan A.4D 1 sinni á hæðina = 256-272-304-320-352-384 l í umf.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 4 umf garðaprjón þar sem auknar eru út 3-5-3-5-3-1 l jafnt yfir í 1. umf = 259-277-307-325-355-385 l. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 2 umf sléttprjón.
Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.5A (= 7 l), endurtakið A.5B þar til 6 l eru eftir í umf (= 41-44-49-52-57-62 mynstureiningar 6 l) og endið á A.5C (= 6 l). Þegar A.5 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er skipti aftur yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 4 umf garðaprjón þar sem auknar eru út 5-11-5-11-5-11 l jafnt yfir í 1. umf = 264-288-312-336-360-396 l. Eftir garðaprjón er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5 og mynstur prjónað í hring eftir A.6 (= 22-24-26-28-30-33 mynstureiningar 12 l). Þegar A.6 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 286-312-338-364-390-429 l í umf. Endurtakið síðan A.X yfir A.6 þar til stykkið mælist ca 86-89-92-95-98-101 cm – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 4 cm til loka). Prjónið 2 umf garðaprjón og endið með mynstur eftir A.2 áður en felldar eru LAUST af allar l.
Kjóllinn mælist ca 90-93-96-99-102-105 cm frá öxl og niður (mælt flatt).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma á berustykki kant í kant í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.01.2016
FRAM- OG BAKSTYKKI: ...Prjónið 4 umf garðaprjón þar sem auknar eru út 5-11-5-11-5-11 l jafnt yfir í 1. umf = 264-288-312-336-360-396 l. Eftir garðaprjón er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5 og mynstur prjónað í hring eftir A.6..
Yfirfarið á vefsvæði: 29.08.2016
FRAM- OG BAKSTYKKI:..Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið síðan mynstur í hring eftir A.4A (= 16-17-19-20-22-24 mynstureiningar 12 l). Þegar A.4A hefur verið prjónað 1-2-2-2-2-2 sinnum á hæðina er prjónað A.4B. Eftir A.4B eru 224-238-266-280-308-336 l í umf. Prjónið nú mynstur í hring eftir A.4C alls 1-3-3-3-4-4 sinnum á hæðina, prjónið síðan A.4D 1 sinni á hæðina = 256-272-304-320-352-384 l í umf.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf (= gat)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf (= ekki gat)
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Ingrid Bach wrote:

Ich stricke gerade das Kleid Mallorca. Bei dem Muster A.6 sind 2 mal die Muster nach links verschoben in der 11 und 17 Reihe.Können sie mir bitte erklären, wie diese Reihen gestrickt werden? Vielen Dank für die Hilfe. MfG Ingrid Bach

21.02.2024 - 23:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bach, am Anfang dieser beiden Runden haben Sei die 2 ersten Maschen ab, ohne sie zu stricken; dann stricken Sie das Diagram wie gezeichnet: die letzte Masche stricken Sie zusammen mit den 2 ersten Maschen vom nächsten Rapport und am Ende der Runde mit den 2 ersten Maschen der Runden. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2024 - 09:17

country flag Nathalie Lampe wrote:

Bonjour, J'aimerais réaliser le modèle Mallorca mais je n'ai jamais tricoter en rond, pourriez vous m'aider pour réaliser ce magnifique modèle avec de simples aiguilles, Merci d'avance.

17.07.2023 - 10:09

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, regardez la lecon DROPS ICI. Bon tricot!

17.07.2023 - 11:40

country flag Katrin wrote:

Hallo, ich finde nicht wieviel gramm bzw, was für eine Lauflänge benötigt wird. Gibt es dazu irgndwo Angaben? Vielen Dank für die Hilfe.

22.04.2023 - 20:58

DROPS Design answered:

Liebe Katrin, Garnmengen finden Sie für jede Größe in dem oberen Teil der Seite (Kopfzeilen), so brauchen Sie in S 650 g DROPS Muskat/50 g das Knäuel = 13 Knäuel in S. Viel Spaß beim stricken!

24.04.2023 - 09:59

country flag Cinzia wrote:

Buongiorno,vorrei un chiarimento per quanto riguarda la riga 11 del diagramma A6:come devo iniziare il giro, in quanto è rientrata di due maglie, ma se comincio secondo il diagramma con una maglia dritta lo schema non viene corretto. Grazie per il vostro aiuto Cinzia

03.01.2023 - 23:15

DROPS Design answered:

Buonasera Cinzia, deve iniziare il giro 3 maglie dopo. Buon lavoro!

05.01.2023 - 23:11

country flag Ingeborg wrote:

Hei! Jeg ønsker å hekle denne som en maxikjole. Jeg er normalt en litt stor 36 og er 170 cm høy. Hvilken størrelse anbefaler dere og hvilken lengde anbefaler dere for å få kjolen ankellang? På forhånd tusen takk for hjelpen!

18.08.2022 - 09:47

DROPS Design answered:

Hei Ingeborg. Om du har en kjole fra før som du liker godt og som er ankellang, anbefaler jeg deg å måle den og sammenligne den med målskissen til denne kjolen. Da vil du finne den str. som vil passe deg. Det er litt tyngde i garnet DROPS Muskat og mulig den vil sige bittelitt, men siden kjolen er strikket ovenfra og ned kan prøve den underveis og avslutte når du syns lengden er der du vil ha den, minus et par cm. mvh DROPS Design

22.08.2022 - 10:41

country flag Cornelia Carlowitz wrote:

Hi, der Mustersatz A6, ist an 2 Stellen verschoben - es fehlen am Anfang der Zeile, 2 Zeichen und am Ende der Zeile, sind 2 Zeichen zu viel. Wie wird es in den beiden Zeilen gestrickt?

10.07.2022 - 00:16

DROPS Design answered:

Liebe Frau Carlowitz, am Anfang dieser Runde heben Sie die 2 ersten Maschen ab - am Ende vom jeden Rapport stricken Sie die letzte Masche mit der 2 ersten maschen vom nächsten Rapport zusammen. Der Umschlag wird dann die 1. Masche der nächsten Runde vom nächsten Rapport sein. Viel Spaß beim stricken!

11.07.2022 - 08:31

country flag Arleen wrote:

Jeg er small i alle andre klær, lager denne i small og strikkefasthet stemmer med pinne nr 3. Har strikker ene bærestykke bak men den virker foreløpig alt for liten til meg. Så lurer på hvilke str jeg må velge nå. Er den veldig liten i str?

02.01.2022 - 12:07

DROPS Design answered:

Hei Arleen, Det er en målskisse på bunnen av oppskriften som gir alle mål til hver størrelse. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

03.01.2022 - 07:49

country flag Annelise Dahlbæk wrote:

På 4. sidste linje i opskriften står der: Videre gentages A.X over A.6 til arb måler ca 86-89-92-95-98-101 cm – evt til ønsket længde (der er ca 4 cm tilbage før færdig mål). Hvad er A.X?

28.11.2021 - 17:58

DROPS Design answered:

Hej Annelise. A.X är de sista 4 raderna på diagram A.6. Mvh DROPS Design

29.11.2021 - 09:05

country flag Joan Fisher wrote:

Hi: Im working on the mallorca dress (169-25). For Chart A3 the instructions say at the end of the A3 chart, in size medicum you will have 180 stitches. This is an increase of 28 stitches from the end of chart A2. I don't see where in A3 you are increasing the number of stitches. Please contact me about this at the email provided.. Thanks.

30.08.2021 - 02:37

DROPS Design answered:

Dear Joan, in row 21 there are 1 (XL + XXL+XXXL) (2) (S + M +L) yarn overs, that should be knitted twisted on the next row. Happy Stitching!

30.08.2021 - 03:15

country flag Katharina Prüne wrote:

Guten Abend! Ich würde dieses Kleid gern mit der Wolle Drops Safran stricken. Ist das möglich, ohne dass ich Probleme mit den Größenangaben bekomme? Liebe Grüße

16.04.2021 - 23:23

DROPS Design answered:

Liebe Katharina, das angegebene Garn DROPS Muskat gehört zur Garngruppe B, DROPS Safran jedoch zur Garngruppe A. Daher lassen sich die Garne nicht ohne weiteres tauschen. Es wäre zwar trotzdem möglich, wenn Sie die angegebene Maschenprobe einhalten - Sie müssten dann eine etwas dickere Nadel nehmen und anhand eines Probelappens ausprobieren, mit welcher Nadel Sie die Maschenprobe erhalten. Mit einem dünneren Garn wie Safran ergibt sich dann jedoch auch ein lockereres Maschenbild und das Kleid fällt eventuell dadurch etwas anders. Empfehlenswerter wäre es, bei Muskat (oder einem anderen Garn der Gruppe B) zu bleiben - Muskat ist auch eine tolle Baumwollqualität. :-)

18.04.2021 - 22:21