Marja skrifaði:
Zijn de patroonafmetingen met boordjes al in begrepen? Of moet je bijvoorbeeld voor de halsafmeting nog bijtellen indien ik geen boordje wens te breien? Dank voor uw antwoord. Groeten
01.03.2018 - 22:53DROPS Design svaraði:
Hoi Marja, De afmetingen in de tekening onderaan zijn altijd inclusief, boordjes, halsranden, manchetten, etc.
04.03.2018 - 17:18
Chiara skrifaði:
Volevo chiedere se le maniche si possono lavorare in tondo..e nel caso come fare per gli aumenti Grazie mille
02.01.2017 - 13:14DROPS Design svaraði:
Buongiorno Chiara, può lavorare le maniche in tondo eliminando le maglie di vivagno e lavorando come indicato nel modello (gli aumenti li farà all'inizio e alla fine del giro). Buon lavoro!
02.01.2017 - 13:43
Dayen skrifaði:
Voor het patroon staan de strepen met de kleuren omschreven. In eerste instantie wordt er gesproken over cm maar daarna staat er alleen een getal. Zijn dit ook het aantal cm? Dan kom je namelijk niet uit met de totale lengte van je patroon. Daarnaast ben ik benieuwd welke techniek er wordt gebruikt met het wisselen van kleuren. Graag hoor ik van jullie zodat ik snel aan het patroon kan beginnen.
21.03.2016 - 11:41DROPS Design svaraði:
Hoi Dayen. Je hebt gelijk. Er mist nld achter de strepen. De eerste 2 zijn cm's - de rest zijn naalden. Ik pas het aan zodat je verder kan. Bedankt voor het melden! Wij gebruiken geen bepaald techniek voor bij het wisselen van kleur, wij hebben 3 verschillende technieken te zien in de video's, klik hier en ga naar W in index voor Wisselen van kleur en kies wat je voorkeur hebt.
23.03.2016 - 14:23
May skrifaði:
Here's my next project but solid or ombre, not striped. Thank you! I can't have mohair, wool or alpaca here in northwest Florida. I'm a handspinner and when my friend sent me a huge box of alpaca to spin, despite moth flake packets, the moths got to it like they got to my camel coat years ago. Almost immediately. So my question is - what weight synthetic yarn should I use and approximate needle size. Thank you again for these lovely patterns.
18.03.2016 - 21:02DROPS Design svaraði:
Dear May, We are able to provide free patterns thanks to our yarns sold throughout the world. You will therefore understand that we can only recomand you to contact our DROPS Store in USA for any further help & assistance. Thank you for your comprehension.
21.03.2016 - 09:10
Houlmann skrifaði:
Un top ..... à porter par minces et rondes à l'envie !!
21.01.2016 - 13:45
Michelle Winther skrifaði:
Till lätta fria dagar
13.12.2015 - 14:37
Lucia Holtappels skrifaði:
Ein richtiges Wohlfühlstück
13.12.2015 - 10:55
Connie Nordahl skrifaði:
Glæder mig til at komme igang
12.12.2015 - 23:16
Connie Petersen skrifaði:
Jeg glæder mig til at komme igang med en af modellerne
12.12.2015 - 23:12
Anne skrifaði:
Stricken ohne groß nachdenken, danach anziehen und wohlfühlen.
11.12.2015 - 09:13
Laid Back Afternoon#laidbackafternoonsweater |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Paris og DROPS Bomull-Lin með röndum og klauf í hliðum. Stærð S- XXXL
DROPS 170-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR BAKSTYKKI OG FRAMSTYKKI: 1. rönd: 15-15-16-16-17-17 cm með Bomull-Lin ljós beige. 2. rönd: 6-7-7-8-8-9 cm með Bomull-Lin beige. 3. rönd: 2 umf í allar stærði með Bomull-Lin brúnn. 4. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige. 5. rönd: 6 umf í allar stærðir með Paris apríkósa. 6. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin ljós beige. 7. rönd: 7-7-8-8-9-9 cm með Paris apríkósa. 8. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall. 9. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa. 10. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall. 11. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa. 12. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall. 13. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin brúnn. 14. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris apríkósa. 15. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin ljós beige. 16. rönd: 4 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige. 17. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall. 18. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa. 19. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige. 20. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin brúnn. 21. rönd: 6-7-7-8-8-9 cm með Bomull-Lin beige. 22. rönd: Prjónið með Bomull Lin ljós beige til loka. RENDUR ERMI: 1. rönd: Prjónið 12 cm með Bomull-Lin ljós beige. 2. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin brúnn. 3. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa. 4. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin ljós beige. 5. rönd: 4 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige. 6. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall. 7. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa. 8. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige. 9. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin brúnn. 10. rönd: 5 cm í allar stærðir með Bomull-Lin beige. 11. rönd: Prjónið með Bomull-Lin ljós beige til loka. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 l á undan l í garðaprjóni við hálsmál þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan l í garðaprjóni, prjónið 2 l slétt saman. Fækkið um 1 l á eftir l í garðaprjóni frá hálsmáli þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í sléttprjóni frá réttu, en þegar gengið er frá í lokin snýr rangan út. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 75-81-87-95-103-113 l á hringprjóna nr 6 með Bomull-Lin með litnum ljós beige. Haldið síðan áfram með RENDUR BAKSTYKKI OG FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 2 l garðaprjón, sléttprjón þar til 2 l eru eftir, 2 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 21 cm í allar stærðir er fitjuð upp 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umf = 77-83-89-97-105-115 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með 2 umf til viðbótar í sléttprjóni og garðaprjóni yfir síðustu 3 l í hvorri hlið (meðtaldar kantlykkjur) á stykki. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm fellið af 1-2-2-2-2-3 l fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umf = 75-79-85-93-101-109 l. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm prjónið þannig: Prjónið fyrstu 24-26-28-32-35-39 l eins og áður, prjónið garðaprjón yfir næstu 27-27-29-29-31-31 l, haldið áfram eins og áður yfir þær 24-26-28-32-35-39 l sem eftir eru. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir miðju 27-27-29-29-31-31 l prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan l í garðaprjóni, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA, prjónið 2 l garðaprjón, fellið af næstu 23-23-25-25-27-27 l fyrir hálsmáli, prjónið 2 l garðaprjón, fækkið um 1 l, prjónið þær l sem eftir eru á prjóni eins og áður = 25-27-29-33-36-40 l eftir fyrir öxl. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Snúið við og prjónið fram og til baka í sléttprjóni 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 2 l garðaprjón við hálsmál. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjóni eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 55-57-58-60-61-63 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 29-31-34-38-41-45 l, prjónið síðan garðaprjón yfir næstu 17-17-17-17-19-19 l, haldið áfram yfir þær 29-31-34-38-41-45 l sem eftir eru. Þegar prjónaðar hafa verið umf garðaprjón yfir miðju 17-17-17-17-19-19 l eru næstu umf prjónaðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan l með garðaprjóni, fækkið um 1 l, prjónið 2 l garðaprjón, fellið af næstu 13-13-13-13-15-15 l fyrir háls, prjónið 2 l garðaprjón, fækkið um 1 l, prjónið þær l sem eftir eru eins og áður. Nú eru 30-32-35-39-42-46 l fyrir öxl. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka yfir öxl í sléttprjóni, 2 l garðaprjón við hálsmál og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg og endurtakið úrtöku í hverri umf frá hálsmáli 5-5-6-6-6-6 sinnum til viðbótar = 25-27-29-33-36-40 l fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 32-33-36-37-38-39 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 6 með Bomull-Lin með litnum ljós beige. Haldið síðan áfram með RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 11-11-11-10-10-6 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili 8-9-9-10-11-12 sinnum til viðbótar = 50-53-56-59-62-65 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 47-47-46-44-41-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Gengið er frá peysunni þannig að rangan snúi út. Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í á fram- og bakstykki og saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður að klauf á hvorri hlið (= klauf = 21 cm). Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #laidbackafternoonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.