Sophia skrifaði:
EXCELLENT !!!!!!can we have the pattern?
03.01.2016 - 13:13
Schwetta skrifaði:
Superbe modèle ! Vivement les explications que je puisse commander la liane et m'y mettre
02.01.2016 - 23:18
Tracey skrifaði:
How soon before pattern is available? Would love to make it. Just stunning dye.
26.12.2015 - 13:03
Kornelia Gröstlinger skrifaði:
Mein Traummodell,hoffe Anleitung kommt bald. Den Farbverlauf finde ich sehr gelungen.
25.12.2015 - 09:18
Mette skrifaði:
Den er så fin, både i farve og stil. Dejligt med noget der er tidssvarende.
14.12.2015 - 00:01
Mira skrifaði:
Wunderschön mit dem Farbverlauf!
13.12.2015 - 21:23
Margareth Zimmergren skrifaði:
Super snygg modellen modern och mönster var lite orginellt
12.12.2015 - 14:56
Leena skrifaði:
Cute! Lovely dyeing.
12.12.2015 - 11:12
DI MORO-BEN LARBI skrifaði:
Superbe l'aspect tie and dye!
10.12.2015 - 18:17
Emilia skrifaði:
Fantastisk färggradering och mönster, väldigt vacker!
10.12.2015 - 18:09
Shades of Sky#shadesofskyjacket |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð ferhyrnd peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk með öldumynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS 168-2 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umf frá séð frá réttu! RENDUR: Allar rendur eru prjónaðar með 1 þræði Alpaca + 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir) þannig: RÖND 1: Prjónaðar eru 6 mynstureiningar af A.1b og A.2b á hæðina með 1 þræði Alpaca natur + 2 þráðum Kid-Silk natur. Prjónið síðan 2 mynstureiningar á hæðina af mynstri A.1b og A.2b í hverja rönd að neðan. RÖND 2: 1 þráður Alpaca natur + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár + 1 þráður Kid-Silk natur. RÖND 3: 1 þráður Alpaca natur + 2 þræðir Kid-Silk ljós gráblár. RÖND 4: 1 þráður Alpaca natur + 1 þráður Kid-Silk gráblár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár. RÖND 5: 1 þráður Alpaca natur + 2 þræðir Kid-Silk gráblár RÖND 6: 1 þráður Alpaca ljós blár + 1 þráður Kid-Silk gráblár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár. RÖND 7: 1 þráður Alpaca ljós blár + 2 þræðir Kid-Silk gráblár. Þegar allar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka á hæðina er haldið áfram með rönd 7 til loka! ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Öll peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna með 1 þræði Alpaca + 2 þræði Kid-Silk (= 3 þræðir). PEYSA: Fitjið laust upp 215-221-229-239-245 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði Alpaca í litnum natur og 2 þráðum Kid-Silk í litnum natur (= 3 þræðir). Prjónið 1. umf þannig (= frá réttu): 3-3-4-6-6 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 19 l í fyrstu umf) 4 sinnum á breiddina, A.2 (finnið mynstur fyrir rétta stærð!) 3 sinnum á breiddina, A.1 4 sinnum á breiddina, 3-3-4-6-6 l garðaprjón. Þegar 1. umf hefur verið prjónuð til loka eru 193-199-207-217-223 l á prjóni. Prjónið afgang af umf í A.1a og A.2 a. Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan (byrjið á RÖND 1) og mynstri þannig: 3 l garðaprjón, 0-0-1-3-3 l sléttprjón, A.1 b (= 17 l) 4 sinnum á breiddina, A.2b (finnið mynstur fyrir rétta stærð!) 3 sinnum á breiddina, A.1b 4 sinnum á breiddina, 0-0-1-3-3 l sléttprjón, 3 l með garðaprjóni. ATH: Í 6. Umf í A.1b eru prjónaðar 0-0-1-3-3 l innan við 3 l garðaprjón á hvorri hlið brugðnar! Endurtakið A.1b og A.2b á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-17-19-20-21 cm, passið að næsta umf sé frá réttu, prjónið nú þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 71-71-72-74-74 l, fitjið upp 1 l = 72-72-73-75-75 l fyrir vinstra framstykki. Setjið næstu 122-128-135-143-149 l á prjóni á þráð án þess að prjóna þær fyrst. VINSTRA FRAMSTYKKI: ATH: Nýjar l sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með mynstri og röndum eins og áður yfir 72-72-73-75-75 l þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21 cm frá nýju l sem fitjaðar voru upp (= handvegur) – PASSIÐ AÐ NÆSTA UMF SÉ PRJÓNUÐ FRÁ RÖNGU! Í næstu umf frá röngu er felld af fyrsta l (= l sem fitjuð var upp) = 71-71-72-74-73 l. Prjónið út umf. Klippið frá. Setjið l á þráð. BAKSTYKKI: Fitjið upp 1 nýja l á prjóninn, prjónið síðan fyrstu 51-57-63-69-75 l af þræði inn á prjóninn frá réttu, fitjið upp 1 l = 53-59-65-71-77 l fyrir bakstykki. (Nú eru 71-71-72-74-74 l eftir á þræði fyrir hægra framstykki). Haldið nú áfram fram og til baka með mynstri og röndum yfir l fyrir bakstykki. ATH: Síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21 cm frá nýju l sem fitjaðar voru upp (= handvegur) – STILLIÐ MYNSTUR AF EFTIR VINSTRA FRAMSTYKKI, NEMA ENDIÐ 2 UMF FYRR Í MYNSTRI prjónið þannig: Í 2 næstu umf eru felld af síðasta l í hvorri hlið (= l sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið á bakstykki) = 51-57-63-69-75 l. Klippið frá. Setjið allar l frá bakstykki á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 1 nýja l á hringprjóna og prjónið inn þær 71-71-72-74-74 l af þræði á hringprjóna, frá réttu = 72-72-73-75-75 l fyrir hægra framstykki. Snúið við og prjónið mynstur til baka frá röngu. ATH: Nýjar l sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur og rendur eins og áður þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21 cm frá þar sem nýjar l voru fitjaðar upp (= handvegur) – STILLIÐ AF EFTIR MYNSTRI Á VINSTRA FRAMSTYKKI, NEMA ENDIÐ 2 UMF FYRR Í MYNSTRI. Í næstu umf frá réttu er felld af fyrsta l (= l sem fitjuð var upp) = 71-71-72-74-74 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Klippið frá. Nú eru framstykkin og bakstykkið prjónað saman þannig: ATH: Mynstur og rendur halda áfram eins og áður með 3 l garðaprjón í hvorri hið! Byrjið frá réttu og prjónið 71-71-72-74-74 l frá vinstra framstykki, prjónið síðan 51-57-63-69-75 l frá bakstykki inn á prjóninn og að lokum eru prjónaðar 71-71-72-74-74 l af hægra framstykki inn á prjóninn = 193-199-207-217-223 l. Haldið áfram fram og til baka með mynstri og röndum þar til allar 7 rendurnar hafa verið prjónaðar til loka á hæðina. Stykkið mælist nú ca 64 cm í öllum stærðum. Haldið nú áfram með rönd 7 til loka. Þegar stykkið mælist 72-76-78-80-82 cm – stillið af eftir eina heila mynstureiningu af A.1b og A.2b á hæðina – prjónið A.1c yfir A.1b og A.2 c (finnið mynstur fyrir rétta stærð) yfir A.2b. Þegar allt A.1c og A.2c hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 215-221-229-239-245 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og fellið LAUST AF. Klippið frá og festið enda. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður, í röndum. ATH: Byrjað er á rönd 2! Fitjið upp 49-53-55-59-61 l með 1 þræði Alpaca í litnum natur + 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós gráblár + 1 þræði Kid-Silk natur (= 3 þræðir) á hringprjóna nr 6. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf (= rétta) er prjónað mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 15-17-18-20-21 l sléttprjón, A.1b (= 17 l), 15-17-18-20-21 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 4½-4-3½-3-3 cm millibili 10-11-12-13-13 sinnum til viðbótar = 27-29-29-31-33 l. Þegar stykkið mælist alls 53-53-51-51-50 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið LAUST af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Frágangurinn er gerður með 1 þræði Alpaca í litnum natur og 1 þræði Kid-Silk í litnum gráblár (= 2 þræðir). Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og í l eina og eina í uppfitjunarkant á ermi. Saumið sauma undir ermum innan við kantlykkju í garðaprjóni. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #shadesofskyjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.