Patricia wrote:
Bonjour, je pense qu'il y a un problème d'explication pour les manches les dimensions sont à l'envers de la plus grande taille à la plus petite en principe c'est l'inverse et d'autres parts si la manche doit faire 50 cm pour une taille XXXl il n'est pas possible de faire 7 augmentations tous les 13 cm cela ferait 91 cm cordialement
17.01.2019 - 18:50DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, les manches sont plus courtes dans les grandes tailles car les épaules et l'encolure sont plus larges. Ainsi, vous augmentez à 7 cm tous les 4,5 cm = les augmentations sont terminées à 34 cm de hauteur totale. Vous pouvez volontiers modifier la longueur des manches si vous le souhaitez en vous basant sur les mesures du schéma et à votre convenance. Bon tricot!
18.01.2019 - 08:22Wauthier Fabienne wrote:
Je voudrai faire ce modèle 168-18 dans les coloris gris, quelle laines dois-je prendre pour avoir un beau dégradé ?
24.11.2018 - 14:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme Wauthier, pour toute aide dans le choix des couleurs, contactez votre magasin DROPS (même par mail ou téléphone), il saura vous aider en fonction de ce que vous recherchez comme effet. Bon tricot!
26.11.2018 - 08:22Anna-Karin Allansson wrote:
Ska det bara ökas 3 ggr på ärmen i storlek small?
04.09.2016 - 21:51Sandra wrote:
Hallo, bij het insteken lukt het niet de 1 kant wel maar dan zit ik in de knoop de rechtse kant en de kraag kunt u mij helpen
03.04.2016 - 09:41DROPS Design answered:
Hoi Sandra. Bedoel je steken opnemen voor de halsrand? Je kan ook deze video bekijken:
06.04.2016 - 13:55Dorothee Häußge wrote:
Sehr schön! Ich würde es early morningnennen
31.01.2016 - 07:51Towa Jordano wrote:
Väldigt snygg färgkombination. En kofta för året runt. Klassisk stil.
13.12.2015 - 05:15
Sailing Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk með klauf í hliðum og stroffi. Stærð S-XXXL
DROPS 168-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. TVEIR ÞRÆÐIR: Notið þráðinn innan úr og utan með dokkunni. RENDUR: Allar rendur eru prjónaðar með 1 þræði Alpaca + 2 þráðum Kid-silk (= 3 þræðir) – LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR! RÖND 1: 1 þráður Alpaca ljós blár + 2 þræðir Kid-Silk gráblár. RÖND 2: 1 þráður Alpaca ljós blár + 1 þráður Kid-Silk gráblár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár. RÖND 3: 1 þráður Aplaca ljós blár + 2 þræðir Kid-Silk ljós gráblár. RÖND 4: 1 þráður Alpaca ljós blár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár + 1 þráður Kid-Silk natur. RÖND 5: 1 þráður Alpaca hvítur + 1 þráður Kid-Silk gráblár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár. RÖND 6: 1 þráður Alpaca ljós blár + 1 þráður Kid-Silki ljós gráblár + 1 þráður Kid-Silk natur. RÖND 7: 1 þráður Alpaca hvítur + 1 þráður Kid-Silk gráblár + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár. RÖND 8: 1 þráður Alpaca hvítur + 2 þræðir Kid-Silk gráblár. RÖND 9: 1 þráður Alpaca hvítur + 1 þráður Kid-Silk ljós gráblár + 1 þráður Kid-Silk natur. RÖND 10: 1 þráður Alpaca hvítur + 2 þræðir Kid-Silk natur. ATH: Þessi rönd er prjónuð til loka. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að sleppa við göt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm. STÆRÐ M: 20, 28, 36, 43, 50 og 57 cm. STÆRÐ L: 20, 28, 36, 44, 51 og 59 cm. STÆRÐ XL: 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm. STÆRÐ XXL: 21, 29, 37, 45, 53 og 61 cm. STÆRÐ XXXL: 23, 31, 39, 47, 55 og 63 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hlutum og saumað saman í lokin. Allt stykkið er prjónað með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR! BAKSTYKKI: Fitjið upp 64-70-74-82-90-98 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði í litnum ljós blár Alpaca og 2 þráðum í litnum gráblár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7. Í næstu umf (= rétta) haldið áfram með RÖND 1 – sjá útskýringu að ofan, og prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-9-9-9-9-10 cm prjónið RÖND 2. Þegar stykkið mælist 16-17-17-18-18-19 cm prjónið RÖND 3. Þegar stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum er fitjuð upp 1 ný l í lok 2 næstu umf (merkir klauf) = 66-72-76-84-92-100 l. Haldið síðan áfram með 4 umf sléttprjóni innan við 4 l garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm prjónið 6 umf með RÖND 4, 2 umf með RÖND 5 og 2 umf með RÖND 6. Prjónið síðan RÖND 7. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm prjónið RÖND 8. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm prjónið RÖND 9. Þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm prjónið RÖND 10 og í byrjun á næstu 2 l eru felldar af 3-3-2-2-2-2 l fyrir handveg, JAFNFRAMT er fækkað um 0-0-0-2-1-3 l jafnt yfir l í sléttprjóni (þetta er gert til þess að stroffið efst á peysunni passi) = 60-66-72-78-87-93 l. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, 1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff til loka. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fellið af miðju 24-24-24-24-27-27 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l = 17-20-23-26-29-32 l eftir á öxl. Síðasta l við hálsmál er prjónuð með garðaprjóni (þ.e.a.s. það er 1 l sl innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hálsi). Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 36-39-41-45-49-53 l á hringprjóna 6 með 1 þræði í litnum ljós blár Alpaca og 2 þráðum í litnum gráblár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7. Í næstu umf (= rétta) er haldið áfram með RÖND 1 – sjá útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 29-32-34-38-42-46 l, 3 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 8-9-9-9-9-10 cm prjónið RÖND 2. Þegar stykkið mælist 16-17-17-18-18-19 cm prjónið RÖND 3. Þegar stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum er fitjuð upp 1 ný l í lok umf (merkir klauf) = 37-40-42-46-50-54 l. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Haldið síðan áfram með 4 umf sléttprjón innan við 4 kantlykkjur í garðaprjóni og 4 l garðaprjón í hlið. Prjónið síðan áfram eins og áður nema nú er einungis 1 kantlykkja í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm prjónið 6 umf með RÖND 4, 2 umf með RÖND 5 og 2 umf með RÖND 6. Síðan er prjónuð RÖND 7. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm prjónið RÖND 8. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm prjónið RÖND 9. Þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm prjónið RÖND 10 til loka og í byrjun á næstu umf frá röngu eru felldar af 3-3-2-2-2-2 l fyrir handveg, JAFNFRAMT er fækkað um 1-1-1-2-0-1 l jafnt yfir l í sléttprjóni (þetta er gert til að stroffið efst á peysunni passi) = 33-36-39-42-48-51 l. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l, 1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff til loka. Þegar stykkið mælist 57-59-60-62-63-65 cm setjið fyrstu 9-9-9-9-12-12 l á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í hverri umf frá hálsmáli þannig: 3 l 1 sinni,2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 17-20-23-26-29-32 l eftir á öxl. Síðast l við hálsmál er prjónuð í garðaprjóni (þ.e.a.s. það er 1 l sl innan við 1 kantlykkju í garðaprjón í hálsmáli). Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Passið að affellingarkanturinn verði ekki of stífur! VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna í röndum. Fitjið upp 30-30-30-33-33-36 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði í litnum ljós blár Alpaca og 2 þráðum í litnum gráblár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umf br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umf er prjónuð þannig (= frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 l sl * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7 cm í öllum stærðum er prjónuð RÖND 2 og aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 13-7½-6-6-4½-4½ cm millibili 3-5-6-6-7-7 sinnum til viðbótar = 38-42-44-47-49-52 l. JAFNFRAMT eru prjónaðar rendur þannig: Þegar stykkið mælist 13-13-13-13-13-12 cm prjónið RÖND 3. Þegar stykkið mælist 19-19-19-19-18-17 cm prjónið 6 umf með RÖND 4, 2 umf með RÖND 5 og 2 umf með RÖND 6. Síðan er prjónuð RÖND 7. Þegar stykkið mælist 32-32-32-31-30-29 cm er prjónuð RÖND 8. Þegar stykkið mælist 38-38-37-36-35-34 cm er prjónuð RÖND 9. Þegar stykkið mælist 44-43-42-41-39-39 cm er prjónuð RÖND 10. Fellið af þegar ermin mælist 50-48-47-46-43-42 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Frágangurinn er með hvítur Alpaca. Saumið axlasaumana með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið sauma undir erma og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni niður að klauf. Saumið tölur í vinstri kant að framan. HÁLSMÁL: Hálsmálið er prjónað með 1 þræði í litnum hvítur Alpaca + 2 þráðum í litnum natur Kid-Silk (= 3 þræðir). Takið upp l frá réttu ca 70-80 l í kringum op í hálsmáli meðtaldar l af þræði á hringprjóna nr 6. Prjónið kant sem rúllast upp með því að prjóna 3 umf sléttprjón. Fellið af með sl frá réttu. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Eva Nielsen wrote:
Kan jeg strikke den i 1 tråd air og 1 tråd kid Silk
16.09.2018 - 21:23