M. Lorenz skrifaði:
Schönes Sommertop. Gibt es ein Photo von der Rückseite? Das würde das Verstehen der Anleitung erleichtern.
27.01.2016 - 16:40
Nita Sands skrifaði:
Great color. love this
22.12.2015 - 09:09Aurora Fernandez Valdivielso skrifaði:
Soy Argentina y me gusta ESTE MODELO
12.12.2015 - 21:47
Maria Monvald Sjödin skrifaði:
En trevlig tunika i vacker färg.
12.12.2015 - 12:13
Wynona Ekesryd skrifaði:
Äntligen en snygg A-linjeformat överdel!
12.12.2015 - 10:39
Leonoor skrifaði:
Beautiful colour
11.12.2015 - 06:07
Sanna Pitkämäki skrifaði:
Ihanan kesäinen ja väljä malli.
10.12.2015 - 15:41
Birgit Holmboe skrifaði:
Det var svært at vælge i år, flot udvalg 😀
10.12.2015 - 12:48
Sunkissed#sunkissedtop |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Safran með öldumynstri, garðaprjóni og tölukanti fyrir miðju aftan á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 170-6 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l þegar 2 l eru eftir á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á vinstri kanti þ.e.a.s. í byrjun umf frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 35, 41, 47 og 53 cm. STÆRÐ M: 35, 40, 45, 50 og 55 cm. STÆRÐ L: 35, 41, 46, 51 og 56 cm. STÆRÐ XL: 35, 41, 47, 53 og 58 cm. STÆRÐ XXL: 35, 42, 48, 54 og 60 cm. STÆRÐ XXXL: 35, 41, 47, 52, 57 og 62 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, með byrjun frá miðju að aftan. TOPPUR: Fitjið upp 300-340-360-400-440-480 l á hringprjóna nr 3 með Safran. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið A.1 (= 20 l) alls 15-17-18-20-22-24 á breidd. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 270-306-324-360-396-432 l á prjóni. Prjónið A.2 (= 18 l) yfir A.1. Endurtakið A.2 alls 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.3 (= 18 l) yfir A.2. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 180-204-216-240-264-288 l í umf. Prjónið síðan A.4 (= 12 l) yfir A.3. Þegar A.4 hefur verið prjónað alls 6 sinnum á hæðina mælist stykkið ca 34 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. BERUSTYKKI: Prjónið 1 umf slétt og fitjið upp 5 l í lok umf = 185-209-221-245-269-293 l. Prjónið síðan stykkið fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið 50-56-59-65-71-77 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan), setjið 1 prjónamerki í stykkið, prjónið 90-102-108-120-132-144 l (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í stykkið og prjónið 45-51-54-60-66-72 l. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með 4-8-5-5-3-0 cm millibili 2-1-2-2-4-0 sinnum til viðbótar = 197-217-233-257-289-297 l. Þegar stykkið mælist alls 46-47-48-49-49-50 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 39-41-43-47-52-54 l garðaprjón, fellið af næstu 18-24-28-32-38-38 l (= handvegur), prjónið garðaprjón yfir næstu 78-82-86-94-104-108 (= framstykki), fellið af næstu 18-24-28-32-38-38 l (= handvegur), prjónið garðaprjón yfir síðustu 44-46-48-52-57-59 l (= 161-169-177-193-213-221 l). Snúið við og prjónið garðaprjón til baka frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 44-46-48-52-57-59 l, setjið 1 prjónamerki, fitjið upp 76-82-86-94-102-106 l fyrir bandi á öxl, setjið 1 prjónamerki, prjónið næstu 78-82-86-94-104-108 l (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, fitjið upp 76-82-86-94-102-106 l fyrir bandi á öxl, setjið 1 prjónamerki, prjónið síðustu 39-41-43-47-52-54 l = 313-333-349-381-417-433 l og 4 prjónamerki í stykkið. Í næstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 19-21-21-25-28-30 sinnum til viðbótar = 38-38-42-42-46-46 l á framstykki, 36-38-42-42-44-44 l á hvoru bandi á öxl, 19-19-21-21-23-23 l á vinstra bakstykki og 24-24-26-26-28-28 l á hægra bakstykki = alls 153-157-173-173-185-185 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Leggið 5 kantlykkjur fyrir tölur (= 5 nýjar l á berustykki), fyrir aftan vinstra bakstykki og festið fallega frá röngu (þ.e.a.s. kantur fyrir tölur á hægra bakstykki liggur undir vinstra bakstykki). Saumið tölur í hægra bakstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunkissedtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.