Cornelia skrifaði:
Gibt es ein Tutorial zum Magischen Ring? Ich verstehe die Erklärung nicht. 🤔
29.03.2019 - 20:58DROPS Design svaraði:
Liebe Cornelia, dieses Video zeigt, wie man die Maschen anschlägt. Viel Spaß beim stricken!
01.04.2019 - 11:38
Trude Grimeland skrifaði:
Lager dere video til magisk sirkel? Jeg får det ikke til
24.10.2018 - 19:13
Baloub skrifaði:
Bonjour, Très joli motif... En le realisant je me suis rendue compte d'une inversion dans le diagramme A2 : la 2ème maille de gauche est inversée entre le rang 9 et 10 (en partant du haut). Merci pour tout vos magnifiques patrons !
08.09.2018 - 18:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baloub et merci pour votre retour. Nos stylistes vont vérifier le diagramme et faire la correction nécessaire. Bon tricot!
11.09.2018 - 09:52
Kristina Ekstrand Dahlberg skrifaði:
Jag har kört fast på strumpa nr 2. Har stickat färdigt hälen och integrerat A6 o A7. Har 64 maskor kvar. (Storl. 41) När jag nu ska fortsätta mönster uppåt skaftet, får jag det till 70 maskor. Vad är det jag missar? Hade inget problemet strumpa nr1.
19.11.2017 - 14:03DROPS Design svaraði:
Hej, båda strumporna stickas på samma sätt. Svårt att säga vad som blivit fel, men kontrollera att du inte har gjort för många minskningar på hälen.
20.11.2017 - 14:14
Florence skrifaði:
Er zit een fout in de volgorde van de diagrammen nadat je diagram A1 gebreid hebt. Er staat: brei de volgende naald als volgt: A2, dan A3, dan A4, dan A5. Dit moet zijn: A3, dan A2, dan A5, dan A4.
17.02.2017 - 17:48
Gunilla Romanus skrifaði:
Jag hittar inte instruktionsvideo för Magisk Cirkel.
27.05.2016 - 23:27DROPS Design svaraði:
Hej Gunilla, det sätter vi på önskelistan!
10.06.2016 - 09:40
Birgit skrifaði:
Ich habe einen Fehler im Diagramm A2 entdeckt. 2. Reihe von links 17. Reihe von unten darf kein Punkt sein , 18. reihe muß ein punkt sein.
01.02.2016 - 16:51DROPS Design svaraði:
Ja, Sie haben Recht, der Punkt ist um 1 Reihe nach unten gerutscht, ich leite das an die Designerinnen weiter, damit es behoben wird, vielen Dank für den Hinweis!
07.02.2016 - 13:30
Marie33 skrifaði:
Bonjour ces chaussettes sont superbes. Je n'ai pas suffisamment de compétences pour les réaliser, mais elles sont vraiment très belles. Bravo au designer !
17.12.2015 - 19:50
Turid Johansen skrifaði:
Endelig et par som ikke bare har striper på undersiden- kjempeflott - gleder meg til denne. 😃
14.12.2015 - 18:50
Paula skrifaði:
Ssååå mysiga till de svala kvällarna.
10.12.2015 - 23:05
Mexican Sunset#mexicansunsetsocks |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með norrænu mynstri, prjónaðir frá tá og upp úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 170-11 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað á þessari aðferð: Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni og dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. dragið þráðinn aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóninum, * stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjón (þ.e.a.s. að síðasta l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 10-10-12 l eru á prjóni. Skiptið l á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið síðan eins og útskýrt er frá í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að hringurinn dragist saman og gatið hverfi. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLL: Prjónað er fram og til baka. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 l er eftir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 l er eftir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við. Haldið áfram með snúningana alveg eins þar til 15 l eru eftir í umf. Setjið 1 prjónamerki. Haldið áfram fram og til baka, nema nú er prjónuð 1 l fleiri í hverri umf yfir hæl. Til þess að sleppa við göt í skiptingunum lyftið lárétta þræðinum sem er á undan l sem prjónuð var meira upp og setjið snúið uppá prjóninn. Prjónið þráðinn saman með næstu lykkju (frá réttu er þráðurinn og lykkja prjónað slétt saman og frá röngu er þráðurinn og lykkjan prjónað brugðið saman). Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar l á hæl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá tá og upp. SOKKUR: Byrjið með litnum sólsetur og GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – á sokkaprjóna nr 2,5. Næsta umf er prjónuð þannig: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn (prjónið uppsláttinn snúinn slétt í næstu umf) = 20-20-24 l. Setjið 1 prjónamerki í eina l í hvorri hlið með 9-9-11 l á milli prjónamerkja. Aukið út hvoru megin við hvor prjónamerki þannig: * Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 l sl (prjónamerki er staðsett í 2. l), sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum (= 4 l fleiri) – ATH: Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Endurtakið útaukningu í hverri umf alls 5-3-3 sinnum og síðan í annarri hverri umf alls 4-4-4 sinnum = 56-60-64 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú mynstur í hring eftir mynsturteikningu a.1 (= 14-15-16 mynstureiningar í umf). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umf slétt með litnum sólsetur þar sem aukið er út um 2-2-0 l jafnt yfir = 58-62-64 l. Næsta umf er prjónuð þannig: A.2 (= 23-27-29 l ofan á fæti), A.3 (= 3 l), A.4 (= 29 l undir fæti), A.5 (= 3 l). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 13-15-18 cm frá tá. Haldið áfram eins og áður, en nú er prjónað A.6 á milli A.3 og A.4, A.7 á milli A.4 og A.5. Haldið svona áfram þar til A.6 og A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 70-74-76 l. Prjónið A.2 eins og áður (= 23-27-29 l), skiptið yfir í litinn sólsetur og prjónið út umf. Klippið frá. Stykkið mælist ca 17-19-22 cm frá tá. Setjið 41-45-47 l mitt ofan á fæti á þráð (þ.e.a.s. A.7, A.5, A.2, A.3 og A.6) = 29 l á prjóni fyrir hæl (= A.4). Prjónið – sjá útskýringu að ofan, allur hællinn er prjónaður með litnum sólsetur. Eftir stuttar umf yfir hæl er haldið áfram í sléttprjóni og með litnum sólsetur yfir 29 l á hæl – JAFNFRAMT í lok hverrar umf (bæði frá réttu og röngu), prjónið síðustu l í umf saman með ystu l af þræði (frá réttu eru prjónaðar 2 l snúnar slétt saman og frá röngu eru prjónaðar 2 l brugðið saman). Haldið svona áfram fram og til baka þar til 6 ystu l í hvorri hlið á þræði hafa verið prjónaðar saman með l á hæl. Setjið til baka þær 29-33-35 l sem eftir eru á þræði á prjóninn = 58-62-64 l. Klippið frá. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið á nýrri umf í hlið, þ.e.a.s. 15-13-12 l á undan fyrstu l í A.2 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið A.8 (= 15-13-12 l) – ATH: Byrjið í sömu umf og næsta umf í A.2 - A.2 heldur áfram eins og áður, prjónið A.9 (= 15-13-12 l), endið umf á A.10 (= 5-9-11 l aftan á fæti). Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 16 cm – stillið af eftir heila eða hálfa mynstureiningu af A.8/A.9 á hæðina = 64-68-70 l. Þegar A.11 er lokið er prjónað A.12 (= 12 l) yfir allar l – JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 4-4-0 l jafnt yfir = 72 l. Þegar A.12 er lokið, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2 og prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) með litnum sólsetur þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mexicansunsetsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.