Ria De Waard skrifaði:
Als de middelste steken afgehecht zijn van de mouwen hoe lang moet je breien voor de kopminderingen gedaan worden?
29.09.2015 - 07:43DROPS Design svaraði:
Hoi Ria. Je begint meteen met het afkanten voor de mouwkop.
30.09.2015 - 16:30Hortensia skrifaði:
Hermoso modelo. Confortable y sentador.
19.06.2015 - 23:09
José skrifaði:
Mooi model. Comfortabel ook. de zakken voegen voor mij niets toe. Die zou ik weglaten. Verder zou ik voor effen wol kiezen. Deze lijkt me gemelleerd?
13.06.2015 - 16:21
Sophie DROMARD skrifaði:
J'ai un gros coup de coeur sur le fil Air. J'aime bien le modèle mais un peu moins le col. Je le préfèrerai qui déborde un peu plus, comme un col châle.
13.06.2015 - 07:33
Ellis skrifaði:
Like Margareth before me, I would like the pockets inside, and think it might be nicer whith a small thread knit along, but nice pattern to challenge my skills and practice designing different stitches to also make it more interesting
08.06.2015 - 20:45Margaret Sayer skrifaði:
Whilst I like this design, I'd change the pockets to be on the inside, with just the slits apparent from the right side of the garment, thus keeping a better shape..
31.05.2015 - 17:58
Susie skrifaði:
Cute and looks very comfortable!
31.05.2015 - 06:16
Nienke skrifaði:
Een vest om in te wonen!
30.05.2015 - 20:13
Mirja Teuri skrifaði:
Ajaton, sopii käyttää "takkina". Helpohko? Nyt vain lankakauppaan!
28.05.2015 - 15:16
Joke Lieberom skrifaði:
Ideaal als het wat kouder wordt mooi garen en patroon.Herfsttooi.
27.05.2015 - 14:42
Autumn Forest Jacket#autumnforestjacket |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Air í garðaprjóni með sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónaðar slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN: Það eru prjónaðar stuttar umferðir í kanti að framan svo kanturinn dragist ekki saman á hæðina. Prjónið í 10. hverri umf þannig – frá réttu: Prjónið 16-16-18-18-20-20 l (= hægri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður. Snúið við og prjónið 16-16-18-18-20-20 l (= vinstri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Snúið við og prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 2 hnappagöt = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið fjórðu og þriðju síðustu kantlykkju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 31 og 41 cm STÆRÐ M: 31 og 41 cm STÆRÐ L: 32 og 42 cm STÆRÐ XL: 32 og 42 cm STÆRÐ XXL: 33 og 43 cm STÆRÐ XXXL: 33 og 43 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 162-178-198-214-238-254 l (meðtaldar 16-16-18-18-20-20 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón (= kantur að framan), sléttprjón þar til eftir eru 16-16-18-18-20-20 l og endið á 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. Munið að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5, stykkið er nú prjónað til loka í garðaprjóni yfir allar l. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm er prjónað þannig: Prjónið 41-45-51-55-61-65 l, fellið af næstu 6 l, prjónið 68-76-84-92-104-112 l, fellið af næstu 6 l, prjónið síðustu 41-45-51-55-61-65 l. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 68-76-84-92-104-112 l. Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 2 l 1-1-2-3-5-6 sinnum og 1 l 0-3-4-5-6-7 sinnum = 64-66-68-70-72-74 l. Haldið áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af miðju 18-18-18-18-22-22 l fyrir hálsmáli = 23-24-25-26-25-26 l eftir á hvorri öxl. Hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 41-45-51-55-61-65 l. Haldið áfram í garðaprjóni og fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 39-40-43-44-45-46 l. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af fyrstu 23-24-25-26-25-26 l frá röngu fyrir öxl = 16-16-18-18-20-20 l eftir á prjóni. Prjónið út umf. Prjónið nú stuttar umferðir yfir 16-16-18-18-20-20 l þannig – með byrjun frá réttu: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 8-8-9-9-10-10 l, prjónið 2 umf fram og til baka yfir allar l*, endurtakið frá *-* þar til kantur í hálsmáli mælist 7-7-8-8-9-9 cm þar sem hann er minnstur. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Fellið af fyrir öxl frá réttu og prjónið stuttar umferðir með byrjun frá röngu. ERMI: Ermin er prjónið í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-40-44-44-48-48 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Air. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 3 ½-3½-3-2½-2-2 cm millibili 9-11-11-14-14-16 sinnum til viðbótar = 60-64-68-74-78-82 l. Þegar stykkið mælist 46-46-45-45-42-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), fellið af 6 l mitt undirermi og ermin er prjónuð til loka fram og til baka. Fækkið síðan lykkjum fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3-3-3-3-4-4 sinnum og 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum. Fækkið síðan um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53-54-54-55-55-56 cm. Fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf og fellið síðan laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI: Vasarnir eru prjónaðir fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 20 l á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið 2 umf garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón með 2 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13 cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Prjónið annan vasa á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið vasana niður ca fyrir miðju á framstykki í sléttprjóni og 5 cm frá neðri kanti (sjá mynd). |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnforestjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.