Hannah skrifaði:
Hallo! Habe gestern mit dem stricken der Jacke begonnen und bin nun etwas verwirrt. In der Anleitung steht man soll beim Rückenteil 1 m re Kraus stricken und dann 20m glatt Re. Sieht man bei Korrekturen nach steht dort das gleiche. Wechselt man allerdings auf norwegisch steht dort man solle 19m glatt Re stricken. Was stimmt denn nun? Liebe Grüße
10.09.2015 - 06:01DROPS Design svaraði:
Die 20 M glatt re sind richtig, also so, wie es in der Anleitung steht. Beim Korrekturknopf steht im Norwegischen noch die alte Maschenzahl, im Deutschen bereits die neue. Maßgeblich ist aber immer das, was in der Anleitung selbst steht, die Anleitungen werden immer online direkt korrigiert. Der Korrekturknopf ist wichtig für die gedruckten Hefte, damit man sieht, an welcher Stelle etwas geändert worden ist.
13.09.2015 - 17:50
Claudia skrifaði:
Habe die Jacke gerade fertig gestrickt. Super toll und kuschelig warm!
08.09.2015 - 22:38
Rosewood11 skrifaði:
This is another pattern I want very much to make, and I keep hoping to see in English before long. Gorgeous!!!
15.07.2015 - 06:26
Silvie skrifaði:
Krasny,vlnu uz mam,tak moc prosim o cesky navod,dekuji.
05.07.2015 - 13:01
Malihe skrifaði:
Nydlig hete genser :) hvor mange garn trenger og hvor mye koster totalt?
30.06.2015 - 09:25
Irina skrifaði:
Anleitung soll her....
30.06.2015 - 00:40
Claudia skrifaði:
Sehr schöne Jacke. Wann kommt die Anleitung? Kann es kaum erwarten sie zu Stricken
24.06.2015 - 15:00Hallgunnur Skaptason skrifaði:
Meget flot
23.06.2015 - 23:09
Martha skrifaði:
Das möchte ich unbedingt nacharbeiten :)
21.06.2015 - 08:42
Rianne-Wiesje Kompier skrifaði:
Wonderful and lovely. The lace knitting makes it even more special. Woud love to knit this one, but I might choose another yarn. Eskimo is rather heavy and felches easily.
20.06.2015 - 08:38
Into The Woods#intothewoodsjacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow með gatamynstri, tvöföldu perluprjóni, garðaprjóni og hettu. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-1 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónið slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri frá réttu. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Lykkjum er fækkað innan við 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. MÆLING-1 (á við um fram- og bakstykki): Til að fá rétt hlutföll á peysuna er mæling á lengd gerð þegar stykkið liggur flatt. Vegna þyngdar á garninu og garðaprjóni í berustykki kemur stykkið til með að teygjast um ca 10 cm á lengdina miðað við mælingu í mynsturteikningu. MÆLING-2 (á við ermi): Vegna þyngdar á garninu er öll mæling á lengd gerð þegar stykkinu er haldið uppi. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 6 hnappagötum í hægra framstykki þannig (frá réttu): Prjónið 4 l, fellið af 2 l fyrir hnappagati, prjónið 6-6-6-8-8-8 l, fellið af næstu 2 l fyrir hnappagati = 2 hnappagöt í sömu umf (4 l eftir í kant að framan). Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Stærð S: 36, 45, 54 cm Stærð M: 38, 47, 56 cm Stærð L: 40, 49, 58 cm Særð XL: 42, 51, 60 cm Stærð XXL: 44, 53, 62 cm Stærð XXXL: 46, 55, 64 cm ATH: Það er ca 1 cm er á eftir síðasta hnappagati áður en prjónað er garðaprjón yfir allar l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 61-65-71-75-81-87 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Snow. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 5-5-5-6-6-6 cm (1. umf = rétta). Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 20-22-23-25-26-29 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.2 alls 2 sinnum (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 2 mynstureiningar 10-10-12-12-14-14 l), prjónið sléttprjón þar til 1 l er eftir í umf og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm fækkið um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri) og MÆLING-1. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 7-7-8-10-10-10 cm millibili alls 7-7-7-6-6-6 sinnum = 47-51-57-63-69-75 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Fellið nú af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 0-0-1-2-3-4 sinnum og 1 l 1-2-2-3-3-3 sinnum = 39-41-43-43-45-47 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 78-81-84-87-90-93 cm fellið af miðju 9-9-11-11-11-13 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 14-15-15-15-16-16 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 40-42-44-48-52-54 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 18-18-18-20-20-20 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 7 með Snow. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu: Prjónið A.1 yfir fyrstu 18-18-18-20-20-20 l (= kantur að framan), prjónið síðan garðaprjón yfir þær 22-24-26-28-32-34 l sem eftir eru. Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan og garðaprjón yfir þær l sem eftir eru í 5-5-5-6-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: A.1 yfir fyrstu 18-18-18-20-20-20 l eins og áður, 2 l sléttprjón, prjónið A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 1 mynstureining 10-10-12-12-14-14 l), prjónið sléttprjón þar til 1 l er eftir í umf og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm fellið af í hlið eins og á bakstykki. Endurtakið úrtöku alls 7-7-7-6-6-6 sinnum = 33-35-37-42-46-48 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm – MUNIÐ EFTIR MÆLING-1, prjónið garðaprjón yfir allar l (einnig yfir 18-18-18-20-20-20 kantlykkjur að framan) til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm fellið af fyrir handveg í hverri umf frá hlið eins og á bakstykki = 29-30-30-32-34-34 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 74-77-80-82-85-88 cm setjið síðustu 11-11-11-12-13-13 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að klippa frá, prjónið l áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og síðan 1 l alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 14-15-15-15-16-16 l eftir á öxl. Fellið allar l laust af þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ATH: Þegar A.2 byrjar er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 29-29-31-33-35-35 l eru eftir á prjóni, prjónið mynstur eftir A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 1 mynstureining 10-10-12-12-14-14 l), prjónið 1 l sléttprjón og haldið áfram með A.1 yfir þær 18-18-18-20-20-20 l sem eftir eru (= kantur að framan). Fellið ekki af fyrir hnappagötum á vinstra framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HETTA: Prjónið upp ca 46 til 58 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið 1 umf slétt frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til 66-68-70-72-74-76 l (ekki er aukið út yfir kant að framan). Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir allar l þar til hettan mælist ca 32-33-34-35-36-37 cm. Fellið af. Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið toppinn saman með lykkjuspori. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 26-28-30-30-34-34 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Snow. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-12 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri) og MÆLING-2. Endurtakið útaukningu með 7½-6-6-5-4½-3½ cm millibili alls 6-7-7-8-8-9 sinnum = 38-42-44-46-50-52 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-45-44-43 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 1-2-2-2-2-2 sinnum og 1 l 2-2-3-3-3-3 sinnum. Síðan eru felldar af 2 l í byrjun á hverri umf á hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 55-56-56-56-56-56 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni á hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 56-57-57-57-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #intothewoodsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.