Vintage Rose Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu með hringlaga berustykki og rósamynstri sem og handstúkum með rósamynstri úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL
DROPS 165-10 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26, 34, 41, 48 og 55 cm STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 57 cm STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 59 cm STÆRÐ XL: 2, 10, 19, 27, 36, 44, 53 og 61 cm STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 55 og 63 cm STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 56 og 65 cm ÚRTAKA: Fækkið lykkjum fyrir aðsnið við 4 prjónamerkin. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út við 4 prjónamerki. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Br yfir sl og sl yfir br. Endurtakið umf 2. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir A.2: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan A.2 þannig: Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 217-233-249-281-297-329 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 3 umf sl, skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf br frá röngu, en síðustu 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar slétt. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 20 l eru eftir á prjóni, prjónið 15 fyrstu l í A.1 (svo að mynstrin verði alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 215-231-251-275-299-327 l (lykkjum er ekki fækkað/aukið út yfir kant að framan). Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerkið er sett eftir fyrstu 31-32-34-35-35-36 l, 2. prjónamerkið er sett á eftir næstu 50-56-62-72-84-96 l, 3. prjónamerkið er sett á eftir næstu 53-55-59-61-61-63 l og 4. prjónamerkið er sett á eftir næstu 50-56-62-72-84-96 l (nú eru 31-32-34-35-35-36 l eftir á prjóni eftir síðasta prjónamerkið). Í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 187-203-223-247-275-303 l. Þegar stykkið mælist 24 cm í öllum stærðum er aukið út við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-4.-4.-6.-6. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 215-231-251-275-299-327 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-37-38-39-39-41 cm. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 51-55-60-65-71-78 l (= vinstra framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 93-101-111-121-133-147 l sléttprjón (= bakstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg og prjónið síðustu 51-55-60-65-71-78 l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-56-58-60-62-62 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 3-3-3-4-4-4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-10-10-10-10-10 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-18 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 42-42-41-41-40-40 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þannig: Byrjið frá réttu með litnum ljós perlugrár og prjónið l af hægra framstykki, prjónið síðan l frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá bakstykki, prjónið l af hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið til loka l frá vinstra framstykki = 335-359-383-411-439-475 l á prjóni og 4 prjónamerki í stykkið. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.2 í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri sýna l með prjónamerki í, 1. umf í A.2 byrjar í næstu umf frá réttu). JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 5-6-7-7-8-8 sinnum = 295-311-327-355-375-411 l á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) er fækkað um 13-13-13-9-13-17 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 282-298-314-346-362-394 l á prjóni. Í næstu umf er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.3 þar til 5 l eru eftir á prjóni (= 17-18-19-21-22-24 mynstureiningar ca 16 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (endið eftir umf merktri með ör fyrir rétta stærð), eru 146-154-162-178-186-202 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu með kirsuberjarauður (kantar að framan halda áfram í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 22-28-30-42-50-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 124-126-132-136-136-146 l eftir á prjóni. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN Í HNAKKA: Byrjið frá réttu með litnum fjólublár/grár/blár og prjónið sl þar til 18-18-20-22-22-24 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 18-18-20-22-22-24 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 28-28-30-32-32-34 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 28-28-30-32-32-34 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 38-38-40-42-42-44 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 38-38-40-42-42-44 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 48-48-50-52-52-54 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 48-48-50-52-52-54 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl út umf. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf sl frá röngu með litnum fjólublár/grár/blár þar sem fækkað er um 10-10-10-12-12-12 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 114-116-122-124-124-134 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 þar til 5 l eru eftir á prjóni og endið á 5 kantlykkjum að framan. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er fellt laust af með sl frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.5. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Til að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn sl í næstu umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 65-70 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 3 l br). Eftir 4 umf stroff eru allar 3 l br fækkaðar til 2 l br með því að prjóna 2 fyrstu l í hverri br mynstureiningu br saman = 52-56 l. Haldið áfram með stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 5-6 cm. Prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 7-11 l jafnt yfir = 45-45 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið sléttprjón með litnum ljós perlugrár. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11 cm er prjónað mynstur í hring á eftir mynstri A.5 (= 3 mynstureiningar í umf í báðum stærðum). Þegar stykkið mælist 14-14 cm byrjar útaukning á opi fyrir þumal. Aukið út um 1 l hvoru megin við næst síðustu l í umf (þ.e.a.s. innan í lófa) – LESIÐ ÚTAUKNING (útauknar lykkjur eru prjónaðar með litnum ljós perlugrár). Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknu l í 3. hverri umf, alls 6-7 sinnum = 13-15 þumal-l og 57-59 l alls. Þegar stykkið mælist 19-20 cm er þumal-l + 1 l sett hvoru megin við þessar lykkjur á þráð (= 15-17 l á þræði). Fitjið upp 3 nýjar l aftan við þumal í næstu umf = 45-45 l á prjóni. Prjónið A.5 til loka. Prjónið síðan 1 umf sl með litnum kirsuber þar sem aukið er út um 11-15 l jafnt yfir = 56-60 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og litnum fjólublár/grár/blár. Prjónið 6-8 umf stroff hringinn (= 1 l sl, 1 l br). Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Handstúkan mælist ca 25-26 cm. ÞUMALL: Allur þumallinn er prjónaður með litnum ljós perlugrár. Setjið til baka l af þræði á prjóna nr 3 og prjónið að auki upp 5-7 l í kant á bakhlið á þumallykkjum = 20-24 l á prjóni. Prjónið 3 umf sléttprjón hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið 6 umf stroff (= 1 l sl, 1 l br). Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. VINSTRI HANDSTÚKA: Prjónið á sama hátt og hægri handstúka, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við hina l í umf (í stað hvoru megin við næst síðustu l í umf). |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (48)
Christine Barholt skrifaði:
Sød og enkel
02.06.2015 - 20:33Franca skrifaði:
Ha le maniche un po' corte e poi scandalosi separati ? L'idea mi piace
02.06.2015 - 17:34Liv skrifaði:
Would love to make this. It's so pretty
01.06.2015 - 15:19Jelena skrifaði:
Denne kommer sikkert ligge på listen over kofter som skal strikkes.... Men jeg kommer velge andre farger da jeg er glad i farger ;)
31.05.2015 - 14:44Anna skrifaði:
Looking to make a cardigan soon and I love fair isle so really like this design.
31.05.2015 - 12:58Bodil skrifaði:
Nydelig jakke i flere farger. Enkel og pen.
28.05.2015 - 17:57Inger Nina Eide skrifaði:
Denne var også fin. Det blir vanskelig å velge mellom denne og genseren i samme mønster. Kanskje eg må strikke begge ?
27.05.2015 - 19:31Daniela Massari skrifaði:
Delizioso nella sua semplicità viva lo stile nordico
27.05.2015 - 18:39