Maria Karlström skrifaði:
Stämmer verkligen angiven garnåtgång? Tycker det verkar lite
06.05.2015 - 22:39DROPS Design svaraði:
Hej Maria. Det skulle passe fint. Baade Delight og Brushed Alpaca har en lang löbelaengde per nögle. Husk at Brushed er 25gr per nögle naar du bestiller
07.05.2015 - 12:39
Dominique skrifaði:
Bonjour Je commence l'empiecement et je me demande où placer le premier marqueur : aprés le debut de rang c'est a dire milieu dos ? Merci de votre réponse.
17.03.2015 - 09:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Dominique, on commence l'empiècement à partir du milieu dos (marqueur début de tour), puis on place 8 marqueurs pour les diminutions: le 1er après 19-27 m (cf taille) et 7 autres marqueurs espacés de 22-26 m les uns des autres, il reste 19-27 m avant le marqueur du début du tour. Bon tricot!
17.03.2015 - 10:24
Tina skrifaði:
Ich hätte gerne noch eine Skizze für den Pullover mit cm-Angaben. Könnt Ihr diese in der Anleitung mit angeben? Das erleichtert die Größenkontrolle beim Stricken sehr! Vielen Dank im Voraus!
05.03.2015 - 15:51DROPS Design svaraði:
Die Maßskizze folgt noch, es stimmt, sonst strickt man ja "auf gut Glück". :-)
06.03.2015 - 14:38
Ruth skrifaði:
Mooie simpele, klassieke basis trui. Echter ik zou het met lange mouwen willen hebben, dan heb je er meer aan. Ook zou ik een andere kleur kiezen, zoals heel licht roze, tegen het wit aan. Of in meerdere kleuren rood, in een verloop. Dat staat mooi bij een zomerse kleur. Mooi om te dragen in de avond na een warme dag, wanneer het koeler is. Dit geldt ook voor het bijbehorende vest. Ook kan je hierbij een zijden sjaal of een broche dragen, wat weer variatie geeft.
10.01.2015 - 15:09
Susana skrifaði:
Esta mezcla de delight y otro hilo queda espectacular. Me inclino a que es Vivaldi o Brushed Alpaca Silk. Matiza los colores de delight y crea unos colores muy bonitos.
08.01.2015 - 09:39
Anja Steinhaus skrifaði:
So schöööööööön! Einfach und gut mit dieser Wolle und diesen Farben.
30.12.2014 - 18:48
Aliceluyckx skrifaði:
Heel mooi, wil ik zeker graag maken !
29.12.2014 - 16:00
Annette skrifaði:
Schöne Farben, ich freu mich schon auf die Anleitung.
27.12.2014 - 10:37
DANIELLE VAN RYSEGHEM skrifaði:
Un joli pull pour le printemps, génial avec un jean.
19.12.2014 - 09:30
Angela skrifaði:
This looks like it would be fun to knit......easy, fast and pretty!
18.12.2014 - 22:09
Sea Mist#seamistsweater |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Brushed Alpaca Silk með ¾-löngum ermum og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1089 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum undan 6 l í hlið þannig: byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 6 l í hlið þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að sleppa við göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 116-128-140-152-172-184 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af Delight + 1 þræði af Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið þannig: 2 l sl, 2 l br út umf. Þegar prjónaðar hafa verið 3-3-3-5-5-5 umf er prjónað áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 4-4-2-4-4-4 l jafnt yfir = 112-124-138-148-168-180 l. Setjið 4 prjónamerki í stykkið, talið út frá byrjun umf þannig: 1. prjónamerki eftir 25-28-31-34-39-42 l, 2. prjónamerki eftir 31-34-37-40-45-48 l, 3. prjónamerki eftir 81-90-101-108-123-132 l og 4. prjónamerki eftir 87-96-107-114-129-138 l (= 6 l á milli prjónamerkja í hvorri hlið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti er fækkað um 1 l hvoru megin við 6 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 11 cm og 13 cm = 100-112-126-136-156-168 l. Þegar stykkið mælist 23 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við 6 l í hliðum – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm = 108-120-134-144-164-176 l. Prjónið þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Prjónið nú næstu umf þannig: Prjónið 24-27-30-33-38-41 l, fellið af næstu 4 l, prjónið 52-58-66-70-80-86 l, fellið af næstu 4 l og prjónið síðustu 24-27-30-33-38-41 l. Geymið stykkið = 100-112-126-136-156-168 l eftir á prjóni. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-34-34-38-38-42 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af Delight + 1 þráður af Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff þannig (1. umf = frá réttu): 1 kantlykkja * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kantlykkju. Haldið áfram þar til stroffið mælist ca 4 cm. Prjónið nú áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju. Endurtakið útaukningu með 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 9-10-11-11-12-12 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING! = 52-54-56-60-62-66 l. Þegar stykkið mælist ca 28-27-27-26-25-25 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) felið af 3 l í byrjun á næstu 2 umf = 46-48-50-54-56-60 l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 192-208-226-244-268-288 l. Byrjið við miðju að aftan og prjónið 1 umferð JAFNFRAMT er fækkað um 0-0-2-1-7-8 l jafnt yfir = 192-208-224-243-261-280 l. Í næstu umf er prjónað og prjónamerki eru sett í þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 12-13-14-13-14-14 l, setjið næstu 7-7-7-8-8-9 prjónamerki með 24-26-28-27-29-28 l á milli hverra prjónamerkja, nú eru 12-13-14-14-15-14 l á eftir síðasta prjónamerki og prjónið fram að miðju að aftan (= alls 8-8-8-9-9-10 prjónamerki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 16-16-16-18-18-20 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA-2! Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 2 sinnum til viðbótar og síðan með 2 cm millibili alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 80-96-96-99-99-100 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm. Í næstu umf er fækkað um 13-26-24-21-18-17 l jafnt yfir = 67-70-72-78-81-83 l. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan og prjónið stuttar umferðir svo að peysan verði hærri að aftan með byrjun frá miðju að aftan: Prjónið sl fram þar til 15 l eru eftir að prjónamerki að framan. Herðið á þræði, snúið við og prjónið br frá röngu þar til 15 l eru eftir í hinni hliðinni við prjónamerkið að framan. Snúið við og herðið á þræði. Prjónið sl til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan 1 umf sl og 1 umf br yfir allar l. Fellið síðan laust af með sl frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma og saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seamistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1089
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.