CALLAUDAUX Annie skrifaði:
Très beau modèle, motifs superbes, de toutes façons, les modèles drops sont tous sublimes. on a tous envie de les tricoter, mais le temps manque.
06.01.2015 - 10:22
Tiny skrifaði:
Wat een prachtige combinatie van patronen, steken en model!
04.01.2015 - 21:42
Anita skrifaði:
Heerlijke zomertrui. Een mooie combinatie van ajour en jacquard breiwerk. Afwisselend om te breien en mooi!!
02.01.2015 - 11:06
Mara skrifaði:
Das wird bestimmt mein Urlaubsbegleiter, perfekt für den lauen Sommerabend am Meer.
02.01.2015 - 08:31
Hennie Myhre skrifaði:
Fin sommer genser :-)
01.01.2015 - 17:10
Cicilie skrifaði:
Veldig flott genser. Blåfargen og mønsteret er så flott
01.01.2015 - 14:57
Vicky Williams skrifaði:
What a lovely, pretty pattern on this jumper that makes it look very distinct and different.
29.12.2014 - 00:20
W Van Leeuwen-van Onselen skrifaði:
Inbreien en patroonsteek in één trui. Romantische trui met blauw en wit, prachtig
28.12.2014 - 16:37
Nicole skrifaði:
Supersüß! Da hätte ich gern ganz schnell die Anleitung zu!
21.12.2014 - 22:47
Chantal Janssens skrifaði:
Wat een leuke trui, en heel afwisselend om te breien.
16.12.2014 - 11:33
Delphos#delphossweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð DROPS peysa úr Cotton Merino með mynsturborða. Stærð XS/S - XXXL.
DROPS 161-24 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 222-258-294-318-354-390 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum natur DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff þannig: * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist 6-6-6-8-8-8 cm prjónið nú mynstur í hring eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynstur prjónað eftir A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 51-60-69-75-84-93 l jafnt yfir í 1. umf = 171-198-225-243-270-297 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú mynstur eftir A.3 JAFNFRAMT er fækkað um 3-6-9-3-6-9 l jafnt yfir í 1. umf = 168-192-216-240-264-288 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið nú mynstur eftir A.4. Eftir A.4 er prjónað mynstur eftir A.5. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað aftur eftir mynstri A.4. LESIÐ ALLAN KAFLANN UM FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Eftir A.4 er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið mynstur eftir A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 6-2-8-6-2-8 l jafnt yfir í 1. umf = 162-190-208-234-262-280 l og 18-21-23-26-29-31 mynstureiningar í umf (ATH – í stærð M + L + XXL + XXXL er 1 l auka í lok umf eftir síðustu mynstureiningu. Þessi l er prjónuð eins og fyrsta l í A.2, en í 9.-11.-13.-15. og 17. umf er þessi l prjónuð slétt). JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 81-95-104-117-131-140 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-39-40-41-42-43 cm fellið af 2 l á hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 79-93-102-115-129-138 l. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í hvorri hlið – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstur við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.2 er lokið er skipt til baka yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram með litnum natur og sléttprjón til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 37-37-40-41-43-44 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 20-27-30-36-42-46 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Endurtakið í hinni hliðinni. FRAMSTYKKI: = 79-93-102-115-129-138 l. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og á bakstykki. Þegar A.2 er lokið er skipt til baka yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram með litnum natur og sléttprjón til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-50-52-54 cm setjið miðju 19-19-22-23-25-26 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun og í hverri umf frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 l 3 sinnum og 1 l 4 sinnum = 20-27-30-36-42-46 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Endurtakið í hinni hliðinni. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 60-60-66-66-72-72 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 8 cm er prjónað mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Prjónið nú mynstur í hring eftir A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 15-15-12-12-18-18 l jafnt yfir í 1. umf = 45-45-54-54-54-54 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram hringinn með litnum natur og sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-13-13-14-14 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 17-17-15-17-20-21 sinnum = 79-79-84-88-94-96 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm prjónið umf í A.3 merkta með ör (þ.e.a.s. prjónið 1 umf með 2 lykkjur í litnum natur, 1 lykkju í litnum blár). Haldið síðan aftur áfram með litnum natur til loka. Þegar ermin mælist 55-53-52-49-47-46 cm fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi í innan við 1 kantlykkju. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 106 til 126 l í kringum hálsmál (meðtalin l á þræði) á hringprjóna nr 3,5 með litnum natur. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.4 (byrjið á 2. umf í A.4). Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #delphossweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.