Ulla skrifaði:
Morgengry
14.12.2014 - 11:31
Claudia Vauha skrifaði:
Sehr schönes Modell!
12.12.2014 - 16:10
BELANGER Annick skrifaði:
Superbe ... bravo à l'équipe qui nous crée de magnifiques modèles !! A quand les explications ?
12.12.2014 - 12:35
Iviva skrifaði:
Incontournable !
12.12.2014 - 07:10
DINA skrifaði:
Complimenti
11.12.2014 - 22:50
GISELE SOUCASSE skrifaði:
Il me tarde d'avoir les explications de ce modèle pour le tricoter... Très féminin et magnifique point ajouré à porter en toutes circonstances ! Félicitations à vos conceptrices !
11.12.2014 - 20:49
Joan Thrue skrifaði:
Flot
11.12.2014 - 17:50
Marcin skrifaði:
Nice!
11.12.2014 - 12:16
Sea Light#sealightsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Belle með köðlum, gatamynstri og stroffi. Stærð S- XXXL.
DROPS 161-3 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.12. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, stykkið er prjónað í hlutum og er saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 115-123-133-143-165-177 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Cotton Light eða Belle. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN sjá útskýringu að ofan, prjónið síðustu 3-7-3-8-10-16 l í A.11, A.1 0-0-1-1-1-1 sinni á breiddina, A.2, A.3 1 sinni, A.1 0-0-0-0-1-1 sinni á breiddina, A.2, A.5 0-0-0-0-1-1 sinni á breiddina, A.4, A.2, A.5 0-0-1-1-1-1 sinni á breiddina, prjónið fyrstu 3-7-3-8-10-16 l í A.12, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina = 113-121-129-139-159-171 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið mynstur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: 3-7-3-8-10-16 l sléttprjón, A.6 0-0-1-1-1-1 sinni á breiddina, A.7, A.10 0-0-0-1-1-1 sinni á breiddina, A.8, A.7, A.9, A.6 0-0-0-0-1-1 sinni á breiddina, A.7, A.10 0-0-1-1-1-1 sinni á breiddina, 3-7-3-8-10-16 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrstu 5-9-5-10-12-18 l í 2 næstu umf fyrir handveg = 103-103-119-119-135-135 l. Mynstrið heldur síðan áfram eins og áður innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH: Það er ekki pláss fyrir 2 síðustu l með mynstri í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina – fellið af l fyrir hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 30-30-38-38-46-46 l, felli af næstu 43 l, prjónið næstu 30-30-38-38-46-46 l. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. ATH: Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni og kantlykkjur við hálsmál eru prjónaðar í garðaprjóni. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman = 29-29-37-37-45-45 l. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er fækkað um 2 l jafnt yfir hvern kaðal (= 4-4-6-6-8-8 l færri á hvorri öxl) = 25-25-31-31-37-37 l. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 43-45-46-48-49-51 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu af mynstri – setjið miðju 29 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ATH: Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni til loka. Fellið síðan af í hverri umf frá hálsmáli: 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 1 sinni = 29-29-37-37-45-45 l eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er fækkað um 2 l jafnt yfir hvern kaðal (4-4-6-6-8-8 l færri á hvorri öxl) = 25-25-31-31-37-37 l. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 51-53-55-57-57-61 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Light eða Belle. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 0-1-2-3-3-5 l br, 3 l sl, 4 l br, 3 l sl, A.2, 3 l sl, 4 l br, 3 l sl, 0-1-2-3-3-5 l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-3-4-4-6 l sléttprjón, A.8, A.7, A.9, 1-2-3-4-4-6 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 9-8-13-13-9-10 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili 17-18-19-20-22-22 sinnum til viðbótar = 87-91-95-99-103-107 l. ATH: Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 50-51-49-50-49-50 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina – fellið af 2 l jafnt yfir hverjum kaðli (= 4 l færri) = 83-87-91-95-99-103 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið lykkjur saman eina og eina með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við miðju að aftan og takið upp ca 120-130 l meðtaldar l af þræði í kringum hálsmál á hringprjóna nr 4 með Cotton Light. Prjónið 2 umf garðaprjón hringinn (sjá útskýringu að ofan), JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 120 l. Prjónið stroff þannig: 1 l sl, * 3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, 3 l br, 1 l sl. Þegar prjónaðir hafa verið 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sealightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.