Marie skrifaði:
Krása, určitě zařaďte do nové kolekce, těším se na ni.
03.01.2015 - 21:03
Marie skrifaði:
Krása, určitě zařaďte do nové kolekce, těším se na ni.
03.01.2015 - 21:02
Forventningsglæde 2015 skrifaði:
Yndig farve til en sommeraften,til festlig lejlighed eller bare en slentretur.
03.01.2015 - 20:53
Roberta skrifaði:
Un bel cardigan estivo che si completa con la maglietta successiva
03.01.2015 - 16:22
Lise Kilganon skrifaði:
J aime beaucoup les patrons d ete simple et leger,facile a tricoter, felicitations j utilise souvent vospatrons, merci
02.01.2015 - 14:37
Merete skrifaði:
Flot og lækker
01.01.2015 - 17:48
Annamaria skrifaði:
Super hübsch und feminin.
30.12.2014 - 18:03
Carina Rex skrifaði:
Vacker, klassisk
20.12.2014 - 10:54
Marita Müller skrifaði:
Super schöne Farbe und schöne Taille
16.12.2014 - 20:13
Katharina Schwaller skrifaði:
Sehr schönes Modell, ich möchte es meiner Tochter stricken und freue mich auf die Anleitung.
15.12.2014 - 12:58
Call It Spring Cardigan#callitspringcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með gatamynstri, sléttprjóni og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 159-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið fram að 2 l á undan prjónamerki: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l slétt, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 5, 11, 17, 23, 29, 35, 41 og 47 cm. STÆRÐ M: 6, 13, 19, 25, 31, 37, 42 og 49 cm. STÆRÐ L: 6, 12, 19, 25, 32, 38, 45 og 51 cm. STÆRÐ XL: 6, 12, 19, 26, 33, 40, 47 og 53 cm. STÆRÐ XXL: 6, 13, 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm. STÆRÐ XXXL: 7, 15, 22, 29, 36, 43, 50 og 57 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 221-235-249-277-305-333 l (meðtaldar kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr með Muskat. Prjónið umf GARÐAPRJÓN fram og til baka- sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú MYNSTUR frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni , A.1 (= 14 l í 1. umf) 15-16-17-19-21-23 sinnum á breidd, 1 l sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 191-203-215-239-263-287 l. ATH: 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Munið eftir HNAPPAGAT! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er sett eitt prjónamerki í hvora hlið þannig: Setjið eitt prjónamerki eftir 50-53-56-62-68-74 l inn frá hvorri hlið á stykki fyrir framstykki. Nú eru 91-97-103-115-127-139 l fyrir bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni innan við kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 7 cm, fellið af 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-2½-4-2½-2-2½ cm millibili 6-5-3-5-6-5 sinnum til viðbótar = 163-179-199-215-235-263 l. Þegar stykkið mælist 24 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við 2 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 1-1-1½-2-2-2 cm millibili 7-6-5-4-6-6 sinnum til viðbótar = 195-207-223-235-263-291 l. Þegar stykkið mælist 35-37-38-40-41-43 cm, felli af fyrir handveg í næstu umf: Prjónið fyrstu 47-50-54-56-63-70 l, fellið af næstu 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið næstu 85-91-99-103-117-131 l, fellið af næstu 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið næstu 47-50-54-56-63-70 l = 179-191-207-215-243-271 l. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR Á ERMUM: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 62-64-65-71-74-76 l á hringprjóna nr 4 með Muskat. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka (1. umf = ranga). Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 4-4-4-5-5-5 l, prjónið næstu 54-56-57-61-64-66 l slétt JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-5-5-4-4 l jafnt yfir (aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l), fellið af síðustu 4-4-4-5-5-5 l, klippið frá = 60-62-62-66-68-70 l. Geymið stykkið og prjónið annan kant á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn kanta á ermum á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 299-315-331-347-379-411 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 (18-19-20-21-23-25 sinnum) þar til 6 l eru eftir, 1 l sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH: Sjá ör í mynstri A.2 og A.3 fyrir rétta stærð! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.3 yfir A.2 og A.4 yfir A.3. Nú eru 119-125-131-137-149-161 l í umf. Prjónið 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 7-5-3-1-5-9 l jafnt yfir í 1. umf frá réttu = 112-120-128-136-144-152 l. Prjónið 2 umf garðaprjón til viðbótar og fellið síðan laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman kant á ermum kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum. Saumið yst í lykkjubogann. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #callitspringcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.